Konur geta tryggt sig á meðgöngu í fyrsta sinn Lovísa Arnardóttir skrifar 19. júní 2025 06:45 Hrefna Sigurjónsdóttir segir konur nú í fyrsta sinn geta tryggt sig á meðgöngu. Vísir/Anton Brink Sjóvá kynnir í dag, á kvenréttindadeginum, nýja tegund tryggingarverndar sem sérstaklega er hönnuð fyrir barnshafandi konur. Meðgöngutrygging er fyrsta sinnar tegundar hér á landi en er að norrænni fyrirmynd. Tryggingin kostar 30 þúsund krónur. Bætur eru eingreiðslur og geta numið allt að einni og hálfri milljón.
Hægt er að kaupa trygginguna allt frá því að þungun hefur verið staðfest og þar til móðir er gengin 32 vikur. Tryggingin tekur þó ekki gildi fyrr en á 17. viku meðgöngu. Ekkert áhættumat fer fram áður en tryggingin er keypt og geta allar þungaðar konur keypt hana. Tryggingin nær yfir fósturlát, þungunarrof eftir 17. viku vegna læknisfræðilegra orsaka og andvana fæðingar. Þá eru einnig í boði dánarbætur ef barn eða móðir deyr við fæðingu eða innan við mánuð frá fæðingu. Einnig eru í boði bætur vegna sjúkrahúslegu móður eða barns umfram fimm daga auk þess sem hægt er að sækja bætur vegna ákveðinna meðgöngu- og fæðingartengdra vandamála hjá móður. Einnig er bættur sálfræðikostnaður vegna annarra bótaþátta. Tryggingin gildir þar til mánuði eftir að barnið er fætt en tekur þó einnig til ýmissa meðfæddra heilkenna og sjúkdóma sem geta greinst á fyrsta ári barnsins. Meðgöngutrygging Sjóvá er viðbótarvernd við það sem barnshafandi konur njóta í almenna kerfinu hér á landi eins og ókeypis meðgönguskoðanir, fæðingarhjálp og eftirfylgd. Í almenna kerfinu er mögulegt að sækja um sorgarleyfi, sem er leyfi frá launuðum störfum eftir barnsmissi. Einnig er hægt að sækja um sorgarstyrk og hefur þessi réttur nýlega verið rýmkaður. „Trygging af þessari tegund hefur verið til á Norðurlöndum, lengst í Svíþjóð, eða allt frá um 1990,“ segir Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, hjá Sjóvá. Þar kaupi um 85 prósent kvenna slíka tryggingu. Danir og Norðmenn hafi innleitt álíka tryggingar á síðustu fimm árum og þær til dæmis seldar í netverslun í Danmörku. Greitt út strax Hrefna segir þannig hugmyndina þaðan en að tryggingin hafi verið aðlöguð að íslenskum veruleika. „Við skoðuðum hvað er ekki tryggt og hvar hætturnar liggja. Við vildum tryggja að það væri verið að greiða hratt út þegar neyðin er til staðar og þess vegna eru þetta staðlaðar fjárhæðir og lítið vesen.“ Hún segir fjárhæðirnar misjafnar eftir alvarleika og að bætur séu greiddar út strax. „Þetta eru kannski ekki risafjárhæðir en þær geta skipt máli þegar á reynir og þú þarft að brúa eitthvað bil. Tryggingunni er ætlað að vera stuðningur á erfiðum tíma. Um leið gerum okkur fulla grein fyrir, eins og oft er þegar verið er að tryggja hluti, að sumt verður ekki bætt með peningum, en þetta getur mögulega brúað eitthvað bil og verið góð viðbót.“ Hrefna segir að sömuleiðis hafi þeim þótt mikilvægt að bjóða konum að tryggja sig á þessum mikilvæga tíma. Konum hafi staðið til boða að tryggja sig en þetta tímabil hafi að einhverju leyti verið undanskilið slíkum tryggingum. „Þetta er mjög stór partur af lífi kvenna og þeirra heilsu. Við viljum jafna leikinn þannig að það sé ekki rof í tryggingu. Það hefur verið skarð í stuðningskerfi fyrir verðandi mæður því það hefur ekki verið hægt að tryggja sig sérstaklega fyrir því sem getur komið upp í meðgöngu eða fæðingu.“ Meðgöngutryggingin eigi að breyta því. Það sé hægt að bæta upp fyrir tekjutap eða sálfræðikostnað eða eitthvað annað. Börnin tryggð til tuttugu ára aldurs Hrefna segir það einnig nýmæli að trygging taki til meðfæddra sjúkdóma sem greindir eru á fyrsta aldursári barnsins. Kaupi fólk einnig barnatryggingu geti það tryggt barnið frá 17. viku í móðurkviði til tuttugu ára aldurs. „Þetta er hlutur sem fólk vill ekki endilega leiða hugann að. Það vill enginn vera í þeim sporum að barnið veikist alvarlega eða lætur lífið en maður þarf oft að hugsa um óþægilega hluti og það getur komið sér vel ef á reynir svo fólk geti einbeitt sér að því að hlúa að börnunum og þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur ef upp koma alvarlegir sjúkdómar.“ Á Norðurlöndunum taka flestar meðgöngutryggingar gildi á 21. viku, það er eftir tuttugu vikna sónar. Meðgöngutrygging Sjóvá sker sig því úr þarna. Í tuttugu vikna sónar er metin meðgöngulengd, fylgja staðsett, legvatnsmagn metið og ýmsir fósturgallar greindir. Við 19 til 20 vikna ómskoðun greinist fósturgalli hjá um það bil tveim prósentum kvenna og fósturlát greinist hjá um 0,5 prósentum þeirra samkvæmt vef Landspítalans. „Við töldum það vera raunveruleg virði fyrir barnshafandi konur að taka þessa áhættu með inn í trygginguna, að hún taki gildi frá sautjándu viku og tuttugu vikna sónarinn sé þannig með. Við vorum ekki bara að hugsa hvað væri hagkvæmt heldur líka hvað gagnast þeim sem myndu fá sér þessa tryggingu,“ segir Hrefna. Vilja koma af stað umræðu Hrefna segir að með þessari nýju tryggingu vilji Sjóvá koma af stað umræðu um kvenheilsu og heilsu kvenna á meðgöngu, erfiðar fæðingar og andvana fæðingar. Það sé sanngirnismál að konur geti tryggt sig á þessum tímamótum. „Tryggingar endurspegla samfélagið. Þetta snýst auðvitað um viðskipti en þetta er líka almannaheillaverkefni að það sé verið að reyna að bera borð fyrir báru ef eitthvað kemur upp á.“ Sjóvá eigi til dæmis um hundrað ára sögu sem hófst með tryggingum fyrir sjómenn og fjölskyldur þeirra. Kjarni trygginga sé að vera með plan B til að létta á þegar á reynir. „Þetta geta verið mjög alvarlegir hlutir eða hvimleiðir hlutir eins og árekstrar og vatnstjón. Það þarf alltaf að endurskoða þetta. Tryggingarnar endurspegla lífið og það er ekkert langt síðan það var ekki talað um fósturlát eða andvana fæðingar. Það var bara haldið áfram en þetta hefur auðvitað gríðarleg áhrif á fólk. Þetta er eftirvænting og draumur sem þú ert farinn að sjá fyrir þér og svo allt í einu breytist allt. Draumurinn hrynur eða jafnvel breytist í einhvern veg sem þig óraði ekki fyrir.“ Hrefna segir það hafa verið Sjóvá mikilvægt að tryggingin væri hönnuð af umhyggju og nærgætni og því hafi verið leitað til félaganna Einstakra barna og Gleym mér ei eftir ráðgjöf. Auk þeirra veitti ráðgjöf um kvensjúkdóma og fæðingar Alexander K. Snorrason, prófessor við háskólann og sjúkrahúsið á Akureyri, en hann er yfirlæknir kvensjúkdóma og -lækninga. „Tryggingin var þróuð í samstarfi við þau. Þessi samtök þekkja vel hvar skórinn kreppir að þegar eitthvað bjátar á á viðkvæmum tíma. Það var gott að fá þeirra endurgjöf og heyra þeirra sjónarhorn og hvað þeim fannst. Okkur fannst skipta máli að vera í góðu samstarfi við fólk sem þekkir vel hvað getur farið úrskeiðis.“
Tryggingar Börn og uppeldi Þungunarrof Jafnréttismál Tengdar fréttir Ný tryggingavernd fyrir fólk sem flýr ofbeldissamband Málum þar sem fjárhagslegu ofbeldi er beitt í nánum samböndum fer fjölgandi. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir það geta verið ótrúlega flókið að komast úr slíkum samböndum. Hún vonar að nýjar bætur muni hjálpa til í baráttunni gegn ofbeldi. 9. mars 2025 19:48 Mest lesið Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Viðskipti innlent Konur geta tryggt sig á meðgöngu í fyrsta sinn Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Að leysa hratt og vel úr málum í stað þess að pirrast Atvinnulíf Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Viðskipti innlent Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Viðskipti innlent Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Viðskipti innlent Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Viðskipti innlent Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Viðskipti innlent Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Konur geta tryggt sig á meðgöngu í fyrsta sinn Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Nóa-nammið hækkar í stórum skrefum Rækja fannst í skinkusalati „Það er svo mikið rugl í gangi“ Húsgagnahöllin sektuð fyrir ósanngjarnar auglýsingar Fleiri bílastæðafyrirtæki til skoðunar hjá Neytendastofu Bílastæðafyrirtæki fá á baukinn Tókst ekki að sýna fram á galla og situr uppi með körfuboltaskóna Gera fjölmargar breytingar á kílómetragjaldinu Tveggja ára skjár fæst ekki bættur vegna „dauðs depils“ Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi ESB skammar Shein: Falskir afslættir og villandi upplýsingar Sorpa í Hafnarfirði opnar framvegis klukkan níu um helgar Landsbankinn og Arion lækka vexti „Sporttöppum“ aftur komið fyrir Sagði eldri menn vísvitandi borna röngum sökum en situr uppi með Svarta-Pétur Strætó hættir að taka á móti reiðufé í vögnum 1. júní Verð á innlendri dagvöru hækkar hraðar en verð á erlendri Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Hefði fengið rúmum tíu þúsundkalli meira í vasann í bankaútibúi „Þetta eru bara krakkar sem eru í þessu fyrir peningana“ Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Sjá meira
Ný tryggingavernd fyrir fólk sem flýr ofbeldissamband Málum þar sem fjárhagslegu ofbeldi er beitt í nánum samböndum fer fjölgandi. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir það geta verið ótrúlega flókið að komast úr slíkum samböndum. Hún vonar að nýjar bætur muni hjálpa til í baráttunni gegn ofbeldi. 9. mars 2025 19:48
Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Viðskipti innlent
Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Viðskipti innlent