Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Aron Guðmundsson skrifar 24. júní 2025 07:30 Rúnar Sigtryggsson var látinn taka pokann sinn hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Leipzig eftir síðasta tímabil. Hann lýsir krefjandi aðstæðum hjá félaginu vísir/Getty Rúnari Sigtryggssyni var sagt upp störfum sem þjálfari Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir nýafstaðið tímabil. Rúnar starfaði við krefjandi aðstæður hjá Leipzig, barðist fyrir því að halda íslenskum landsliðsmanni innan sinna raða en fékk það ekki í gegn.
Rúnar tók við þjálfun Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni árið 2022 og eftir gott gengi var í fyrra ákveðið að framlengja samning hans. Leipzig endaði í 13.sæti á nýafstöðnu tímabili, sem er lakari árangur en tímabilið þar á undan og ákváðu forráðamenn félagsins að leysa Rúnar frá störfum. Rúnar hefur þurft að starfa við krefjandi aðstæður þar sem að slæm fjárhagsstaða Leipzig hefur haft sitt að segja. „Þetta er búið að vera lærdómsríkt en síðan að ég kom hingað hafa verið sparnaðaraðgerðir í gangi. Alltaf verið að minnka í leikmannahópnum og í ár var ástandið sérstaklega slæmt. Meðal annars þurfti að selja Viggó, eða þurfti þess ég veit það ekki. Hann var allavegana seldur. Markmiðið var bara að lenda ekki í fallbaráttu, sem við og sluppum við en við vorum neðarlega í töflunni og menn sættu sig ekki við það. Þá var bara ákveðið að láta þetta gott heita.“ Staðan var bara erfið Kom það þér á óvart að forráðamenn félagsins skyldu nú ákveða að leita annað? „Þetta er alltaf bara spurning um það hvernig menn horfa á þetta. Menn hér eru að stefna á Evrópukeppni en það er voða erfitt að þróa eitthvað ef það er alltaf verið að losa fleiri leikmenn heldur en koma til félagsins á móti. Staðan var bara erfið, ef til vill hefði geta verið hægt að spila betur úr þessu en úr því sem komið var er þetta bara ákvörðun sem var tekin og maður verður bara að sætta sig við það.“ Hafðirðu hug á því að halda áfram eftir nýafstaðið tímabil? „Já ég átti eitt ár eftir og í fyrsta sinn núna átti að vera einhver möguleiki á því að fá leikmenn í sumar. Losa einhverjar stöður en þegar að ég kom hingað fyrir tveimur og hálfu ári síðan voru allir leikmenn með frekar langa samninga og lítið hægt að hreyfa við liðinu. Það hefur ýmislegt spilað inn í. Fjárhagsvandræði til að mynda og þá er þetta niðurstaðan.“ Barðist fyrir því að halda Viggó Rúnar nefndi áður söluna á íslenska landsliðsmanninum Viggó Kristjánssyni frá Leipzig til Erlangen. Viggó hafði verið lykilmaður í liði Leipzig og reyndist svo bjargvættur Erlangen á nýafstöðnu tímabili. Tilboð Erlangen í hann var of gott fyrir Leipzig til að hafna, Rúnar vildi hins vegar ekki missa hann. Viggó Kristjánsson í leik með íslenska landsliðinu. Það var stórt högg fyrir Leipzig að missa hann frá sér.VÍSIR/VILHELM „Ég vildi þetta ekki en þetta voru bara þannig peningar í spilunum að félagið gat ekki sagt nei. Við fórum inn í tímabilið með fimm leikmenn í útilínunni, sem er mjög lítið. Í október sleit rétthenta skyttan okkar krossband og leikmaðurinn sem við fengum í staðinn fyrir hann var ekki að fylla það skarð nægilega vel. Svo eftir að Viggó fór meiðist hinn örvhenti leikmaðurinn og hann er frá alveg þangað til í apríl. Við vorum því í raun að spila þetta á þriðja örvhenta leikmanninum frá Erlangen sem kom í skiptum fyrir Viggó, sem og tveimur miðjumönnum lungað af tímabilinu. Menn gerðu það bara fínt en það hefði þurft oft eitt til tvö mörk í viðbót til þess að þetta hefði verið betra.“ Reyndirðu að berjast fyrir því að halda Viggó? „Já. Þetta tók nokkrar vikur en eftir að upphæðin frá Erlangen passaði fyrir Leipzig þá hefurðu ekkert um þetta að segja í rauninni í svona málum. Það vakir náttúrulega fyrir öllum að félagið lifi svona af. Það lifir ekki af í endalausum mínus.“ „Gæfan ekki með okkur í liði“ Hvernig var að vinna í þessu umhverfi? „Það er allt í lagi. Þegar að þú kemur úr handboltanum á Íslandi þá er það nú meira hark heldur en hitt. Það er alveg hægt að takast á við þetta en auðvitað eru erfiðar ákvarðanir sem þarf að taka en eftir á hyggja þá reyndum við að gera okkar besta. Ég held að við höfum tapað sjö eða átta leikjum með einu marki frá því í desember og það segir okkur kannski líka það að gæfan var ekki með okkur í liði. Niðurstaða tímabilsins er því þrettánda sæti eftir að hafa endað í því áttunda árið áður. Þrátt fyrir að við hefðum minnkað hópinn þá var markmiðið enn að ná þessu áttunda sæti en við vorum langt frá því í ár.“ Það gekk á ýmsu hjá Leipzig á síðasta tímabiliVísir/Getty Forráðamenn Leipzig stefna á að vera á meðal topp sex liða þýsku deildarinnar og fara í Evrópukeppni þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Rúnar gengur sáttur frá borði. „Mér fannst þetta fínn tími. Auðvitað er alltaf leiðinlegt þegar að þetta tekur enda en í þjálfarabransanum endar þetta nú yfirleitt svona. Ég get alveg gengið frá borði uppréttur og veit alveg hvað við gerðum. Ég skil líka að menn vilji, því það er alltaf verið að stefna á eitthvað Evrópusæti sem er þá topp sex sæti í þýsku úrvalsdeildinni, gera það með nýjum manni í brúnni. Það verður þá bara að koma í ljós hvernig það gengur.“ Hvað svo? Hvað framhaldið varðar er Rúnar með ákveðna sýn. „Ég ætla nú að byrja á að njóta sumarsins. Ég á enn eitt ár eftir af þessum samningi sem þarf að ganga frá. Ég ætla nýta þann tíma. Maður fer því að kíkja á það í haust hvað gæti verið í boði frá og með sumrinu 2026. Þá kemur það í ljós hvort það verði eitthvað eða hvort maður snýr sér að einhverju allt öðru.“ Rúnar hefur notið þess að þjálfa í þýsku úrvalsdeildinniVísir/Getty Þannig að þú hugsar þetta þannig að nú gæti tekið við ár þar sem að þú hleður batteríin og skerpt sýnina á framhaldinu? „Já. Þetta er mjög skemmtilegt. Það er mjög gaman að vinna í þessu og ég hefði alveg hug á því að gera það áfram ef eitthvað gott býðst. Maður vill fyrst skoða þann möguleika áður en að maður fer að líta eitthvað annað í kringum sig.“ Hafandi verið í Þýskalandi undanfarin ár myndi hugurinn leita fyrst þangað alltaf upp á næsta kafla að gera? „Já og ég myndi búast við því að það kæmi þá alltaf eitthvað héðan því maður er kominn með eitthvað nafn hérna en ég hefði ekkert á móti því að það kæmi eitthvað frá hlýrri löndum. En það er fínt hérna, umhverfið hér er mjög gott, deildin alltaf að vaxa og mér það bendir allt til þess að sportið sé að vera stærra og betra hér. Bæði liðin sem léku til úrslita í Meistaradeildinni sem og Evrópudeildinni komu frá Þýskalandi til að mynda.“
Þýski handboltinn Íslendingar erlendis Landslið karla í handbolta Mest lesið „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Ellefu mörk í Mosfellsbænum Íslenski boltinn „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Fótbolti Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Handbolti Fékk sex leikja bann fyrir hómófóbíu en ekki rasisma Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Sjá meira