Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. júní 2025 22:59 Leikstjórinn segist ætla að bjóða áhorfendum upp á ógleymanlega upplifun. Aðsend Spánnýtt leikfélag ætlar að umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í hinn fræga kabarettklúb Kit Kat næsta vetur. Félagið, sem stofnað var í vetur, stendur nú að opnum prufum og leitar að fjölbreyttum hópi leikara, söngvara og dansara í metnaðarfulla uuppfærslu af hinum sígilda söngleik Kabarett.
Leikhús ókunnuga fólksins er nýtt leikfélag sem hefur það að markmiði að framleiða vandaðar sviðslistir og bjóða upp á ný og spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullt listafólk, að eigin sögn, og leggur áherslu á að gera söngleikjaforminu hátt undir höfði. „Við trúum því að leikhúsið sé staður þar sem ókunnugt fólk úr ólíkum áttum kemur saman með það fyrir augum að tengjast í gegnum sköpun. Þess vegna heitum við Leikhús ókunnuga fólksins,“ segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Halda opnar prufur Hinir ókunnugu ætla að færa upp hinn sígilda og vinsæla söngleik Kabarett eftir Masteroff, Ebb og Kander í íslenskri þýðingu Karls Ágústs Úlfssonar. Sýningin verður frumsýnd í Þjóðleikhúskjallaranum í mars á næsta ári. Bjartur Örn Bachmann leikstýrir verkinu en hann hefur að sögn aðstandenda vakið athygli á undanförnum árum fyrir nálgun sína á söngleikinn. Eins og áður segir stendur félagið fyrir opnum prufum í næsta mánuði eða nánar tiltekið dagana áttunda, tíunda og fjórtánda júlí. Umsóknarfrestur er til 25. júní og fer skráning fram á heimasíðu félagsins. Nánari upplýsingar um prufurnar má finna með því að smella hér. Leikhús ókunnuga fólksins var stofnað i vetur og leggur sérstaka áherslu á söngleikjaformið.Aðsend Aðstandendur Leikhúss ókunnuga fólksins eru þau Bjartur Örn Bachmann, sem leikstýrir sýningunni, Helena Hafsteinsdóttir framleiðslustjóri, Arndís María Ólafsdóttir aðstoðarleikstjóri, Níels Thibaud Girerd dramatúrg, Júlía Kolbrún Sigurðardóttir hreyfihönnuður og Katrín Anna Karlsdóttir markaðsstjóri. Með sér í lið hafi þau fengið einvala lið listamanna sem öll brenna fyrir söngleiknum. Sally Cowdin er danshöfundur sýningarinnar, Fannar Sigurðsson og Þorsteinn Jónsson annast tónlistarstjórn, Hulda Kristín Hauksdóttir fatahönnuður sér um búninga, vöruhönnuðurinn Bryndís Magnúsdóttir og myndlistarmaðurinn Melanie Ubaldo sjá um leikmynd og leikmuni, athafnakonan Kristjana Rós Sigurðardóttir sér um leikgervi, Jóhann Friðrik Ágústsson sér um lýsingu og Þórður Gunnar Þorvaldsson um hljóðhönnun. Sígildur söngleikur með skilaboð til nútímans Söngleikinn Kabarett þarf vart að kynna fyrir leikhúsunnendum en hann var frumsýndur á Broadway árið 1966 og öðlaðist fljótt sess í söngleikjakanónunni. Síðar kom út kvikmyndin Cabaret undir leikstjórn Bob Fosse sem sló í gegn og skaut Lizu Minelli, í hlutverki Sally Bowles, rakleitt upp á stjörnuhiminn. Í tilkynningu frá félaginu segir að verkið fjalli á ögrandi hátt um samfélag á heljarþröm. „Það býður áhorfendum í tímaferðalag tæplega 100 ár aftur í tímann inn á stórfjörugan en afar kynlegan skemmtistað í Berlín. Í næturhúminu blómstra ástin, frelsið og listin en samtímis eykst ógn nasismans yrir utan veggi klúbbsins dag frá degi. Sýningin fæst á djarfan og ærslafullan hátt við eðli illskunar.“ Plakat sýningarinnar gefur góða mynd af stemningunni.Aðsend Á sýningarkvöldum fái áhorfendur tækifæri til að stíga inn í söguheim verksins en Kjallaranum verður umbreytt í kabarettklúbbinn Kit Kat. „Sköpunin mun svífa yfir vötnum í Söngleiknum Kabarett næsta vor. Við viljum bjóða áhorfendum upp á ógleymanlega upplifun frá því að þeir stíga fæti inn í leikhúsið. Þetta er ekki þáttökusýning en við komum til með að leika á barnum, í salnum og auðvitað á sviðinu,“ segir Bjartur Örn leikstjóri. Klikkað, bráðskemmtilegt og skelfilegt verk Hann segir verkið fjalla um samfélag þar sem óttinn er allsráðandi. Kabarettklúbburinn sé skjól frá hinu róstursama Þýskalandi uppgangsára nasistanna. „Þar inni er lífið gullfallegt eins og skemmtanastjórinn segir og áhyggjurnar skildar eftir fyrir utan. Verkið fjallar um fólk á flótta frá raunveruleikanum og svona flýtur hálfsofandi að feygðarósi. Ástin er í forgrunni en óttinn er aldrei langt undan. Mér finnst sérstaklega áhugavert hvaða linsu höfundar verksins velja að setja á aðdragandann að seinni heimstyrjöldinni og í hvernig ástandi var hægt að leggja grunn að skelfilegasta tímabili mannkynssögunnar. Þetta er ótrúlegur tilfinningaheimur sem verkið býður upp á og tónlistin, sem er mögnuð, fangar hann vel. Þetta er klikkað verk sem nær samtímis að vera bráðskemmtilegt og skelfilegt. Við erum ótrúlega spennt,“ segir Bjartur
Leikhús Þjóðleikhúsið Reykjavík Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira