Beðið eftir krufningarskýrslu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. júlí 2025 17:50 Konan var handtekin á heimili fjölskyldunnar í Garðabæ. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm Ástæðan fyrir því að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu krafðist frekara gæsluvarðhalds á grundvelli rannsóknarhagsmuna yfir konu grunuð um manndráp er sú að lykilrannsóknargagns er enn beðið, krufningarskýrslu.
Þetta herma heimildir fréttastofu. Gæsluvarðhald yfir konunni, sem grunuð er um að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra í Garðabæ í apríl, var framlengt í dag um fjórar vikur á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Í lögum um meðferð sakamála segir að ekki sé heimilt að úrskurða sakborning til að sæta gæsluvarðhaldi lengur en í tólf vikur nema mál hafi verið höfðað gegn honum eða brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess. Þeir rannsóknarhagsmunir sem eru undir er niðurstaða úr krufningsskýrslu samkvæmt heimildum fréttastofu. Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýsingafulltrúi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagðist í samtali við Vísi í dag hvorki geta greint frá því hvers vegna konan væri á ný í varðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna né hvers vegna hún hafi verið úrskurðuð í lengra varðhald en tólf vikna. Konan var þann 7. maí úrskurðuð í gæsluvarðhald í fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna. Hún hefur sætt því þar til það var framlengt í dag á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Garðabær Rannsókn á andláti í Garðabæ Lögreglumál Tengdar fréttir Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Gæsluvarðhald yfir konu, sem grunuð er um að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra í Garðabæ, hefur verið framlengt um fjórar vikur, eða til 29. júlí. Þá mun hún hafa sætt varðhaldi í fimmtán vikur en hámarkstími gæsluvarðhalds er tólf vikur, nema mál hafi verið höfðað gegn sakborningi eða brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess. 1. júlí 2025 13:44 Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Innlent Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Innlent Fleiri fréttir Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Sjá meira
Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Gæsluvarðhald yfir konu, sem grunuð er um að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra í Garðabæ, hefur verið framlengt um fjórar vikur, eða til 29. júlí. Þá mun hún hafa sætt varðhaldi í fimmtán vikur en hámarkstími gæsluvarðhalds er tólf vikur, nema mál hafi verið höfðað gegn sakborningi eða brýnir rannsóknarhagsmunir krefjist þess. 1. júlí 2025 13:44
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent