Fótbolti

„Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Ásthildur Helgadóttir lék 69 A-landsleiki á sínum tíma fyrir Íslands hönd.
Ásthildur Helgadóttir lék 69 A-landsleiki á sínum tíma fyrir Íslands hönd. Vísir/Ívar

Knattspyrnusamband Íslands þarf að leggjast yfir málefni kvennalandsliða Íslands í kjölfar vonbrigða á EM samkvæmt fyrrum landsliðskonu sem er þó óviss um framtíð liðsins. Mikilvægt sé að hafa leikmenn með í ráðum varðandi næstu skref.

Ísland lauk leik á EM í gær eftir 4-3 tap fyrir Noregi. Allir þrír leikirnir töpuðust og það í veikasta riðli mótsins samkvæmt styrkleikaröðun FIFA. Landsliðið hefur eftir því sætt gagnrýni og einnig þjálfarinn vegna stefnuleysis og skorts á framþróun.

Ásthildur Helgadóttir lék á sínum tíma 69 landsleiki fyrir Íslands hönd og kallaði sjálf eftir naflaskoðun hjá KSÍ hvað kvennafótbolta varðar fyrir tveimur árum síðan en síðan þá hefur ekkert gerst að hennar mati.

„Mér finnst þróunin kannski ekki hafa verið eins og við vorum að vona. Þetta, ef ég sletti, „indentity“, eða það sem einkennir liðið, mér finnst það vanta. Góður varnarleikur, barist um hvern bolta, vinna okkar návígi. Mér finnst þetta kannski vanta.“ 

„Mér finnst það þurfa að sjást svolítið, hvernig viljum við spila, hver eru okkar einkenni. Mér finnst þetta kannski svolítið vanta í liðið okkar í dag.“

Fyrir liggur að forysta KSÍ mun taka stöðufund með þjálfarateymi liðsins og meta stöðu þess upp á framhaldið. Verkefnið sé þó stærra og mikilvægt sé að hafa leikmenn liðsins með í ráðum.

„Ég held við þurfum að spyrja okkur þeirra spurninga hvort að við séum að dragast aftur úr. Ég hef verið hrædd um það undanfarin ár að við séum að dragast aftur úr. Við þurfum aðeins að skoða hvað hinir eru að gera í kringum okkur með fjármagn og uppbyggingu á yngri liðum og náttúrulega deildinni hérna heima.“

„Ég held að við þurfum að skoða þetta svolítið heildstætt. Setjast niður með Glódísi, sambandið setjist niður með henni og leikmönnunum eftir mótið. Ekki aðeins þjálfarateyminu. Bara taka gott samtal og skoða hvað er hægt að gera betur.

Viðtalið við Ásthildi í heild má sjá í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Ásthildur Helgadóttir um landsliðið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×