Lífið

„Ó­ljósir, fal­legir og stundum ó­þægi­legir hlutir“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Gugusar treður upp á Auto laugardaginn 26. júlí.
Gugusar treður upp á Auto laugardaginn 26. júlí. Aðsend

„Ég leyfði mér að vinna hratt þegar ég gerði þessa plötu. Ég var ekki stoppa og pæla of mikið heldur bara að treysta eyranu, líkamanum og tilfinningunni,“ segir tónlistarkonan Gugusar sem gaf nýverið út plötu og stendur fyrir allsherjar partýtónleikum á Auto í lok júlí.

Bjó til plötu frá grunni á nokkrum vikum

Gugusar, sem heitir réttu nafni Guðlaug Sóley og er fædd árið 2004, gaf nýlega út plötuna QUACK.

„Ég gerði þessa plötu á örfáum vikum, alveg frá grunni. Þetta er dansplata sem ég samdi, pródúseraði, mixaði og masteraði sjálf en þetta er í fyrsta sinn sem ég sé alfarið um allt ferlið og það skilaði sér í einlægari útgáfu af mér þar sem ég leyfi mér að vera alveg hrá.

Platan fjallar um ást, rugling og allt þetta sem gerist á milli línanna í samböndum. 

Þegar hlutirnir eru óljósir, fallegir og stundum óþægilegir. Þú vilt hreyfa þig, jafnvel þegar þú veist ekki alveg hvernig þér líður.“

Tónlistarkonan var ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér í ferlinu.

„Ég leyfði mér að vinna hratt þegar ég gerði þessa plötu. Var ekki stoppa og pæla of mikið, bara treysta eyranu, líkamanum og tilfinningunni. 

Ég kláraði hana á nokkrum vikum núna í sumar, nánast í einum rykk, og það var bæði frelsandi og stressandi,“ segir Guðlaug Sóley og hlær.

Tryllingur á klúbbnum

Guðlaug Sóley er í sambúð með Guðmund Braga Ástþórsson handboltamann sem spilar í Danmörku og eru hjúin búsett þar.

„Flest lögin samdi ég í Silkeborg í Danmörku þar sem ég bý en þrjú þeirra urðu til heima á Íslandi, hjá mömmu og pabba. 

Mér finnst platan QUACK endurspegla það sem mér finnst skemmtilegast við tónlist, hún hreyfir við líkamanum og tilfinningunum á sama tíma.“

Gugusar ætlar að fagna plötunni með stæl.

„Ég mun halda mínu fyrstu útgáfutónleika á Auto laugardaginn 26. júlí og flytja lögin í bland við eldri efni. Það verður algjört partý!“


Tengdar fréttir

Krefjandi að semja tónlist um ofbeldi sem þolandi

„Það gat verið erfitt að horfa til baka sem þolandi ofbeldis og nýta mína persónulega reynslu til að semja fyrir leikhúsið,“ segir tónlistarkonan Gugusar um lagið Merki sem hún var að senda frá sér. Lagið er úr sýningu Þjóðleikhússins Orð gegn orði sem hefur slegið í gegn.

„Eins og ég sé að dansa sársaukann frá mér“

„Ég verð eiginlega ótrúlega lítið stressuð fyrir gigg og er meira bara spennt,“ segir tónlistarkonan Guðlaug Sóley, betur þekkt sem Gugusar. Hún er að fara að spila á bransahátíðinni Eurosonic í Groningen, Hollandi í vikunni ásamt því að troða upp á háhýsaklúbbi í Amsterdam. Blaðamaður ræddi við Gugusar, sem var sömuleiðis að senda frá sér lagið Ekkert gerðist.

„Hef aldrei opnað mig svona áður“

„Ég hef fengið mjög góð viðbrögð og margir að segja að þetta hafi hjálpað öðrum sem eru í svipuðum aðstæðum, sem er alltaf gott að heyra,“ segir fjöllistakonan Gugusar um lagið Vonin sem hún sendi frá sér fyrr á árinu þar sem hún opnar sig um erfitt samband.

Hlær bara að hrútskýringum

Fjöllistakonan Guðlaug Sóley, jafnan þekkt sem Gugusar, hefur náð miklum árangri sem tónlistarkona á undanförnum árum og meðal annars unnið til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Hún byrjaði fimmtán ára gömul að semja tónlist og pródúsera sjálf en takmarkar sig ekki við einn listmiðil. Gugusar er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 

Feimin að eðlisfari en elskar að koma fram

„Fyrstu tónleikarnir mínir voru á Músíktilraunum sem ég tók þátt í þegar ég var fimmtán. Þá var ég einmitt með stutt dansatriði, þannig að ég byrjaði mjög snemma að gera eitthvað út fyrir kassann á sviði,“ segir fjöllistakonan Gugusar. Hún er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.