Unaðsvörur Harry Styles valda titringi Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. júlí 2025 14:02 Harry Styles er ekki lengur bara tónlistarmaður heldur líka unaðsvörusölumaður. Pleasing/getty Poppstjarnan Harry Styles hefur gefið út titrara og sleipiefni gegnum lífstílsmerki sitt Pleasing. Aðdáendur Styles virðast ánægðir með gjörninginn þó þeir hefðu frekar viljað að hann gæfi út nýja tónlist.
Útgáfan ber heitið „Pleasing Yourself“ sem má íslenska sem „Gerðu vel við sjálfan þig“ eru skrauthvörf yfir sjálfsfróun. Þó er aðeins um tvær vörur að ræða: bleikan og vínrauðan titrara og sleipiefni í stíl. View this post on Instagram A post shared by Pleasing (@pleasing) Á vefsíðunni segir að titrarinn sé „fagurfræðilega sér á parti“ og sleipiefnið veiti „langvarandi raka og silkimjúku skriði með engu glýseríni“. Harry Styles, sem er þekktastur fyrir veru sína í strákabandinu One Direction og síðar eigin sólóferil, stofnaði fyrirtækið Pleasing árið 2021 og bauð þá upp á kynhlutlaust naglalakk, húðvörur, ilmvötn og tískuföt. Nú hafa unaðsvörurnar bæst og spurning í hvaða átt verður farið næst. Allt er nú til. Verslunin The Pleasing Pleasure Shop opnaði í gær í New York þar sem áhugasamir geta verslað sér vörurnar á staðnum en vörurnar eru einungis sendar til Bandaríkjanna og Bretlands. Fræga fólkið hefur verið fyrirferðarmikið í fegurðarbransanum síðustu ár, þar má nefna Rihönnu með Fenty Beauty og Hailey Bieber með Rhode. En fleiri og fleiri hafa verið að færa sig yfir í unaðsbransann. Fyrirsætan Cara Delavigne gekk til lið við kynlífstækjaframleiðandann Lora DiCarlo sem meðeigandi árið 2020, tónlistarkonan Lily Allen gaf út eigin titrara hjá þýska fyrirtækinu Womanizer í fyrra og leikkonan Dakota Johnson tók nýlega við sem listrænn stjórnandi hjá unaðsvörufyrirtækinu Maude. Styles hefur bæst við flóruna og er það kannski til marks um að frægir gaurar séu á leið út í unaðsbransann.
Kynlíf Bretland Bandaríkin Tónlist Hollywood Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Fleiri fréttir „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Sjá meira