Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Agnar Már Másson skrifar 12. ágúst 2025 14:42 „Við höfum heyrt af misbrestum hvað varðar gjaldtöku,“ segir Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri. Á skiltinu við Bláa Lónið er útlistað verð sem má teljast venjulegt fyrir leigubílaferðir. Samsett Mynd Borið hefur á því að gestir Bláa lónsins séu rukkaðir hærra en eðlilegt verð af leigubílstjórum að sögn framkvæmdastjóra hjá fyrirtækinu. Lónið hefur því látið reisa upplýsingaskilti á bílastæðinu til að auka gagnsæi við gjaldtöku.
Greint var frá því um helgina að búið væri að setja upp skilti við Bláa lónið, einn fjölsóttasta ferðamannastað landsins, þar sem ferðamenn eru varaðir við óprúttnum leigubílstjórum. Á skiltinu stendur meðal annars hvert eðlilegt verð sé fyrir ferð til Reykjavíkur eða út á Keflavíkurflugvöll. Mikið hefur verið fjallað um ástandið á íslenskum leigubílamarkaði á árinu en meðal annars hafa margar sögur komið upp um að okrað sé á ferðamönnum og þeim jafnvel neitað um far sé túrinn of stuttur. Þá hefur ástandinu í leigubílaröðinni á Keflavíkurflugvelli verið líkt við villta vestrið. Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu-, rekstrar- og þjónustu hjá lóninu, segir að skiltið sé fyrst og síðast til þess að tryggja gagnsæi fyrir viðskiptavini og að þeir eigi að hafa gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubílaþjónustu. „Við höfum heyrt af misbrestum hvað varðar gjaldtöku, þó að það hafi ekki verið mikið um það, að minnsta kosti það sem við höfum heyrt,“ segir Helga í samtali við fréttastofu. „En númer eitt, tvö og þrjú snýst þetta um að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubílaþjónustu fyrir okkar gesti.“ Helga segir að gestir spyrji gjarnan hvað sé eðlilegt verð fyrir leigubíl. „Þetta skilti sem við settum upp tíðkast víða erlendis og er auðvitað fyrst og fremst til að upplýsa okkar gesti og auka öryggi þeirra.“ Búin að breyta skiltinu Á skiltinu er fólki bent á skráð leigubílafyrirtæki sem aka leiðina og er sérstaklega bent á Hreyfil og Aðalstöðina. Fréttastofa hefur fengið ábendingar frá leigubílstjórum á öðrum stöðvum sem voru missáttir. Skiltið á gestabílastæði lónsins.Aðsend Helga segir að búið sé að breyta skiltinu. Ástæða þess að Hreyfill og Aðalstöðin hafi verið tilgreind þar sé sú að þau hefðu hjálpað lóninu að finna eðlilegt verð til að útlista á töflunni. „Við verðleggjum að sjálfsögðu ekki aksturinn sjálf þannig að við töldum mikilvægt að fá fagaðila með til þess að upplýsa um meðalverð á þessum akstursleiðum. Og nú kemur það enn þá betur fram sem sagt hvenær, hversu verð eru fengin og hvaðan þau eru fengin,“ bætir hún við. Þrjátíu þúsund krónur fyrir skemmtiferð Nú fara ófáar sögurnar af leigubílstjórum sem rukka umfram það sem má teljast eðlilegt verð, að sögn leigubílstjóra sem fréttastofa hefur rætt við. Það vakti meðal annars mikla athygli í maí þegar greint var frá skemmtiferð tveggja ástralskra kvenna sem lýstu martraðarkenndri leigubílaferð þar sem bílstjórinn ók með þær upp að skíðasvæðinu í Bláfjöllum, þvert á óskir þeirra, og síðan rukkaði þær tæplega 30 þúsund krónur. Leigubílstjórum hefur fjölgað verulega frá því að ný lög tóku gildi árið 2023 en fram að því voru fjöldatakmarkanir á því hversu margir gátu fengið leigubílaleyfi hverju sinni. Í júní voru 813 manns með virkt rekstrarleyfi, sem gildir fimm ár í senn, en um 500 þessara leyfa voru gefin út á síðustu þremur og hálfu ári, samkvæmt gögnum frá Samgöngustofu. Þar af eru 172 leyfishafar skráðir á sína eigin stöð. Frá lagasetningunni 2023 hafa 6 bílstjórar verið sviptir leyfi sínu, samkvæmt gögnum frá því í júní. Á sama tíma hafði Samgöngustofu borist 107 ábendingar, um helmingur vegna háttsemi leigubifreiðastjóra (t.d. aksturslags, framkomu og gjaldtöku og fleira) og hinn helmingurinn vegna skráningar leigubifreiðar og leyfismála. Í gagnagrunni lögreglu eru skráð 106 brot á lögum um leigubifreiðaakstur síðustu fimm ár, samkvæmt gögnum frá því í júní. Áttatíu og sjö þeirra brota voru skráð árið 2024, þar af voru sautján sektaðir (lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðst í víðtæka eftirlitsherferð í fyrrasumar ásamt Samgöngustofu og Skattinum).
Leigubílar Bláa lónið Öryggi á ferðamannastöðum Ferðaþjónusta Neytendur Mest lesið „Hann er svolítið eins og Ragnar Reykás“ Viðskipti innlent Loka Brút og Kaffi Ó-le Viðskipti innlent Standist ekki söguskoðun að tengja uppsagnirnar við veiðigjöldin Viðskipti innlent Sushi Corner lokar Viðskipti innlent Krafa um íslensku leiði til minni samkeppni og hærra verðs Viðskipti innlent Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Samstarf „Mér fannst þetta bara gott hjá Ingu“ Viðskipti innlent BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Samstarf Nýir mannauðsstjórar hjá Eimskip Viðskipti innlent Tekur við sem framkvæmdastjóri innanlandssviðs Samskipa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lykilþættir til staðar til að halda matvöruverði lágu Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Ný verslun nærri þúsund fermetrum stærri en sú gamla Tuttugu tonn af íþróttanammi á sextíu dögum Komi á óvart hve lítið er keppt um lægsta verðið Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Íslendingar aldrei verið ferðaglaðari Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Súpan með pappírnum innkölluð Kúgaðist og missti matarlystina við að finna pappír í súpunni „Það gengur ekki að við séum með starfsemi sem sniðgengur lögin hér á Íslandi“ Olíufélögin hafi átt í samráði án þess að tala saman Mörg þúsund nýta enn 2G og 3G sem heyra sögunni til um áramótin Vísar ásökunum um samráð á bug Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Gagnrýna seinagang olíufélaganna og ýja að samráði Grunur um listeríu í vinsælum ostum Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Kvartanir vegna bílastæðamála daglegt brauð hjá Neytendastofu Rukkuð um sex þúsund kall eftir lagningu á Snæfellsnesi Bretland aftur inn í Reiki í Evrópu hjá Sýn, Símanum og Nova Fylgdu ekki fyrirmælum um að skýra skrópgjaldið betur og fá sekt Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Sjá meira
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“