Misstu Martin út en sneru leiknum og unnu Svía Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. ágúst 2025 21:36 Jón Axel tryggði Íslandi sigur af vítalínunni undir lok leiks. vísir Ísland vann Svíþjóð 73-70 í æsispennandi æfingaleik liðanna í undirbúningi fyrir Evrópumótið í körfubolta.
Liðin börðust hart allan leikinn, buðu upp á fína skemmtun og forystan skiptist margoft. Þegar komið var fram í miðjan fjórða leikhluta var Ísland lent nokkrum stigum undir en strákunum okkar tókst að snúa leiknum við á lokamínútunum. Þrátt fyrir að vera án Martins Hermannssonar, sem var farinn út af með fimm villur. Aðrir stigu upp og þá sérstaklega Jón Axel Guðmundsson, sem endaði stigahæstur eftir að hafa sett nokkrar stórar körfur og tryggt sigurinn af vítalínunni. Jón Axel skoraði 15 stig, greip 5 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. Martin Hermannsson kom næstur á eftir honum með 14 stig, auk 4 stoðsendinga. Tryggvi Hlinason lét mest til sín taka í fráköstunum og reif 12 bolta niður af spjaldinu. Ellefu af þrettán leikmönnum hópsins tóku þátt í leiknum. Sigtryggur Arnar Björnsson og Kári Jónsson sátu báðir hjá. Ísland spilar annan æfingaleik á morgun gegn heimamönnum Portúgals. Förinni er svo haldið hingað heim áður en leiðin liggur til Litáen þann 21. ágúst í síðasta æfingaleikinn áður en haldið er til Katowice í Póllandi. Evrópumótið sjálft hefst þar þann 27. ágúst.
Landslið karla í körfubolta EM 2025 í körfubolta Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Íslenski boltinn Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Kvenkyns dómari slasaðist í slagsmálum í vináttuleik Fótbolti Fleiri fréttir Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Sjá meira