Upp­gjör: Þór/KA-FHL 4-0 | Norðankonur í stuði á móti botnliðinu

Árni Gísli Magnússon skrifar
Sandra María Jessen skoraði í kvöld en klikkaði líka á víti.
Sandra María Jessen skoraði í kvöld en klikkaði líka á víti. Vísir/Diego

Þór/KA vann sinn fyrsta leik í slétta tvo mánuði með öruggum 4-0 sigri á FHL í 14. umferð bestu deildar kvenna í Boganum í kvöld. Norðankonur höfðu tapað þremur leikjum í röð eftir EM hlé en eru nú aftur komnar á beinu brautina. FHL mistókst að ná í sinn annan sigur eftir fyrsta sigurleik sinn í síðustu umferð.

Það var ljóst frá fyrstu sekúndu leiksins að Þór/KA var mætt til leiks af fullum þunga. Þær uppskáru hornspyrnu eftir rúma eina mínútu og úr henni kom fyrsta mark leiksins. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir endaði þá með boltann í teignum og átti skot í slána og niður áður en boltanum var komið í burtu en aðstoðardómarinn vel vakandi og dæmdi mark þar sem boltinn hafði dottið inn fyrir marklínuna.

Nokkrum mínútum síðar fékk miðvörðurinn Agnes Birta frían skalla eftir horn en setti boltann yfir.

Það var svo eftir 20 mínútna leik sem Karen María Sigurgeirsdóttir tvöfaldaði forystu heimakvenna með hnitmiðuðu skoti langt fyrir utan teig.

Eftir rúman hálftíma leik áttu gestirnir flotta skyndisókn og Taylor Hamlett brenndi af sannkölluðu dauðafæri ein gegn Jessicu í marki Þór/KA sem kom út á móti henni og varði frábærlega.

FHL virtist vakna eftir þetta færi og batnaði leikur liðsins til muna og hélst boltinn mun meira innan liðsins og betri stöður mynduðust en Þór/KA hafði fram að þessu haft öll völd á vellinum.

Staðan 2-0 í hálfleik heimakonum í vil.

Snemma í síðari hálfleik bætti hin markaóða Sandra María við þriðja markinu með góðum skalla eftir fyrirgjöf frá hægri frá Huldu Ósk.

Einhver lið hefðu brotnað þremur mörkum undir á þessum tímapunkti en leikmenn FHL héldu áfram sínu mikla orkustigi og leituðu að marki. Eftir rúman klukkutíma leik fékk Taylor Hamlett sitt annað dauðfæri en hitti boltann illa eftir góðan undirbúning frá Björgu Gunnlaugsdóttur.

Á 70. mínútu fengu heimakonur víti þegar Sandra María var rifin niður innan teigs. Hún steig sjálf á punktinn en Embla Fönn í marki FHL las hana eins og opna bók og var mætt í hornið sem Sandra skaut og handsamaði boltann.

Tveimur mínútum síðar kom Taylor boltanum í markið eftir sláarskot Castille Brookshire en var dæmd rangstæð, Austfirðingum til mikils ama.

Leikurinn var áfram hörku skemmtilegur þrátt fyrir að úrslitin væru svo gott sem ráðin en síðasta naglann í kistu FHL sá hin 15 ára gamla og bráðefnilega Bríet Fjóla Bjarnadóttir um að reka. Hún fékk þá boltann fyrir utan teig og smurði hann laglega upp í fjær hornið. Lokatölur 4-0.

Atvik leiksins

Síðasta mark leiksins sem Bríet Fjóla skoraði. 15 ára mjög efnilega stelpa sem skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild en hún var nú þegar búin að skora bæði í lengju- og mjólkurbikarnum. Mark sem hún mun alltaf muna eftir.

Stjörnur og skúrkar

Þór/KA liðið sem heild átti bara góða og fagmannlega frammistöðu í dag. Jessica bjargaði nokkrum sinnum vel í markinu og voru Hulda Björg og Agnes Birta traustar þar fyrir framan.

Sandra María og Hulda Ósk voru báðar á sínum degi og þá eru þær illviðráðanlegar.

Hjá gestunum heillaði Castille Brookshire. Frábær leikmaður, mjög orkumikil, sparkviss og erfið við að eiga.

Alexia Czerwien og Taylor Hemlett voru frískar en Taylor klúðrar tveimur dauðafærum sem gerir hana smávegis að skúrk. Þessi færi verður að klára.

Dómarinn

Mjög vel dæmt hjá Sveini og hans teymi. Stóru ákvarðanirnar lentu á Ásgeiri Þór aðstoðardómara sem dæmdi mark þegar Kimberley skallaðu boltann í slá og niður sem ég held að hafi verið rétt og dæmir mark af FHL vegna rangstöðu þegar Taylor fylgir eftir skoti Castille en FHL var mjög ósátt með þá ákvörðun.

Stemning og umgjörð

Stemningin nokkuð góð og fín mæting að austan þar sem stuðningsfólk FHL lét vel í sér heyra sem kveikti bara í stuðningsfólki Þór/KA.

Einar Gauti, líklega besti kokkur landsins, grillaði hamborgara úti í blíðunni fyrir fólkið á meðan boltanum var spyrnt í Boganum góða.

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA.Vísir/Vilhelm

„Vilji, kraftur, ákveðni og hugarfar hjá mínum stelpum“

Jóhann Kristinn Gunnarsson, var mjög sáttur með frammistöðuna og fór yfir víðan völl í viðtali eftir leik.

„Mér líður mjög vel núna að vera loksins kominn með sigur. Tveir sléttir mánuðir í dag frá síðasta sigri er alltof langt, það eru alltof margar ferðir á koddann án sigurs og það líður engum vel með það þannig við erum rosalega ánægð núna og ég er alveg rosalega ánægður með liðið.“

Þór/KA byrjaði leikinn af miklu krafti með marki eftir rúma mínútu og fengu gestirnir að austan lítið andrými sökum pressu heimakvenna sem skoruðu sitt annað mark á eftir 20 mínútur.

„Þegar þú vinnur tölum við alltaf vel um liðið og þegar við töpum tölum við ekki nógu vel um það og mér finnst hugarfarið hafa verið gott hjá mínum leikmönnum í gegnum þennan erfiða kafla og þessa erfiðu tvo mánuði, að gefa ekkert eftir og alveg sama á hverju bjátar; tap eða spila ekki eða eitthvað þá kemur alltaf bara tvíefld í næsta leik og það er alveg eins í dag,“ sagði Jóhann.

„Þannig að ég er alveg ógeðslega ánægður að hafa tæklað þetta svona að fá ekkert mark á sig, skora þessi mörk, hvernig sérstaklega við spiluðum. Ætli það sé ekki hægt að tala um einhverja þrjá fjórðu af báðum hálfleikum áður en mjög öflugt, vel skipulagt og stórhættulegt lið FHL sækir á og reynir að krafla í eitthvað. Þetta er miklu miklu betra lið en taflan og úrslitin í þessum leik sýna,“ sagði Jóhann.

Leikurinn var virkilega opinn og skemmtilegur í báða enda og segist Jóhann ekki hafa verið rólegur fyrr en í lok beggja hálfleika.

„Ég róaðist svona aðeins þegar það voru svona tvær mínútur eftir af hálfleik, hálfleikshléinu, þá var ég rólegur, en svo þegar Bríet (Fjóla Bjarnadóttir) smyr hann hér í fjórða markinu þá róaðist ég loksins. Þú ert ekki rólegur á móti liði sem hefur tvo af sterkustu sóknarleikmönnum deildarinnar á sitt hvorum kantinum, þetta er alveg ævintýralegt að reyna halda aftur af þeim, þetta er alveg ofboðslegur hraði og þær eru bara góðra í þessu sem þær gera þannig ég er mjög ánægður hvernig við náðum að loka á þetta,“ sagði Jóhann.

Það var bara vilji, kraftur, ákveðni og bara hugarfar hjá mínum stelpum sem gerði það að verkum. Ég er búinn að sjá þrjá frábæra leiki eftir EM pásuna hjá þessu liði, þetta er bara gríðarlega öflugt lið, þannig ég gæti ekki verið meira stoltur af mínu liði,“ sagði Jóhann.

Þór/KA fær Fram í heimsókn í Bogann í næstu umferð í leik sem verður keimlíkur þessum að mati Jóhanns.

„Já, lið sem að er í brekku og er búið að tapa einhverjum leikjum í röð, það er ekki að fara gefa þér neitt og við þurfum að átta okkur á því en við ætlum svona að bíða svona fram yfir mjaltir á laugardag, sunnudag áður en við förum að spá í næsta leik þannig við ætlum að njóta þess loksins núna eftir þennan langa tíma að hafa unnið þannig við spáum í hitt einhvertímann svona upp úr helginni,“ sagði Jóhann léttur að lokum og vonum við að honum gangi vel í fjósinu um helgina.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira