KA

KA

Fréttir af Knattspyrnufélagi Akureyrar, KA, frá Akureyri.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“

„Ég er ánægður með frammistöðuna, mér fannst við spila mjög fínan leik í dag. Þannig ég er bara sáttur við stelpurnar,“ sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík eftir 1-0 tap á móti Þór/KA á útivelli í kvöld. 

Sport
Fréttamynd

Aðal­steinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnu­semi dugnaður og sam­vinna skilaði sigrinum“

„Ég er mjög ánægður með það að vinna fyrsta leikinn í dag en umfram allt er ég ánægður með frammistöðuna sem stelpurnar lögðu í leikinn. Vinnusemi, dugnaður samvinna og bara það skilaði sigrinum í dag og við erum virkilega ánægð með það að vinna loksins“, sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, eftir fyrsta sigur liðsins í Bestu deild kvenna sem kom gegn Þrótti nú í kvöld og var augljóslega létt.

Fótbolti
Fréttamynd

Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús

Þór/KA sótti sinn fyrsta sigur í Bestu deild kvenna þegar Þróttur kom í heimsókn á VÍS völlinn á Akureyri í níundu umferð deildarinnar. Heimakonur skoruðu tvö góð mörk í fyrri hálfleik og sigldu öruggum 2-0 sigri heim og lyfta sér þar með úr botnsætinu og upp fyrir Fram í töflunni.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Upp­gjörið: KA - Fram 3-4 | Mörkunum rigndi á Akur­eyri í sigri Fram

Fram vann 4-3 sigur á KA á Greifavellinum á Akureyri í dag í stórskemmtilegum leik sem bauð upp á markaveislu. Um sjötta sigur Fram í síðustu sjö leikjum liðsins í Bestu deildinni var að ræða en með sigri kvöldsins minnkar Fram bilið í KR í 2.sæti deildarinnar niður í tvö stig. KR á hins vegar leik til góða á morgun gegn Víkingi Reykjavík.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Dagur Árni aftur heim í KA

Dagur Árni Heimisson er orðinn leikmaður KA á nýjan leik og skrifar hann undir tveggja ára samning við félagið og mun spila með því í Olís deildinni á næsta tímabili. 

Handbolti