Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. ágúst 2025 11:02 Vera með ríkidæmi sínu, í baráttunni á spítalanum og nú að lokinni meðferð. 25 ára kona sem greindist með bráðahvítblæði fyrir tveimur árum segir níu mánaða dóttur sína hafa verið sinn allra mest drifkraft í gegnum erfiða lyfjagjöf í lengri tíma. Hún hefur nú lokið meðferð og er orðin tveggja barna móðir eftir að hafa óvænt orðið ófrísk.
Jakkafataklæddi hlaupahópurinn HHHC Boss, sem hleypur sex maraþon á sex dögum yfir Kjöl, kemur til Reykjavíkurborgar í dag. Hópurinn tileinkar dagsverkið Veru Helgadóttur sem greindist 23 ára með bráðahvítblæði. Hópurinn hefur safnað rúmum sjö milljónum til styrktar Krafti en setur markið á tíu milljónir. „Þetta var í ágúst 2023 og ég hafði nýlega klárað fæðingarorlof, bókstaflega. Daginn sem ég byrja að vinna enda ég með sjúkrabíl upp á bráðamóttöku og rússíbaninn byrjaði.“ Hún segist hafa verið með skrýtin einkenni í margar vikur. „Sneiðmyndin á bráðamóttökunni sýndi 14 sentímetra fyrirferð sem var að ýta á nýrað og brisið og hófst þá meðferð við brisbólgu með dreni í nýrað og stanslausum morfíngjöfum. Það þótti þó nokkuð ljóst frá upphafi að um krabbamein væri að ræða en endanleg greining kom ekki fyrr en viku seinna og niðurstaðan var sjaldgæf birtingarmynd bráðahvítblæðis.“ Gott að heyra að líkurnar væru með sér í liði Hún minnist þess þegar maðurinn hennar og móðir sátu með henni á krabbameinsdeildinni og læknirinn tilkynnti þeim greininguna og verkefnið sem fram undan væri. „Fyrstu viðbrögð mín voru léttir, maðurinn minn brast í grát og mamma fraus úti í horni. Mjög misjöfn viðbrögð en það létti yfir mér að fá að heyra að það væri til lækning og að líkurnar væru með mér í liði.“ Hún hafi þó syrgt það að komast ekki í eggheimtuferli. „Því lyfjagjöfin þurfti að byrja strax næsta dag og mér fannst mjög erfið tilhugsun að geta ekki eignast annað barn og gefið dóttur minni systkini.“ Dóttir hennar var þá níu mánaða gömul og reyndist hennar helsti drifkraftur. Ætlaði að komast heim til dótturinnar „Meðferðin tók hálft ár og krabbameinsdeildin varð heimilið mitt á meðan, en ég ríghélt í setninguna „ég ætla að komast heim til hennar“.“ Hún minnist þess þegar henni barst poki merktur Krafti fyrstu vikuna sem hún lá inni. Þar var starfið kynnt en pokinn innihélt líka hluti sem hún gat notað í gegnum meðferðina eins og prjónaðir sokkar, tannbursti, líkamssápa og sjampó. „Mér fannst svolítið fyndið að fá sjampó því ég var að fara að missa hárið en það kom að góðum notum þegar ég fékk það aftur. Með þessum poka hjálpaði Kraftur mér að horfa fram á veginn og sjá fyrir endann á meðferðinni því ég hlakkaði svo til að klára hana og geta nýtt mér þjónustu Krafts.“ Óvænt ólétta Vera hafði verið í næstum samfelldri einangrun í hálft ár og mátti bara knúsa dóttur sína. Hún upplifði sig svolítið í lausu lofti þegar meðferðinni lauk og áfallið dundi yfir. „En verkefnið heldur áfram þó svo að lyfjameðferðin sé búin og jafningjastuðningurinn er þar lang besta vopnið. Þar kom Kraftur sterkt inn og studdi mig við að feta næstu skref og koma mér aftur út í lífið – félagslega og andlega.“ Vera getur nú litið um öxl stolt eftir mikla baráttu. „Nú hef ég lokið meðferð og varð óvænt ófrísk og á núna fullkomlega heilbrigðan þriggja mánaða gamlan strák og nýt lífsins í fæðingarorlofi. Ég er í eftirliti á tveggja mánaða fresti en okkur heilsast mjög vel og lítum björtum augum á framtíðin.“ Reykjavíkurmaraþonið fer fram í fyrramálið og hefst með maraþonhlaupi klukkan 8:30. Bein útsending verður frá hlaupinu á Vísi.
Reykjavíkurmaraþon Krabbamein Hlaup Mest lesið Óvænt stjörnuskipti í jólasýningu Þjóðleikhússins Lífið „Þrisvar sinnum hefur mér verið hótað lífláti“ Lífið Leiðir skilja hjá Svala og Jóhönnu Lífið Stella og Davíð sjóðheitt nýtt par Lífið Unnur Birna verður Elma Lífið Mun aldrei gleyma augnaráði bílstjórans Lífið TikTok besta leitarvélin í ferðinni til Suður-Kóreu Ferðalög Claudia Cardinale er látin Lífið Framkvæmdastjóri Olís selur glæsihús í Garðabæ Lífið Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elskhuga Lífið Fleiri fréttir Leiðir skilja hjá Svala og Jóhönnu Stella og Davíð sjóðheitt nýtt par Elín tendrar eldana fyrir Laufeyju Mun aldrei gleyma augnaráði bílstjórans Óvænt stjörnuskipti í jólasýningu Þjóðleikhússins Unnur Birna verður Elma „Þrisvar sinnum hefur mér verið hótað lífláti“ Bragðgóð graskers- og púrrlaukssúpa með karrý og kókosmjólk Claudia Cardinale er látin O (Hringur) hlaut aðalverðlaun leikinna mynda á Nordisk Panorama Framkvæmdastjóri Olís selur glæsihús í Garðabæ Fyrsta Ungfrú Grænland í rúm þrjátíu ár Kynfræðingur, rektor og listakona styrktu tengslin FM Belfast bætir við aukatónleikum Þóttist hafa rekið bróður sinn sem mætti óvænt aftur Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elskhuga „Balí hefur einfaldlega stolið hjarta mínu“ 20 börn frá Grænlandi í sundi, skautum og í heimsókn hjá forsetanum Hver er Thomas Skinner? Tryllingur, framhjáhald og myndarlegar máltíðir Björk neitar Ísraelum um tónlist sína Enginn að rífast í partýi á Prikinu Hljóp undir fölsku nafni Úrslitaspurningin var um húðflúr aðalleikarans í Breaking Bad „Það jafnast enginn á við þig“ Hágrét þegar hún sagði mömmu að hún tæki ekki við búðinni Stjörnulífið: Dætur Jóns Ásgeirs og Geirs H. Haarde giftu sig Lítill rappari á leiðinni Ljúffengar uppskriftir undir tuttugu mínútum Fátt skemmtilegra en að klappa Einari á afturendann á almannafæri Haustlestur: Gotneskur drungi, magnaður sannleikur og boltarnir hans Trump Sjá meira