

Táningur sem hleypur hálfmaraþon til styrktar Píeta samtakanna hvetur aðra stráka á sínum og aldri og raunar alla til að tala um tilfiningar sínar og leita sér hjálpar í auknum mæli. Alltof margir séu hræddir við að sýna tilfinningar.
„Ég hélt lengi að þetta væri eitthvað sem ég þyrfti bara að „komast yfir“ en sannleikurinn er sá að þetta hefur haft miklu dýpri áhrif á mig en fólk sér. Ég hef burðast með óöryggi, kvíða og sár sem ekki sjást,“ segir Klaudia Pétursdóttir. Tíu ára gömul flutti Klaudia frá Póllandi til Íslands til að búa hjá föður sínum. Þar varð hún fyrir ítrekuðu ofbeldi sem hafði djúp áhrif á líf hennar. Í dag stígur hún fram og segir sína sögu – í von um að styðja aðra og vekja athygli á mikilvægi úrræða fyrir þolendur.
Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur óskað eftir því við Reykjavíkurborg að fresta breytingu á endamarki Reykjavíkurmaraþons frá Lækjargötu yfir á Geirsgötu þar til í ágúst á næsta ári.
Breytingar á hlaupaleiðum Reykjavíkurmaraþons og kvölddagskrá Menningarnætur voru samþykktar á fundi borgarráðs í gær eftir tillögum starfshóps Reykjavíkurborgar. Á meðal þess sem var samþykkt var að tónleikar við Arnarhól myndi ljúka klukkustund fyrr, klukkan 22 en ekki 23.
Valdimar Sverrisson ljósmyndari og uppistandari mætti í heimsókn til Hljóðbókasafnsins á dögunum þar sem honum var fagnað vel og innilega. Ástæðan er sú að Valdimar safnaði áheitum fyrir safnið í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst en Valdimar segir ekkert mál að hlaupa jafnvel þó hann sé „alveg staurblindur.“
Sindri Karl Sigurjónsson, 15 ára hlaupari úr Borgarfirði, sló 24 ára gamalt aldurflokkamet Kára Steins Reynissonar í 10 kílómetra götuhlaupi í dag. Þetta er í annað sinn sem hann slær metið, en í fyrra skiptið var það ekki gilt.
Eftir að hafa slegið 24 ára gamalt aldursflokkamet hlauparans mikla Kára Steins Karlssonar, en ekki fengið það skráð, hefur hinn 15 ára gamli Sindri Karl Sigurjónsson verið boðinn sérstaklega velkominn í Hjartadagshlaupið í ár.
„Mér fannst svo viðeigandi að gera þetta í minningu pabba. Pabbi var þannig gerður að hann vildi aldrei skulda neinum neitt eða standa í þakkarskuld við neinn. Og björgunarsveitirnar, sem komu og hjálpuðu okkar þennan dag áttu þetta svo sannarlega inni,“ segir Berglind Sigurðardóttir en faðir hennar, Sigurður Sigurjónsson, lést af slysförum á Skógaheiði í október á seinasta ári.
Íþróttabandalag Reykjavíkur og langhlaupanefnd Frjálsíþróttasamband Íslands hafa deilt um kostnað við vottun hlaupanna í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og náðu ekki samkomulagi vegna 10 kílómetra hlaupsins í ár. Formaður ÍBR kallar eftir föstu verði fyrir vottun, burtséð frá fjölda keppenda.
Fimmtán ára strákur úr Borgarfirði sló 24 ára gamalt aldursflokkamet Kára Steins Karlssonar um helgina, í 10 kílómetra götuhlaupi. Eða nei, því hlaupið, sem var hluti af Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, var ekki vottað.
„Ég get ekki ímyndað á hvaða stað ég væri í dag ef ég hefði ekki leitað til Stígamóta á sínum tíma. Sjálfsmyndin mín væri þá líklega ennþá svo brengluð, ég væri örugglega ennþá föst í þeirri hugsun að líkami væri bara sjálfsagður til afnota fyrir aðra,“ segir Heiða Valdís Ármann.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í fertugasta skipti í gær. Eins og áður var mikil stemning á svæðinu og gleðin skein úr andlitum flestra.
Sandra Rós Hrefnu Jónsdóttir var í dag í brautarvörslu á Seltjarnarnesi vegna Reykjavíkurmaraþonsins þegar óþolinmóður bílstjóri ók utan í hana með þeim afleiðingum að eitthvað small í hnénu á henni.
Dagur Lárusson sló metið sitt í maraþonhlaupi um heilar fimmtíu mínútur í Reykjavíkurmaraþoninu í dag en þurfti hins vegar að fagna því með næringu í æð á bráðamóttöku Landspítalans.
Sigurður Örn Ragnarsson varð í dag fyrsti Íslendingurinn í mark í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka er hann kom í mark á tímanum 2:37:07.
Verena Karlsdóttir varð fyrsti Íslendingurinn í mark í Reykjavíkurmaraþoninu sem fór fram í dag. Tæpt hálft ár er síðan hún eignaðist barn.
José Sousa frá Portúgal og Anca Irina Faiciuc frá Rúmeníu komu fyrst í mark í Reykjavíkurmaraþoninu í dag.
Í hálfu maraþoni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í dag komu Arnar Pétursson og Halldóra Huld Ingvarsdóttir fyrst í mark.
Í dag fer Reykjavíkurmaraþonið fram þar sem margir hlaupa í þágu góðs málefnis. Þýskur blaðamaður hleypur til minningar um einn dáðasta íþróttamann Íslands.
Mikael Smári Evensen var þriggja ára gamall þegar hann var greindur með taugahrörnunar sjúkdóminn AT, eða ataxia telangiectasia en sjúkdómurinn leggst meðal annars á tauga- og ónæmiskerfið og leiðir til alvarlegrar færniskerðingar. Í sumarbyrjun í fyrra greindist Mikael Smári síðan einnig með bráðahvítblæði og er því í harðri krabbbameinsmeðferð, ofan á allt hitt.
Reykjavíkurmaraþonið fer fram í fertugasta sinn á morgun. Tveir Íslendingar hafa tekið þátt í hverju einasta hlaupi hingað til og verður þar sannarlega ekki breyting á.
Veðurfræðingur segir ekki hægt að kvarta undan veðurspánni á morgun en mælir þó með því að Menningarnæturgestir klæði sig vel. Spáin líti með besta móti út fyrir þá sem ætla sér að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun.
Við erum öll svo dýrmæt og hvert eitt og einasta okkar skiptir máli, þó að stundum kunni okkur að líða eins og svo sé ekki. Þetta einstaka dýrmæti hvers okkar þýðir að hvert sjálfsvíg heggur stórt skarð í líf þeirra sem eftir standa og áhrifin ná langt út fyrir innsta hring hvers einstaklings.
Anna María Pálsdóttir ætlar næstu helgi að hlaupa sitt fyrsta hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu. Hún hleypur fyrir Hjálpartækjasjóð Sindra en hún hefur síðustu fimm ár sinnt liðveislu fyrir Sindra Pálsson. Fjölskylda Sindra safnar nú fyrir sérstakri útvistarkerru fyrir Sindra.
Forsetagæinn Björn Skúlason eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, hyggst hlaupa hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. Um er að ræða hans lengsta hlaup til þessa en hann safnar áheitum fyrir Píeta samtökin.
„Ég upplifði mig alltaf mjög eina. Það var enginn í sömu stöðu og ég,“ segir Ragna Guðfinna Maríudóttir. Sem barn var hún snemma komin í það hlutverk að bera ábyrgð á föður sínum sem glímir við geðrænan vanda. Faðirinn viðurkenndi aldrei greininguna og fékk aldrei faglega meðhöndlun sem gerði ungri dóttur hans erfitt fyrir.
Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) hefur sent inn umsókn, eftir að umsóknarfrestur rann út, um vottun Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ) á hálfu og heilu maraþoni í Reykjavíkurmaraþoninu sem fer fram þann 24. ágúst. Nær uppselt er í báðar keppnir. Þrátt fyrir að umsóknin hafi borist of seint verður hún tekin til afgreiðslu.
Sigurður Gunnsteinsson tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í ár þar sem hann hyggst hlaupa hálfmaraþon og safna áheitum fyrir SÁÁ í minningu sonardóttur sinnar, sem lést aðeins 26 ára gömul úr fíknisjúkdómi. Sigurður mun hlaupa í bol með mynd af sonardóttur sinni, hefur sjálfur farið í meðferð og þekkir baráttuna við sjúkdóminn af eigin raun.
„Það er svo stór og sjálfsagður partur af lífinu að eignast börn. Ég held að fæstir hugsi eitthvað sérstaklega út í að eiga kannski ekki möguleika á því, ekki fyrr en virkilega á reynir,“ segir Helga Jóhanna Oddsdóttir. Árið 2004 fékk hún langþráða ósk uppfyllta þegar tvíburasynir hennar Oddur Fannar og Tómas Ingi komu í heiminn - eftir átta ára langt frjósemisferli.
„Mér líður þúsund sinnum betur í dag en áður, og það er vegna þess að ég byrjaði að tala um hlutina,“ segir Pétur Elvar Sigurðsson en hann leitaði til Bjarmahlíðar fyrir fimm árum til að takast á við erfið mál úr fortíðinni.