Körfubolti

Bara ofurstjörnur úr NBA með hærra fram­lag en Tryggvi á EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason hefur verið stiga- og frákastahæstur í öllum þremur leikjum Íslands á EM.
Tryggvi Snær Hlinason hefur verið stiga- og frákastahæstur í öllum þremur leikjum Íslands á EM. vísir/hulda margrét

Aðeins fimm ofurstjörnur úr NBA-deildinni eru með hærra framlag að meðaltali í leik á Evrópumótinu í körfubolta en Tryggvi Snær Hlinason.

Tryggvi hefur verið besti leikmaður íslenska liðsins á EM og einn besti leikmaður mótsins. Í leikjunum þremur er hann með 26,7 framlagsstig að meðaltali. Þegar framlag er reiknað er allt það jákvæða sem leikmaður gerir þegar kemur að tölfræðinni (stig, fráköst, stoðsendingar, varin skot, stolnir boltar og svo framvegis) tekið saman og frá því er dregið allt það neikvæða sem leikmaður gerir (skot sem geiga, tapaðir boltar og svo framvegis).

Tryggvi er í 6. sæti á listanum yfir þá sem eru með flest framlagsstig að meðatali í leik á EM. Þeir sem eru fyrir ofan Tryggva eru engin smá nöfn. Það eru Slóveninn Luka Doncic, Finninn Lauri Markkanen, Serbinn Nikola Jokic, Grikkinn Giannis Antetokounmpo og Tyrkinn Alperen Sengun.

Allt eru þetta ofurstjörnur í NBA og Doncic, Jokic og Giannis meðal allra bestu leikmanna heims. Jokic og Giannis hafa báðir orðið NBA-meistarar og verið valdir verðmætustu leikmenn deildarinnar.

Tryggvi, sem leikur með Bilbao Basket á Spáni, er með 18,0 stig, 11,3 fráköst, 1,3 stoðsendingar, 1,0 stolinn bolta og 2,7 varin skot að meðaltali í leik á EM. Hann er hæstur í fráköstum og vörðum skotum á mótinu. 

Þá spilar Tryggvi langmest allra leikmanna að mótinu að meðaltali í leik, eða 37,5 mínútur. Næstur kemur Doncic með 33,8 mínútur. Tryggvi hefur hitt úr 71,4 prósent skota sinna á EM en aðeins Giannis er með betri skotnýtingu (74,2 prósent).

Flest framlagsstig á EM að meðaltali í leik

  1. Luka Doncic - 37
  2. Lauri Marakken - 33,7
  3. Nikola Jokic - 33,3
  4. Giannis Antetokounmpo - 31
  5. Alperen Sengun - 30
  6. Tryggvi Snær Hlinason - 26,7
  7. Deni Avdija - 25,7
  8. Jordan Lloyd - 25,3
  9. Dennis Schröder - 24,7
  10. Mateusz Ponitka - 23,7

Ísland er með sjötíu framlagsstig að meðaltali í leik á EM og er í 17. sæti af 24 liðum í þeim tölfræðiþætti. Tryggvi er langframlagshæstur í íslenska liðinu en næstur á eftir honum kemur Elvar Már Friðriksson með 11,3 framlagsstig.

Íslendingar hafa tapað öllum þremur leikjum sínum á EM. Næsti leikur þeirra er gegn Doncic og félögum hans í slóvenska liðinu. Þetta verður í annað sinn sem þessar þjóðir mætast á EM en þær gerðu það einnig á mótinu fyrir átta árum. Þá unnu Slóvenar öruggan sigur, 75-102. Doncic, sem var þá átján ára, skoraði þrettán stig í leiknum.


Tengdar fréttir

„Eins og að dómararnir hefðu veðjað á þennan leik“

„Það er alltaf ömurlegt þegar leikir ráðast á einhverju svona bulli,“ sagði körfuboltaþjálfarinn Benedikt Guðmundsson þegar dómararnir fengu að finna fyrir því í umræðum eftir tap Íslands gegn Póllandi á EM í körfubolta í gær.

Skýrsla Henrys: Rændir í gini ljónsins

Það er oftast hallærislegt að kenna dómurum um er þú tapar íþróttaleik en það er ekki annað hægt en að setja dómaratríóið í leik Íslands og Póllands undir smásjána.

„Hjartað rifið úr okkur“

Craig Pedersen, þjálfari íslenska landsliðsins, var ómyrkur í máli eftir leik og vandaði dómurum leiksins ekki kveðjunnar.

„Fannst tækifærið vera tekið af okkur“

Elvar Már Friðriksson var vonsvikinn í leikslok eftir svekkjandi tap gegn Póllandi í kvöld en að sama skapi stoltur af sínum mönnum. Hann er sannfærður um að Ísland hafi átt meira á tanknum en Pólland, en þar sem leikurinn kláraðist á vítalínunni fékk Ísland ekki tækifæri til að sýna það í verki.

„Þetta er bara gullfallegt“

Tryggvi Snær Hlinason, miðherji íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, var eðlilega súr og svekktur eftir tap liðsins gegn Pólverjum á Evrópumótinu í kvöld.

„Vont er þeirra ranglæti. Verra er þeirra réttlæti“

Ólafur Stefánsson, einn besti handboltamaður Íslands frá upphafi, hvetur hvern einasta íþróttamann hér á landi til að nota frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í körfubolta sem innblástur til að leggja meira á sig.

„Bíður í átta ár eftir svona móti og þetta eru vinnubrögðin“

Landsliðsfyrirliðinn, Ægir Þór Steinarsson, var eðlilega súr í leikslok þegar náð var á hann á viðtalssvæðinu í Katowice. Ísland var aftur grátlega nálægt því að sækja sigur en fengu ekki tækifæri til þess sökum nokkurra vafasamra dóma í lok leiksins gegn Póllandi sem tapaðist 84-75.

Uppgjör: Pólland - Ís­land 84-75 | Tækifærið á sigrinum hrifsað af Íslandi

Það er vel hægt að færa rök fyrir því að tækifæri Íslands á að vinna sinn fyrsta sigur á stórmóti í körfubolta hafi verið hrifsað af liðinu í lok leiksins gegn Póllandi. Pólverjar lokuðu sigrinum 84-75 en það er vel skiljanlegt að það sé óbragð í munni leikmanna og þjálfara liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×