Partey lýsti sig saklausan af ákærum um nauðgun Sindri Sverrisson skrifar 17. september 2025 11:02 Thomas Partey spilaði gegn Tottenham í gærkvöld og má spila fótbolta fram að réttarhöldunum á næsta ári. Getty/Marc Atkins Degi eftir að hafa spilað með Villarreal gegn Tottenham í Lundúnum í gærkvöld, í Meistaradeild Evrópu í fótbolta, mætti Thomas Partey í réttarsal í ensku höfuðborginni og lýsti sig saklausan af ákærum um nauðgun.
Partey hefur verið ákærður fyrir fimm nauðganir og eitt kynferðisbrot sem áttu að hafa átt sér stað árin 2021 og 2022. Brotin beindust gegn þremur konum. Á þessum árum var þessi 32 ára gamli leikmaður á mála hjá Arsenal og reglulega að spila í ensku úrvalsdeildinni. Thomas Partey mætti í réttarsal í dag og hafnaði öllum ásökunum.Getty/Ben Whitley Partey var ákærður fjórum dögum eftir að hann yfirgaf Arsenal í sumar, þegar samningur hans við félagið rann út í lok júní. Hann gekk svo í raðir Villarreal á Spáni. Eftir að hafa lýst sig saklausan í dag var Partey látinn laus gegn tryggingu fram að réttarhöldunum sem eiga að hefjast 2. nóvember á næsta ári, samkvæmt frétt BBC. Fram að þeim er honum frjálst að spila fótbolta en honum er þó skylt að láta lögreglu vita af öllum ferðalögum á milli landa með sólarhrings fyrirvara, auk þess sem hann má ekki hafa samband við hina meintu þolendur. Partey kom inn á sem varamaður á 78. mínútu gegn Tottenham í gærkvöld, í 1-0 tapi Villarreal.
Spænski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira