U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. september 2025 11:04 Skyndibitastaðurinn Metro hefur tekið algjöra U-beygju. Myndirnar eru úr fyrri skýrslu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Vísir/Samsett Eftir svarta skýrslu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í sumar hafa forsvarsmenn skyndibitastaðarins Metro tekið veitingastaðinn í gegn. Í sumar var slæmum aðbúnaði og almennum óþrifnaði staðarins lýst en mánuði seinna kom staðurinn út úr eftirliti án athugasemda.
Í ágústmánuði var greint frá slæmum aðbúnaði í húsnæði skyndibitastaðarins Metro við Suðurlandsbraut. Mygluvöxtur, óhreint eldhús og slitið leiksvæði tók á móti starfsmanni Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem framkvæmdi úttekt á staðnum í kjölfar kvörtunar um grun um matareitrun barns sem hafði borðað á staðnum. Alls voru 45 frávik skráð í fyrstu skýrslunni. Þann 9. september sneri starfsmaður eftirlitsins aftur til að athuga hvort brugðist hefði verið við athugasemdunum. Starfsmenn Metro höfðu heldur betur tekið á málinu og komst staðurinn í gegnum skoðun án athugasemda. Nýtt leiksvæði á leiðinni Aðbúnaður á leiksvæði staðarins var sérstaklega tekinn fyrir í fyrstu skýrslu eftirlitsins þar sem kvörtun barst um að leikhornið væri hættulegt börnum. Öryggisnet í kastalanum var tætt og því auðvelt að klifra upp á topp kastalans. Þá voru þar óvarðir ofnar sem börn að leik gátu brennt sig á og ónýtir boltar. Í nýju skýrslunni kemur fram að brugðist hefur verið við athugasemdunum og hefur leiktækið verið lagfært eins og kostur er. Hins vegar er ætlunin að skipta því út og hefur nýtt tæki verið pantað. Áætlað er að það verði komið í lok október. Virðast hafa farið í alþrif á staðnum Í eldhúsinu var einnig mörgu ábótavant. Til að mynda fannst mygluvöxtur á gólfi í kælinum, brotnar flísar voru undir ísvél staðarins og mikið var um sjáanleg óhreinindi. Húsnæðið og búnaðurinn var „verulega vanþrifið“ og kallað var eftir alþrifum á staðnum. Eftirlitið sem framkvæmt var nú í byrjun september var, líkt og áður kom fram, án allra athugasemda. Á einum mánuði fór því staðurinn úr 45 athugasemdum í engar.
Veitingastaðir Heilbrigðiseftirlit Heilbrigðismál Matur Reykjavík Neytendur Mest lesið Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Opin vinnurými: Starfsfólki líður illa og finnst erfitt að einbeita sér Atvinnulíf Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar Atvinnulíf Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira
Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar Atvinnulíf
Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar Atvinnulíf