Mætti tveimur mínútum of seint og var settur á bekkinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. september 2025 14:16 Marcus Rashford er byrjaður að finna fjölina sína hjá Barcelona. epa/Alejandro Garcia Hansi Flick, knattspyrnustjóri Barcelona, gefur engan afslátt þegar kemur að stundvísi. Það hefur komið í ljós á síðustu dögum.
Um síðustu helgi mætti Raphinha of seint á æfingu og var settur á bekkinn fyrir leik gegn Valencia í spænsku úrvalsdeildinni. Hann kom inn á sem varamaður og skoraði tvívegis í 6-0 sigri Börsunga. Í gær mætti Marcus Rashford svo of seint á æfingu fyrir leikinn gegn Getafe og Flick setti hann á bekkinn, jafnvel þótt enski landsliðsmaðurinn hafi skorað bæði mörk Barcelona í 1-2 sigri á Newcastle United í Meistaradeild Evrópu á fimmtudaginn. Samkvæmt heimildum ESPN var Rashford tveimur mínútum of seinn á æfinguna í gær en Flick gaf engan afslátt. Rashford kom samt inn á í leiknum gegn Getafe og lagði upp þriðja mark Barcelona fyrir Dani Olmo. Börsungar unnu 3-0 sigur. Olmo skoraði eitt mark og Ferran Torres tvö. Hinn 27 ára Rashford hefur komið að fjórum mörkum í síðustu þremur leikjum Barcelona; skorað tvö og gefið tvær stoðsendingar. Hann kom á láni til Katalóníuliðsins frá Manchester United. Barcelona mætir nýliðum Real Oviedo í spænsku úrvalsdeildinni á fimmtudaginn.
Spænski boltinn Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Fleiri fréttir Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Czarni - Breiðablik | Þungt verkefni í Póllandi Frankfurt - FH | Tekst FH-ingum aftur að hrella þær þýsku? Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Sjá meira