Jimmy Kimmel snýr aftur á skjáinn Eiður Þór Árnason skrifar 22. september 2025 19:47 Jimmy Kimmel hefur notið stuðnings hvaðan æva af eftir að þátturinn var tekinn úr loftinu. Skjáskot Grínistinn og þáttastjórnandinn Jimmy Kimmel mun snúa aftur á skjáinn með spjallþátt sinn Jimmy Kimmel Live! á morgun. Hlé var gert á framleiðslu þáttanna í síðustu viku eftir að ummæli Kimmels um viðbrögð hægri manna við morðinu á Charlie Kirk ollu usla.
Þátturinn var tekinn af skjánum í kjölfar þrýstings frá bandarískum yfirvöldum og reyndist ákvörðunin mjög umdeild. Lýstu gagnrýnendur yfir áhyggjum af því að aðgerðin kæmi til með að grafa undan málfrelsi í Bandaríkjunum og ríkisstjórn Donald Trumps Bandaríkjaforseta myndi halda áfram að beita sér gegn orðræðu sem væri þeim þyrnir í augum. Þættirnir eru framleiddir af og sýndir á ABC-sjónvarpsstöðinni bandarísku sem er í eigu The Walt Disney Company. Disney hefur nú gefið út að Kimmel muni snúa aftur á þriðjudag en hafði áður gefið út að hlé yrði gert á þáttunum um óákveðinn tíma. Jimmy Kimmel vildi ekki biðjast afsökunar á ummælum sínum, að sögn heimildarmanna THR.Getty/Phillip Faraone „Síðastliðinn miðvikudag tókum við ákvörðun um að stöðva framleiðslu þáttanna til að forðast að kynda undir spennu á tilfinningaþrungnum tíma í landinu okkar,“ segir í yfirlýsingu Walt Disney Company. „Þetta er ákvörðun sem við tókum vegna þess að okkur fannst sumar athugasemdirnar vera ótímabærar og þar af leiðandi ónærgætnar. Við höfum nýtt síðustu daga til að eiga í ígrunduðum samræðum við Jimmy og eftir þessi samtöl komumst við að þeirri niðurstöðu að þátturinn myndi snúa aftur á þriðjudag.“ The Hollywood Reporter greinir frá þessu. Yfir 430 bandarískar kvikmynda-, sjónvarps- og leikhússtjörnur, grínistar, leikstjórar og rithöfundar höfðu áður fordæmt ákvörðun Disney og lýst þessu sem „myrku augnabliki fyrir tjáningarfrelsi þjóðarinnar“. Þá kölluðu þær eftir því að Bandaríkjamenn myndu berjast fyrir stjórnarskrárvörðum réttindum sínum. Náðu ekki saman The Hollywood Reporter hefur eftir heimildarmönnum sínum að tveimur dögum eftir að Kimmel lét ummælin falla í þættinum á mánudag hafi hann ekki ætlað að biðjast afsökunar á þeim en í staðinn verja þau og segja þau „gróflega rangtúlkuð“ af MAGA-hreyfingu Trumps. Töldu stjórnendur Disney að þetta myndi einungis kynda undir reiðinni á hægri vængnum vestanhafs. Disney og ABC tilkynntu í kjölfarið á miðvikudag að hlé yrði gert á Jimmy Kimmel Live! um óákveðinn tíma. Á fimmtudag endaði fundur Kimmels og yfirmanna Disney í pattstöðu þar sem Kimmel vildi halda sig við fyrri fyrirætlanir um að verja sig án þess að biðjast afsökunar, að sögn The Hollywood Reporter. Sagði morðingjann einn af þeim Málið snýst um eftirfarandi ummæli sem Kimmel lét falla í þætti sínum á mánudag fyrir viku: „MAGA [Make America Great Again] gengið reynir af öllum mætti að einkenna þennan krakka sem myrti Charlie Kirk sem eitthvað annað en einn af þeim og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vinna sér inn pólitísk stig.“ Þar vísaði hann til morðsins á Charlie Kirk, bandarískum áhrifavaldi á hægri vængnum og bandamanni Donald Trumps Bandaríkjaforseta. Kirk var skotinn til bana á fjölmennum fundi í háskóla í Utah-ríki. Hótaði stjórnendum ABC Brendan Carr, forstjóri FCC, fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna, gagnrýndi ummæli Kimmel og gaf í skyn að eftirlitsstofnunin gæti gripið til aðgerða með því að hrófla við útsendingaleyfum stöðva sem reknar eru undir merki ABC. „Það sem fólk skilur ekki er að þeir sem senda út efni fá leyfi hjá okkur og því fylgir skylda að starfa í þágu almannahagsmuna. Þegar við sjáum hluti eins og þetta, sjáðu til, getum við gert hlutina á auðvelda mátann eða erfiða mátann.“ Fljótlega eftir þetta tilkynntu fyrirtækin Nexstar Media og Sinclair sem reka mikinn fjölda staðbundinna sjónvarpsstöðva undir merki ABC að spjallþáttur Kimmel yrði ekki sendur út á þeirra stöðvum. Bæði fyrirtækin hafa verið sökuð um að vera höll undir Trump og Repúblikanaflokkinn. Einnig stefnir Nexstar að umfangsmiklum samruna við annað fjölmiðlafyrirtæki sem krefst samþykkis áðurnefndrar fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna. Í kjölfar yfirlýsinga Nexstar Media og Sinclair gaf Disney út að hlé yrði gert á framleiðslu Jimmy Kimmel Live! um óákveðinn tíma og útsendingum þáttanna þar með hætt á landsvísu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Disney Bandaríkin Hollywood Morðið á Charlie Kirk Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Stjórnendur spjallþátta vestanhafs voru nokkuð þungir á brún vegna þess að þáttur Jimmys Kimmel var tekinn úr loftinu í vikunni en gerðu þrátt fyrir það stólpagrín að vendingunum og Donald Trump, forseta, þar sem þeir lofuðu hann í hástert, með mikilli kaldhæðni. 19. september 2025 10:09 Segir Fallon og Meyers næsta: „Gerið þetta NBC!!!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fagnaði því í nótt að forsvarsmenn Disney og sjónvarpsstöðvarinnar ABC, sem er í eigu Disney, hefðu tekið þá ákvörðun að hætta að sýna þátt Jimmy Kimmel í óákveðinn tíma, eftir að yfirmaður Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna (FCC), gaf til kynna að útsendingaleyfi gæti verið tekið af sjónvarpsstöðvum sem sýna þættina. 18. september 2025 10:13 Kimmel tekinn af dagskrá: Donald Trump grafi undan lýðræðinu Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður, og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður Morgunblaðsins, ræddu nýjustu vendingar vestanhafs eftir að vinsæll spjallþáttur var tekinn af dagskrá vegna ummæla þulsins um morðið á Charlie Kirk. 18. september 2025 20:47 Þáttur Kimmel af sjónvarpsskjánum um óákveðinn tíma Vinsæll spjallþáttur Jimmy Kimmel verður ekki sendur út um „óákveðinn tíma“ eftir ummæli hans um morðið á Charlie Kirk, bandarískum áhrifavaldi. 17. september 2025 23:21 Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira
Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Stjórnendur spjallþátta vestanhafs voru nokkuð þungir á brún vegna þess að þáttur Jimmys Kimmel var tekinn úr loftinu í vikunni en gerðu þrátt fyrir það stólpagrín að vendingunum og Donald Trump, forseta, þar sem þeir lofuðu hann í hástert, með mikilli kaldhæðni. 19. september 2025 10:09
Segir Fallon og Meyers næsta: „Gerið þetta NBC!!!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fagnaði því í nótt að forsvarsmenn Disney og sjónvarpsstöðvarinnar ABC, sem er í eigu Disney, hefðu tekið þá ákvörðun að hætta að sýna þátt Jimmy Kimmel í óákveðinn tíma, eftir að yfirmaður Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna (FCC), gaf til kynna að útsendingaleyfi gæti verið tekið af sjónvarpsstöðvum sem sýna þættina. 18. september 2025 10:13
Kimmel tekinn af dagskrá: Donald Trump grafi undan lýðræðinu Arndís Anna K. Gunnarsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi þingmaður, og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður Morgunblaðsins, ræddu nýjustu vendingar vestanhafs eftir að vinsæll spjallþáttur var tekinn af dagskrá vegna ummæla þulsins um morðið á Charlie Kirk. 18. september 2025 20:47
Þáttur Kimmel af sjónvarpsskjánum um óákveðinn tíma Vinsæll spjallþáttur Jimmy Kimmel verður ekki sendur út um „óákveðinn tíma“ eftir ummæli hans um morðið á Charlie Kirk, bandarískum áhrifavaldi. 17. september 2025 23:21