Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Samúel Karl Ólason skrifar 1. október 2025 16:04 Fregnir af bensínskorti hafa borist frá mörgum héruðum Rússlands og hagsmunasamtök eigenda bensínstöðva vara við því að ástandið sé alvarlegt. EPA/MAXIM SHIPENKOV Framleiðslugeta Rússa á olíu hefur dregist verulega saman og er það að miklu leyti vegna árása Úkraínumanna á olíuvinnslur og tengda innviði. Langan tíma gæti tekið að leysa vandamálið en fregnir af löngum röðum við bensínstöðvar verða sífellt algengari og bensínverð hefur hækkað mjög.
Rússneskir miðlar sögðu frá því í dag að undir lok september hafi framleiðslugetan dregist saman um 338 þúsund tonn af olíu á dag. Það eru um 38 prósent af allri framleiðslugetu Rússlands á olíu. Drónaárásir Úkraínumanna eru helsta ástæðan fyrir ástandinu en um sjötíu prósent af samdrættinum er til kominn vegna þeirra. Hin þrjátíu prósentin eru sögð til komin vegna bilana og annarra ástæðna. Talið er að viðgerðir gætu tekið langan tíma og hefur almennu viðhaldi á vinnslustöðvum víða verið frestað til að sporna gegn samdrættinum. Það gæti haft slæm áhrif til lengri tíma. Fregnir af vandræðum við olíuframleiðslu í Rússlandi hafa heyrst reglulega á undanförnum vikum og mánuðum, samhliða mikilli aukningu í árásum Úkraínumanna á vinnslustöðvar og olíuinnviði í Rússlandi. Sjá einnig: Nálægt því að draga úr flæðinu vegna drónaárása Yfirvöld í Rússlandi tilkynntu í gær að framlengja ætti útflutningsbann á bensíni og setja takmarkanir á sölu dísilolíu frá Rússlandi út árið. Markmiðið væri að koma stöðugleika á eldsneytismarkað í landinu. Fregnir af bensínskorti hafa orðið tíðar á undanförnum vikum og þá sérstaklega frá austurhluta Rússlands og hernumdum svæðum í Úkraínu, samkvæmt fólki sem hefur verið að fylgjast með þeim fregnum. Á Krímskaga má enginn kaupa meira en tuttugu lítra af eldsneyti, samkvæmt Kommersant. Updated map of the regions of Russia where there are shortages of gasoline or diesel and how early was it first reported. As always it's worse in the occupied territories. Added 5 new regions since last update as Russia prepares for gasoline imports. pic.twitter.com/VulGVpDpPy— Stanimir Dobrev (@delfoo) September 30, 2025 Á blaðamannafundi sem haldinn var í dag sagði Alexander Novak, aðstoðarforsætisráðherra, að takmarkanir á sölu eldsneytis úr landi yrðu felldar niður þegar framleiðsla færi aftur fram úr innlendri eftirspurn. Samkvæmt TASS fréttaveitunni sagði Novak einnig að stjórnvöld Rússlands hefðu tök á ástandinu og orkumálaráðuneytið ynni með ráðamönnum í öllum héruðum landsins til að tryggja að nægar birgðir væru til. Forsvarsmenn hagsmunasamtaka bensínstöðva í Rússlandi vöruðu þó við því á dögunum, í bréfi sem sent var til Novaks, að vegna samdráttar í framleiðslu, hækkandi bensínverðs og tafa á sendingum, væri mikil hætta á því að sjálfstætt reknar bensínstöðvar yrðu gjaldþrota í náinni framtíð. Kommersant hefur eftir forsvarsmönnum samtakanna að þegar væri búið að loka þó nokkrum slíkum bensínstöðvum. Eldur kviknaði í einni af stærri olíuvinnslustöðvum Rússlands í morgun. Ríkisstjóri héraðsins sagði að um slys væri að ræða en ekki árás og hafa engin myndbönd af drónum á sveimi þar verið í dreifingu á samfélagsmiðlum í dag, eins og gerist iðulega í slíkum árásum. /2. Fire on the territory of the Yaroslavl Oil Refinery pic.twitter.com/q2LapHjKGf— Special Kherson Cat 🐈🇺🇦 (@bayraktar_1love) October 1, 2025
Rússland Bensín og olía Innrás Rússa í Úkraínu Vladimír Pútín Úkraína Hernaður Tengdar fréttir Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Rúmum tveimur árum eftir dauða Jevgenís Prígósjín, rússnesks auðjöfurs og eiganda málaliðahópsins Wagner, hefur staða Rússa í Afríku versnað töluvert. Nýi málaliðahópur Rússa, Afríkudeildin, sem rekinn er af varnarmálaráðuneytinu hefur ekki skilað sama árangri og Wagner gerði á sínum tíma, hvorki með tilliti til hagnaðar eða áhrifa. 30. september 2025 10:37 NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Atlantshafsbandalagið og Rússland eiga „augljóslega“ í stríði. Þetta sagði Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, við blaðamenn í Moskvu í morgun. Stuðningur margra ríkja NATO við Úkraínu jafngilti að bandalagið væri í raun og veru stríð við Rússland. Það væri augljóst að stríðsástand ríkti. 15. september 2025 15:46 Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Úkraínumenn gerðu í dag flygildaárás á eina stærstu olíuvinnslustöð Rússlands. Haft er eftir rússneskum embættismönnum að eldur hafi kviknað út frá sprengingunni en að tjónið sé minniháttar. 13. september 2025 18:07 Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Donald Trump Bandaríkjaforseti segist tilbúinn að ráðast í þungar refsiaðgerðir gegn Rússlandi ef öll aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hætta að kaupa olíu af Rússlandi. Tyrkland er eitt af stærstu kaupendum rússneskrar olíu. 13. september 2025 16:40 Mest lesið Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Viðskipti innlent Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Viðskipti innlent Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Viðskipti innlent „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðskipti innlent Isavia gefur strandaglópum engin grið Viðskipti innlent Kaupfélagið á bak við risaviðskipti í Iceland Seafood Viðskipti innlent Búið að greiða laun og barnabætur Viðskipti innlent Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Viðskipti innlent Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á Atvinnulíf Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Burger King opnar fyrsta staðinn á Grænlandi Eigandinn hættir sem forstjóri Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Ben kveður Jerry Nálgast samkomulag um TikTok Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Sjá meira
Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Rúmum tveimur árum eftir dauða Jevgenís Prígósjín, rússnesks auðjöfurs og eiganda málaliðahópsins Wagner, hefur staða Rússa í Afríku versnað töluvert. Nýi málaliðahópur Rússa, Afríkudeildin, sem rekinn er af varnarmálaráðuneytinu hefur ekki skilað sama árangri og Wagner gerði á sínum tíma, hvorki með tilliti til hagnaðar eða áhrifa. 30. september 2025 10:37
NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Atlantshafsbandalagið og Rússland eiga „augljóslega“ í stríði. Þetta sagði Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, við blaðamenn í Moskvu í morgun. Stuðningur margra ríkja NATO við Úkraínu jafngilti að bandalagið væri í raun og veru stríð við Rússland. Það væri augljóst að stríðsástand ríkti. 15. september 2025 15:46
Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Úkraínumenn gerðu í dag flygildaárás á eina stærstu olíuvinnslustöð Rússlands. Haft er eftir rússneskum embættismönnum að eldur hafi kviknað út frá sprengingunni en að tjónið sé minniháttar. 13. september 2025 18:07
Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Donald Trump Bandaríkjaforseti segist tilbúinn að ráðast í þungar refsiaðgerðir gegn Rússlandi ef öll aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hætta að kaupa olíu af Rússlandi. Tyrkland er eitt af stærstu kaupendum rússneskrar olíu. 13. september 2025 16:40