Vladimír Pútín
1 2 3 4 5 6 … 11 ›
Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Augu umheimsins beinast nú að borginni Anchorage í Alaska þar sem fundur Trump og Pútín fer fram á morgun í Elmendorf-Richardson-herstöðinni . Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu og íbúa stolta af þeirri athygli sem borgin nýtur nú í heimspressunni. Erlent 14.8.2025 12:15
Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Yfirvöld í Noregi hafa komist að þeirri niðurstöðu að rússneskir tölvuþrjótar beri ábyrgð á árás á stíflu þar í landi í apríl. Yfirmaður norsku leyniþjónustunnar segir Rússland helstu ógnina sem steðji að Noregi en talsmaður utanríkisráðuneytis Rússlands gagnrýndi Norðmenn harðlega í dag fyrir meinta hervæðingu Svalbarða. Erlent 13.8.2025 18:33
„Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti í dag fundinum sem hann mun eiga með Vladimír Pútín, kollega sínum í Rússlandi, sem „þreifingafundi“. Þeir muni ræða „skipti á landsvæði“ milli Úkraínumanna og Rússa og lýsti hann einnig yfir vonbrigðum með Pútín í tengslum við friðarviðræður. Erlent 11.8.2025 22:31
Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna segir fund Selenskí Úkraínuforseta og Pútíns Rússlandsforseta í bígerð. Það sé spurning um hvenær en ekki hvort. Erlent 10.8.2025 21:04
Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og Rússlandi furðar sig á aðdraganda fyrirhugaðs leiðtogafundar forseta ríkjanna tveggja. Hann vonar að fundurinn reynist óþarfur, þar sem hann kunni að gera málstað Úkraínu ógagn frekar en nokkuð annað. Erlent 10.8.2025 15:25
Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Utanríkisráðherra segir vont til þess að hugsa að Rússar fái landsvæði í Úkraínu gegn vopnahléi. Hún treystir Bandaríkjaforseta til að koma á vopnahléi, en það sé mikilvægt að tryggður verði langvarandi friður á svæðinu. Erlent 9.8.2025 20:02
Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Donald Trump Bandaríkjaforseti og Vladímír Pútín Rússlandsforseti munu funda í Alaska föstudaginn 15. ágúst. Fyrr í kvöld sagði Trump að friðarsamkomulag fæli í sér skiptingu á landsvæðum. Erlent 8.8.2025 22:26
Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Rússar eru taldir líklegir til að gera á næstu dögum tilraun með nýja tegund stýriflauga sem getur bæði borið kjarnorkuvopn og er knúin af kjarnorku. Eldflaugin ber heitið „Burevestnik“ en er kölluð SSC-X-9 Skyfall á Vesturlöndum og hafa fregnir borist af því að skjóta eigi henni á loft á norðurslóðum. Erlent 8.8.2025 13:46
Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Donald Trump Bandaríkjaforseti segist reiðbúinn að hitta Vladímír Pútín Rússlandsforseta þrátt fyrir að sá siðarnefndi neiti að funda með Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Sú saga gekk að fundur leiðtoga stríðandi fylkinganna væri skilyrði fundar Trump og Pútín en svo virðist ekki vera. Erlent 7.8.2025 23:58
Neitar að hitta Pútín án Selenskís Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður þeirrar skoðunar að hann muni ekki funda með Vladimír Pútín, forseta Rússlands, án þess að Pútín hitti einnig Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Pútín sjálfur sagði í dag að það kæmi ekki til greina en nokkur óvissa ríkir um mögulegan fund Pútíns og Trumps. Erlent 7.8.2025 16:29
Fúlsaði við þriggja forseta fundi Ráðamenn í Rússlandi hafa staðfest að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætli að funda með Donald Trump, kollega hans í Bandaríkjunum. Fundurinn gæti farið fram strax í næstu viku. Steve Witkoff, sérstakur erindreki Trumps sem hitti Pútín í gær, lagði til að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sæti einnig fundinn en Pútín hafnaði því. Erlent 7.8.2025 10:11
Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hækkaði í dag tolla á vörur frá Indlandi um 25 prósent. Ku það vera vegna kaupa Indverja á olíu frá Rússlandi og en þegar tollarnir taka gildi verða tollar á Indland orðnir fimmtíu prósent. Erlent 6.8.2025 16:12
Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa ræst út tvo kjarnorkukafbáta á „viðeigandi svæði“ eftir að fyrrverandi forseti Rússlands lét „afar ögrandi“ ummæli falla á samfélagsmiðlum og bar Trump saman við forvera hans, hinn „syfjaða“ Joe Biden. Erlent 1.8.2025 18:26
„Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagðist í dag vonast eftir því að hægt væri að hefja friðarviðræður við Úkraínu. Hann gaf þó til kynna að vindurinn væri í seglum Rússa um þessar mundir og að hann væri alls ekki tilbúinn til að láta af umfangsmiklum kröfum Rússa. Erlent 1.8.2025 14:27
Gefa lítið fyrir afarkosti Trumps „Hin sértæka hernaðaraðgerð mun halda áfram.“ Þetta sagði Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, í morgun. Þá vísaði hann til ummæla Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, frá því í gær um að Pútín hefði tíu til tólf daga til að binda enda á innrásina í Úkraínu. Erlent 29.7.2025 14:31
Fækkar dögunum sem hann gaf Pútín: „Ég held ég viti þegar svarið“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist verulega vonsvikinn í garð Vladimírs Pútín, kollega síns í Rússlandi. Þeir hafi margsinnis talað saman og verið nærri því að koma á friði í Úkraínu en í hvert sinn hafi Pútín gert umfangsmiklar árásir á Úkraínu og gert út af við friðarviðleitnina. Erlent 28.7.2025 13:10
Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Sendinefnd Rússa er á leið til Istanbúl í Tyrklandi þar sem hún tekur þátt í nýrri umferð friðarviðræðna með fulltrúum Úkraínu. Væntingarnar eru litlar. Erlent 23.7.2025 13:58
Pútín lætur sér fátt um finnast Vladimír Pútín Rússlandsforseti er sagður ætla að halda áfram stríðsrekstri Rússa í Úkraínu þar til Vesturlönd taka þátt í friðarviðræðum á hans forsendum. Erlent 15.7.2025 17:57
Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar Rússum með „mjög þungum tollum“ ef ekki næst að semja um frið í Úkraínu innan 50 daga. Hyggst hann aðstoða Evrópuríki við að senda Úkraínumönnum fleiri vopn, þar á meðal Patriot-loftvarnarkerfin sem eru efst á óskalista Volodimírs Selenskís Úkraínuforseta. Erlent 14.7.2025 17:55
Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Keith Kellogg hershöfðingi í Bandaríkjaher og Sérstakur ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta kom til Úkraínu í morgun til skrafs og ráðagerða en búist er við því að rætt verði um frekari hernaðarstuðning fyrir Úkraínumenn og hertari refsiaðgerðir gegn Rússum. Erlent 14.7.2025 07:31
Er Trump að gefast upp á Pútín? Vladimir Pútín Rússlandsforseti virðist vera farinn að reyna á þolinmæði Donald Trump Bandaríkjaforseta en síðarnefndi sagði í gær að Pútín væri fullur af „kjaftæði“. Erlent 9.7.2025 06:50
Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Vladímír Pútín Rússlandsforseti rak samgönguráðherrann sinn í morgun. Engin skýring var gefin á brottrekstrinum en miklar raskanir urðu á flugsamgöngum í Rússlandi um helgina vegna drónaárása Úkraínumanna. Erlent 7.7.2025 09:21
Rússar líta ekki lengur á Bandaríkin sem sinn helsta óvin Rússar líta ekki lengur á Bandaríkin sem sinn helsta óvin, samkvæmt nýrri könnun, heldur telja þeir Evrópulöndin vera sína helstu ógn. Erlent 10.6.2025 13:55
Stærsta árásin á Kharkív hingað til Rússar gerðu í nótt umfangsmestu árásir þeirra á borgina Kharkív frá því innrás þeirra í Úkraínu hófst. Notast var við tugi dróna, hefðbundnar sprengjur sem varpað er úr lofti og að minnsta kosti eina eldflaug og eru að minnsta kosti þrír sagðir liggja í valnum í borginni. Tveir til viðbótar féllu í árásum á borgina Kherson í suðurhluta Úkraínu. Erlent 7.6.2025 08:01
Mun þingið fara fram hjá Trump? Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sagðist í gær styðja hertar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Áhugi fyrir slíkum aðgerðum er mikill í þinginu og þá sérstaklega í öldungadeildinni en hingað til hefur Donald Trump, forseti, ekki viljað taka það skref. Erlent 3.6.2025 12:55
Með sömu óásættanlegu kröfurnar Rússneskir erindrekar lögðu í gær fram sömu umfangsmiklu kröfurnar til Úkraínumanna og þeir hafa gert áður. Þessar kröfur hafa Úkraínumenn áður sagt vera óásættanlegar þar sem þær geri ríkið berskjaldað gegn annarri innrás og að Úkraína verði í raun leppríki Rússlands. Um uppgjöf væri að ræða. Erlent 3.6.2025 07:22
Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Úkraínumenn hafa gert umfangsmiklar árásir með smáum sjálfsprengidrónum á að minnsta kosti tvo herflugvelli í Rússlandi og mögulega fjóra. Úkraínumenn segjast hafa grandað tugum flugvéla, eins og langdrægnum sprengjuflugvélum og eftirlitsvélum, sem eru Rússum gífurlega mikilvægar. Yfirlýsingar Úkraínumanna eru studdar af myndefni í dreifingu á samfélagsmiðlum eystra. Erlent 1.6.2025 12:14
„Hann er að leika sér að eldinum!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður ósáttur við Vladimír Pútín, kollega sinn í Rússlandi, vegna ítrekaðra árása Rússa á borgir og bæi Úkraínu. Þá segist hann íhuga frekari refsiaðgerðir gegn Rússlandi en það hefur hann sagt áður án þess að grípa til aðgerða. Trump taldi að gott samband sitt við Pútín myndi duga til. Erlent 27.5.2025 16:11
Norðurlöndin standi saman vörð um alþjóðalög Forsætisráðherrar Norðurlandanna, auk leiðtoga Álandseyja, Færeyja Grænlands, komu saman í Finnlandi i dag. Þar var farið yfir öryggis- og varnarmál á Norðurlöndum, málefni Grænlands og ásælni forseta Bandaríkjanna í eyjuna, efnahagsmál auk ýmissa annarra mála. Innlent 26.5.2025 14:28
Mestu árásirnar hingað til, aftur Rússar gerðu í gærkvöldi og í nótt sína umfangsmestu dróna- og eldflaugaárás á Úkraínu hingað til. Notast var við 355 dróna, bæði sjálfsprengjudróna og tálbeitur, auk níu stýriflauga. Var það í kjölfar umfangsmikillar árásar á Kænugarð og önnur héruð þar sem notast var við dróna og stýriflaugar. Erlent 26.5.2025 11:32
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur