Daníel meiddist við myndbandsgerð fyrir HSÍ Árni Jóhannsson skrifar 12. október 2025 20:15 Daníel Þór Ingason fyrir miðju í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Andri Marinó ÍBV naut ekki krafta Daníels Þórs Ingasonar þegar liðið tapaði fyrir Haukum með 10 marka mun fyrr í dag í Olís deild karla. Daníel varð fyrir meiðslu þegar HSÍ vann að gerð myndbands fyrir markaðsefni deildarinna.
Handkastið.net greindi frá þessu í kvöld en Daníel staðfesti tildrög meiðslanna við miðilinn. Daníel átti þá að taka þátt í leik sem átti að vera tekinn upp þar sem hann átti að hoppa yfir annan leikmann ÍBV án þess að vita að leikmaðurinn myndi beygja sig undan hoppinu. Daníel tók þá byltu og lenti harkalega á hægri öxl sinni á parketi íþróttahússins og meiddist alvarlega. Daníel sagði í samtali við Handkastið að hann væri búinn að fara í myndatöku og biði nú eftir niðurstöðum úr henni. Hann gerði ráð fyrir því að vera frá í einhvern tíma án þess að vita nákvæmlega hversu lengi hann myndi vera frá. Erlingur Richardson var að vonum ekki par sáttur við það að leikmaður hans væri meiddur og hvernig meiðslin bar að. Hann var til viðtals hjá mbl.is þar sem hann sagði meðal annars að meiðsli Daníels hefðu líklega verið áfall fyrir hópinn hjá ÍBV sem væri mögulega ein af ástæðum fyrir stærð tapsins gegn Haukum í dag. „Við þurfum bara að sjá hvað kemur út úr niðurstöðum, HSÍ hlýtur að sjá til þess að hann fái rétta meðhöndlun og sem fyrst,“ sagði Erlingur um aðkomu HSÍ að meiðslum þessa lykilmanns í varnarleik ÍBV.
Olís-deild karla ÍBV Mest lesið Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira