Andrés prins afsalar sér öllum titlum í kjölfar ásakana Eiður Þór Árnason skrifar 17. október 2025 18:15 Andrés prins mun ekki lengur bera titilinn hertoginn af York. Getty/Steve Parsons Andrés prins hefur afsalað sér öllum titlum og heiðursmerkjum, þeirra á meðal hertogatitlinum. Yfirlýsingin kemur í kjölfar umfjöllunar um vinskap hans við látna barnaníðinginn Jeffrey Epstein og meintan kínverskan njósnara.
Hann mun áfram vera prins í ljósi þess að hann er sonur Elísabetar II Bretlandsdrottningar. Sky News greinir frá þessu en talið er að Sarah Ferguson, fyrrverandi eiginkona hans, muni sömuleiðis hætta að vera titluð hertogaynjan af York. „Í viðræðum við konunginn og nánustu fjölskyldu mína höfum við komist að þeirri niðurstöðu að áframhaldandi ásakanir um mig beina athyglinni frá starfi hans hátignar og konungsfjölskyldunnar,“ sagði Andrés prins í yfirlýsingu. „Ég hef ákveðið, líkt og ég hef alltaf gert, að setja skyldu mína gagnvart fjölskyldu minni og landi í fyrsta sæti. Ég stend við þá ákvörðun mína fyrir fimm árum að hætta að sinna opinberum störfum,“ bætir Andrés við. „Með samþykki hans hátignar teljum við að ég verði nú að ganga skrefinu lengra. Ég mun því ekki lengur nota titil minn eða þau heiðursmerki sem mér hafa verið veitt.“ „Eins og ég hef áður sagt, þá neita ég staðfastlega ásökununum gegn mér.“ BBC greinir frá því að dætur Andrésar, Beatrice og Eugenie, muni halda sínum titlum og Andrés muni ekki eyða jólunum með konungsfjölskyldunni í Sandringham. Samt sem áður er búist við að hann muni áfram búa á heimili sínu Royal Lodge í Windsor þar sem hann sé með leigusamning til ársins 2078. Sendi pósta á Epstein Aukinn þrýstingur hefur verið á Andrés prins eftir að fleiri fréttir komu fram um samband hans við barnaníðinginn Jeffrey Epstein og samband hans við meintan kínverskan njósnara. Andrés hefur verið gagnrýndur harðlega vegna tengsla sinna við kynferðisbrotamanninn og hafa ríkt spurningar um hvenær hann hafi í raun slitið samskiptum við hann. Sjá einnig: Ítarlegar frásagnir af kynnum við „Andy“ í nýrri bók Giuffre Í frægu viðtali við BBC Newsnight sagði Andrés að hann hefði slitið á öll tengsl við Epstein eftir að þeir voru myndaðir saman í New York í desember 2010. Þrátt fyrir þetta hafa komið fram tölvupóstar sem sendir voru mánuðum síðar og benda til þess að þeir hafi haldið tengslum. „Vertu í nánu sambandi og við munum leika okkur meira fljótlega!“ sagði til að mynda í einum þeirra. Njósnari sagður trúnaðarvinur Fram kom í lok síðasta árs að hálfleynilegur öryggisdómstóll í Bretlandi hafi bannað kínverskum viðskiptamanni að snúa aftur til landsins á grundvelli þjóðaröryggishagsmuna. Manninum hefur verið lýst sem trúnaðarvini Andrésar og hann sakaður um að vera kínverskur njósnari. Andrés prins sagði eftir úrskurðinn að hann hafi hætt samskiptum við manninn að ráðgjöf breskra ráðamanna og staðhæfði að þeir hefðu aldrei rætt viðkvæm málefni. Prinsinn hefur einnig verið sakaður um að hafa misnotað hina 38 ára gömlu Virginu Giuffre þegar hún var táningur. Prinsinn hefur ávallt neitað sök í málinu. Giuffre kærði Andrés prins fyrir nauðgun og sakaði Andrés um að hafa brotið á sér í íbúð Ghislaine Maxwell, sem var náin samstarfskona Jeffrey Epstein. Hún sakaði einnig Epstein um að hafa ítrekað brotið á sér. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bretland Kóngafólk Mál Andrésar prins Karl III Bretakonungur Mál Jeffrey Epstein Tengdar fréttir Andrés semur við Giuffre Andrés prins hefur gert samkomulag við Virginiu Giuffre, sem hefur sakað hann um að misnota sig kynferðislega þegar hún var sautján ára gömul. Giuffre segist hafa verið fórnarlamb mannsals og segir Andrés hafa nauðgað sér þrisvar sinnum á heimilum auðjöfursins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein. 15. febrúar 2022 16:36 Andrés prins kærður fyrir nauðgun Andrés prins, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi. Kærandi í málinu er Virginia Giuffre, sem segir brot Andrésar gegn sér hafa átt sér stað þegar hún var sautján ára gömul. 9. ágúst 2021 22:34 Andrés prins hættir opinberum störfum Elísabet II Bretlandsdrottning hefur samþykkt ósk Andrésar prins um að hann hætti að sinna skyldum sínum fyrir konungsfjölskylduna um ófyrirsjáanlega framtíð. 20. nóvember 2019 00:00 Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Sjá meira
Andrés semur við Giuffre Andrés prins hefur gert samkomulag við Virginiu Giuffre, sem hefur sakað hann um að misnota sig kynferðislega þegar hún var sautján ára gömul. Giuffre segist hafa verið fórnarlamb mannsals og segir Andrés hafa nauðgað sér þrisvar sinnum á heimilum auðjöfursins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein. 15. febrúar 2022 16:36
Andrés prins kærður fyrir nauðgun Andrés prins, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi. Kærandi í málinu er Virginia Giuffre, sem segir brot Andrésar gegn sér hafa átt sér stað þegar hún var sautján ára gömul. 9. ágúst 2021 22:34
Andrés prins hættir opinberum störfum Elísabet II Bretlandsdrottning hefur samþykkt ósk Andrésar prins um að hann hætti að sinna skyldum sínum fyrir konungsfjölskylduna um ófyrirsjáanlega framtíð. 20. nóvember 2019 00:00