Körfubolti

„Getum verið fjandi góðir“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jóhann Þór Ólafsson er þjálfari Grindvíkinga.
Jóhann Þór Ólafsson er þjálfari Grindvíkinga. Vísir/Anton

„Ég verð að segja að ég bjóst ekki við þessu,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindvíkinga, eftir 35 stiga sigur liðsins gegn Val í kvöld, 55-90.

„Ég bjóst við Völsurunum talsvert sterkari, en það verður ekki tekið af okkur að við vorum góðir. Sérstaklega á varnarhelmingi vallarins.“

„Við vorum feykilega góðir, sérstaklega varnarlega. Við höldum þeim í 55 stigum og náðum held ég mest 38 stiga forskoti. Þannig ég er bara mjög ánægður með mitt lið í kvöld.“

En hvað gerði Grindvíkinga svona góða varnarlega í kvöld?

„Við vorum bara hreyfanlegir og það er lítið um augljósa galla á liðinu. Þegar við erum svona samstilltir þá getum við bara verið fjandi góðir varnarlega. Við sýndum það líka á móti Álftanesi þar sem við unnum góðan sigur. Svo snýst þetta líka stundum um hvað við ætlum og hvert við erum að stefna. Það vinnst á varnarleik. Varnarleikurinn er það sem við erum að einblína á.“

Grindvíkingar eru nú búnir að vinna fimm af fyrstu fimm leikjum tímabilsins, en Jóhann segir að liðið þurfi að halda sig á jörðinni.

„Við erum bara með báða fætur á jörðinni. Við erum ekki einu sinni komnir inn í nóvember. Við erum bara rétt að leggja af stað út og erum ekki einu sinni búnir að leggja línuna. Við erum bara ennþá á útstími og það á enn eftir að leggja línuna, draga og fara í land. Við erum varla komnir af stað.“

„En það er alltaf meira gaman að vinna en að tapa og það gefur manni gott bragð í munninn. Það er það góða í þessu.“

Að lokum var Jóhann spurður út í Isaiah Coddon, sem sat á varamannabekk Grindvíkinga í kvöld, en hann virðist vera að ganga í raðir liðsins.

„Okkur vantar bara skrokka. Við erum búnir að vera í sambandi við hann í einhvern hálfan mánuð. Mér sýnist hann vera búinn að yfirgefa Njarðvík og þetta er eitthvað sem við erum bara að skoða. Við erum bara ellefu akkúrat núna þannig það má lítið út af bregða. Það er í rauninni það sem við erum að hugsa. Auðvitað fær hann sína sénsa ef hann stendur sig og ef þetta gengur upp. Það er það sem við erum að hugsa með þessu,“ sagði Jóhann að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×