Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. nóvember 2025 23:18 Messi gerði ekki boð á undan sér en var boðinn velkominn heim. instagram / @leomessi Lionel Messi heimsótti Nývang, heimavöll Barcelona, í gærkvöldi og birti myndir af sér með tilfinningaríkum texta. Enginn háttsettur aðili hjá Barcelona vissi hins vegar af heimsókninni.
Messi er mættur til Spánar í verkefni með argentínska landsliðinu og ákvað að líta við á sínum gamla heimavelli í leiðinni. Hann lét ekki vita af heimsókninni en mætti með föruneyti sínu og smellti nokkrum myndum, sem hann birti á Instagram og skrifaði undir: „Í gærkvöldi sneri ég aftur á stað sem ég sakna af öllu mínu hjarta. Hér var ég ótrúlega hamingjusamur, þúsund sinnum létuð þið mér líða eins og hamingjusamasta manni heims þegar ég var hér… Ég vona að einn daginn geti ég snúið aftur, ekki bara til að kveðja sem leikmaður, sem ég fékk aldrei tækifæri til að gera.“ View this post on Instagram Diario Sport segir frá því að enginn háttsettur aðili hjá Barcelona hafi vitað af heimsókninni, fyrr en Messi birti myndirnar á Instagram. Honum hafi verið hleypt inn á svæðið af verkamönnum sem vinna að endurnýjun Nývangs. Félagið var þó fljótt að bregðast við og aðeins tveimur tímum eftir að Messi birti myndirnar hafði Barcelona deilt þeim og skrifað: „Velkominn heim.“ Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur líka viðrað hugmyndina nýlega um að halda kveðjuleik fyrir Messi. „Þegar leikvangurinn er tilbúinn að taka við 105.000 áhorfendum væri það frábær leið til að vígja völlinn en það veltur auðvitað allt á honum [Messi]“ sagði forsetinn Laporta. Messi fékk engan kveðjuleik fyrir Barcelona þegar hann neyddist til að yfirgefa félagið árið 2021 vegna fjárhagsvandræða. Hann er nú á leiðinni í æfingaleik gegn Angóla með argentínska landsliðinu, sem er búið að tryggja sér sæti á HM 2026.
Spænski boltinn Bandaríski fótboltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Landsliðskona í Val Handbolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Rodri genginn í raðir Barcelona Sjá meira