Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi Samúel Karl Ólason skrifar 13. nóvember 2025 15:23 Frá Pokrovsk í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa tekið hluta borgarinnar og sent þangað fjölda hermanna. Getty/Kostiantyn Liberov, Libkos Óttast er að Úkraínumenn séu að gera sömu mistök og þeir hafa gert áður, með því að reyna að halda ákveðnum bæ eða borg of lengi. Sérfræðingar og einhverjir yfirmenn í úkraínska hernum eru sagðir hafa áhyggjur af því að fall borgarinnar Pokrovsk sé orðið óhjákvæmilegt og að áframhaldandi vörn borgarinnar muni reynast dýrkeypt.
Úkraínumenn gætu viðurkennt ósigur í Pokrovsk, hörfað og reynt að gera það með skipulegum hætti og þannig mögulega dregið úr mannfalli. Hitt sem þeir geta gert, og hafa gert áður, er að berjast um hvert einasta hús með því markmiði að tefja sigur Rússa eða jafnvel stöðva hann, og að fella fleiri rússneska hermenn. Í minnst tveimur tilfellum í stríðinu hafa Úkraínumenn valið seinni kostinn. Það var í Bakmút og Avdívka, þar sem margir telja að verri kosturinn hafi verið valinn. Eins og fram kemur í grein New York Times, þar sem fram kemur að sérfræðinar og einhverjir yfirmenn í úkraínska hernum hafi áhyggjur af stöðunni, vilja margir í Úkraínu meina að með því að reyna að halda þessum borgum eins lengi þeim er mögulegt þvingi þeir Rússa til að verja fjölda hermanna og miklu magni hergagna til að reka Úkraínumenn á brott og veiki þá þannig fyrir orrustur framtíðarinnar. Þá hefur baráttan pólitískar tengingar þar sem ráðamenn í Kænugarði vilja ekki að ráðamenn í Kreml geti notað fall borga í pólitískum tilgangi. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti úkraínska hermenn í Pokrovsk fyrr í þessum mánuði.AP/Forsetaembætti Úkraínu Nota veðrið til að komast hjá drónum Rússar hafa varið gífurlegu púðri í að reyna að ná tökum á Pokrosvk, sem er í Dónetskhéraði í austurhluta Úkraínu. Úkraínumenn stjórna áfram nokkuð stórum hluta héraðsins en Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur lagt sérstaka áherslu á að hernema Dónetsk og Lúhansk, sem saman mynda Donbassvæðið svokallaða. Um eitt og hálft ár er síðan Rússar hófu sóknina að Pokrovsk. Sjá einnig: Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Hún hefur gengið mjög hægt en tekið kippi, ef svo má segja, á síðustu mánuðum. Það var svo í seinni hluta júlí sem rússneskum hermönnum tókst fyrst að sækja fram inn í Pokrovsk og var útlit fyrir að borgin væri nálægt því að falla í hendur Rússa. Síðan þá hefur þrýstingurinn á Úkraínumenn aukist jafnt og þétt og sérstaklega með versnandi veðri í haust og í vetur, eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi. Þá var þykk þoka yfir Pokrovsk og Rússar notuðu tækifærið til að senda fjölda hermanna inn í borgina. It has been reported as an entry of Russian troops into Pokrovsk. pic.twitter.com/vSRb3pol4t— WarTranslated (@wartranslated) November 11, 2025 Hvað verður um hermennina í Myrnohrad? Þegar kemur að því að Úkraínumenn séu mögulega að halda vörnum of lengi í Pokrovsk verður að taka tillit til borgarinnar Myrnohrad, sem liggur austur af Pokrovsk. Þar halda úkraínskir hermenn enn til en óljóst er hve margir þeir eru. Rússneskir herbloggarar hafa á undanförnum dögum haldið því fram að Rússar hafi verið að sækja fram í borginni en staðan þykir nokkuð óljós. Falli Pokrovsk verða þeir alfarið umkringdir en Rússar hafa verið að gera umfangsmiklar loftárásir á borgina með stærðarinnar svifsprengjum. Video of another Russian FAB-3000 (or 1500) UMPK strike on Myrnohrad.https://t.co/IWj7Jtl3tp https://t.co/S5iEmpZw5u pic.twitter.com/CH5Y2EdknU— Rob Lee (@RALee85) November 12, 2025 Rob Lee, sem á tístið hér að ofan, vinnur hjá bandarísku hugveitunni Foreign Policy Research Institute, en i samtali við New York Times segir hann að Úkraínumenn hafi áður reynt að halda borgum of lengi. Þeir hafi reynt það eftir að aðstæður verjenda borganna versnuðu til muna og ómögulegt var fyrir þá að verjast Rússum með hagkvæmum hætti. Það er að segja, að Úkraínumenn missi of marga hermenn, miðað við það hve marga rússneska hermenn þeir fella. Rússar eiga mun auðveldar með að fylla upp í raðir sínar en Úkraínumenn, sem hafa lengi átt í basli vegna manneklu á víglínunni. Þegar borginn Avdívka féll í hendur Rússa í febrúar í fyrra enduðu Úkraínumenn á að því að hörfa í tiltölulega mikilli óreiðu. Þá þurftu þeir að skilja særða hermenn eftir en Rússar voru síðar meir sakaðir um að hafa tekið þessa hermenn af lífi. Gætu hörfað og tekið sér betri stöður Í samtali við NYT segir yfirmaður í úkraínska hernum að Úkraínumenn eigi undir högg að sækja þegar kemur að átökum í byggðum eins og Pokrovsk. Auðveldara sé fyrir rússneska hermenn að fela sig fyrir drónum og marga menn þurfi til að mynda stöðuga víglínu. Þá séu Úkraínumenn í sérstaklega slæmri stöðu þegar kemur að notkun svifsprengja, eins og í myndböndunum hér að ofan. Eina slíka þurfi til að rústa heilu fjölbýlishúsunum, noti Úkraínumenn þau til varna. Yfirmaður þessi sagði að mun hentugra yrði fyrir Úkraínumenn að hörfa úr borginni og taka upp betri varnarstöður. Elta uppi úkrínska drónaflugmenn Vörn Pokrovsk er talin hafa komið töluvert niður á Úkraínumönnum hvað varðar dróna. Reynslumiklir drónaflugmenn eru sagðir hafa fallið í markvissum árásum rússneskra drónaflugmanna sem hafa komið sér fyrir í Pokrovsk og þar nærri. Financial Times segir frá því að ákveðin stefnubreyting hafi orðið hjá Rússum, þar sem þeir leggi meiri áherslu á að finna úkraínska drónaflugmenn og fella þá með drónum en að leita uppi hermenn á víglínunni. Það hefur komið niður á Úkraínumönnum sem hafa lagt mun meiri áherslu á notkun dróna, til að vega upp á móti hermannaskorti á víglínunni.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Hernaður Vladimír Pútín Tengdar fréttir Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Tino Chrupalla, annar af æðstu leiðtogum flokksins Valkostur fyrir Þýskaland eða AfD, segir Þýskalandi ekki stafa nokkur ógn af Rússlandi Vladimírs Pútín. Það sama segir hann þó ekki um Pólland. Churpalla telur að Þýskalandi gæti stafað ógn af Póllandi. 13. nóvember 2025 10:09 Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti hefur látið dómsmálaráðherrann Herman Halushchenko og orkumálaráðherrann Svitlönu Grynchuk fjúka en bæði hafa verið ásökuð um aðild að umfangsmiklu spillingarmáli. 13. nóvember 2025 08:08 Nýtt spillingarmál skekur Úkraínu Forsvarsmenn sjálfstæðrar andspillingarrannsóknarstofnunar Úkraínu, sem kallast NABU, segjast rannsaka umfangsmikið spillingarmál í orkugeira ríkisins. Rannsóknin er meðal annars sögð snúa að meintum umfangsmiklum mútugreiðslum og fjársvikum sem tengjast ríkisfyrirtæki sem rekur þrjú kjarnorkuver. 11. nóvember 2025 10:40 Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Erlent Fleiri fréttir Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Sjá meira
Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Tino Chrupalla, annar af æðstu leiðtogum flokksins Valkostur fyrir Þýskaland eða AfD, segir Þýskalandi ekki stafa nokkur ógn af Rússlandi Vladimírs Pútín. Það sama segir hann þó ekki um Pólland. Churpalla telur að Þýskalandi gæti stafað ógn af Póllandi. 13. nóvember 2025 10:09
Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti hefur látið dómsmálaráðherrann Herman Halushchenko og orkumálaráðherrann Svitlönu Grynchuk fjúka en bæði hafa verið ásökuð um aðild að umfangsmiklu spillingarmáli. 13. nóvember 2025 08:08
Nýtt spillingarmál skekur Úkraínu Forsvarsmenn sjálfstæðrar andspillingarrannsóknarstofnunar Úkraínu, sem kallast NABU, segjast rannsaka umfangsmikið spillingarmál í orkugeira ríkisins. Rannsóknin er meðal annars sögð snúa að meintum umfangsmiklum mútugreiðslum og fjársvikum sem tengjast ríkisfyrirtæki sem rekur þrjú kjarnorkuver. 11. nóvember 2025 10:40