Líkamsárásir og grunur um íkveikju í kjallara Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. nóvember 2025 08:04 Einn gisti fangageymslu í morgun. Vísir/Einar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einn í gærkvöldi eða nótt sem grunaður er um líkamsárás og eignaspjöll. Lögregla var kölluð til þegar slagsmál brutust út á salerni á skemmtistað í miðborginni en við athugun reyndist handtekni eftirlýstur í tengslum við annað mál.
Þetta kemur fram í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar en þar greinir einnig frá tilkynningu um aðra líkamsárás sem sögð er í rannsókn. Lögregla hafði einnig afskipti af einstakling sem er grunaður um að hafa verið að prófa hurðarhúna. Var hann látinn laus. Þá var tilkynnt um rúðubrot og innbrot í fyrirtæki og eru þau mál bæði í rannsókn. Afskipti voru höfð af fjölda ökumanna á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars sjö sem voru ekki með ljósin í lagi. Þá voru skráningarmerki fjarlægð af sjö bifreiðum. Lögreglan segir einnig í yfirlitinu að grunur leiki á íkveikju eftir að eldur kom upp í kjallararými á umráðasvæði lögreglustöðvar 2, sem er í Hafnarfirðinum. Slökkvistarf hafi gengið vel og reykræst í kjölfarið. Ekki er farið nánar út málið í tilkynningu lögreglu, eins og hvar í Hafnarfirðinum eldurinn kom upp, en líklegt má telja að um sé að ræða sama eldsvoða og greint var frá í gærkvöldi á Völlunum, þar sem eldur blossaði upp í fjölbýli við Einivelli. Fjöldi slökkviliðsmanna var þá ræstur út en eldurinn reyndist þó ekki eins mikill og búist hafi verið við í fyrstu. Að sögn lögreglu er málið nú í rannsókn.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Sjá meira