Handbolti

Sjö ný­liðar í stóra EM-hópnum hans Snorra

Sindri Sverrisson skrifar
Bjarki Már Elísson er reynslumesti útileikmaðurinn í 35 manna hópnum en er í afar harðri samkeppni um sæti í lokahópnum fyrir EM.
Bjarki Már Elísson er reynslumesti útileikmaðurinn í 35 manna hópnum en er í afar harðri samkeppni um sæti í lokahópnum fyrir EM. VÍSIR/VILHELM

Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson hefur valið þá 35 leikmenn sem mögulegt er að kalla í á EM karla í handbolta í janúar. Sjö leikmenn eru á listanum sem aldrei hafa spilað A-landsleik.

EM fer fram í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og byrjar Ísland á því að spila í riðlakeppni í Kristianstad í Svíþjóð, með Ungverjalandi, Póllandi og Ítalíu. Tvö liðanna komast áfram í milliriðla í Malmö.

Snorri mun síðar í þessum mánuði tilkynna EM-hópinn sinn en þeir sem eru á listanum hér að neðan, og verða ekki í EM-hópnum, eru þeir einu sem verður mögulegt að kalla í á meðan á mótinu stendur.

Ísland hefur svo leik 16. janúar í Svíþjóð.

Leikmennirnir í 35 manna hópnum eru þessir:

Markmenn:

  • Aron Rafn Eðvarðsson, Haukar (84/6)
  • Björgvin Páll Gústavsson, Valur (284/26)
  • Einar Baldvin Baldvinsson, Afturelding (0/0)
  • Ísak Steinsson, Drammen (3/0)
  • Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (71/2)

Aðrir leikmenn:

  • Andri Már Rúnarsson, Erlangen (4/4)
  • Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen (104/109)
  • Arnór Snær Óskarsson, Valur (4/2)
  • Benedikt Gunnar Óskarsson, Kolstad (5/1)
  • Bjarki Már Elísson, Veszprém (126/419)
  • Bjarni Ófeigur Valdimarsson, KA (0/0)
  • Blær Hinriksson, Leipzig (0/0)
  • Dagur Gautason, Arendal (0/0)
  • Einar Þorsteinn Ólafsson, Hamburg (24/7)
  • Elliði Snær Viðarsson, Gummersbach (61/134)
  • Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (21/24)
  • Elvar Örn Jónsson, Magdeburg (90/205)
  • Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg (72/159)
  • Haukur Þrastarsson, Rhein-Neckar Löwen (45/63)
  • Janus Daði Smárason, Pick Szeged (98/176)
  • Jóhannes Berg Andrason, Holsterbro (0/0)
  • Jón Bjarni Ólafsson, FH (0/0)
  • Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg (37/72)
  • Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (29/91)
  • Óðinn Þór Ríkharðsson, Kaddetten Schaffhausen (55/165)
  • Ómar Ingi Magnússon, Magdeburg (91/328)
  • Reynir Þór Stefánsson, Melsungen (1/2)
  • Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (85/230)
  • Stiven Tobar Valencia, Benfica (21/25)
  • Sveinn Jóhannsson, Chambéry (17/26)
  • Teitur Örn Einarsson, Gummersbach (45/44)
  • Tryggvi Þórisson, Elverum (0/0)
  • Viggó Kristjánsson, Erlangen (70/215)
  • Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (105/48)
  • Þorsteinn Leó Gunnarsson, Porto (18/36)

Eins og sjá má eru sjö leikmenn í hópnum sem ekki hafa spilað A-landsleik. Það eru markvörðurinn Einar Baldvin Baldvinsson og útileikmennirnir Bjarni Ófeigur Valdimarsson, Blær Hinriksson, Dagur Gautason, Jóhannes Berg Andrason, Jón Bjarni Ólafsson og Tryggvi Þórisson.

Björgvin Páll Gústavsson er sem fyrr reynslumesti leikmaður hópsins, með 284 A-landsleiki samkvæmt yfirliti HSÍ, og 26 mörk í þeim leikjum. Bjarki Már Elísson kemur næstur með 126 leiki en hann er líkt og síðustu misseri, í harðri samkeppni um stöðu í vinstra horninu, við Orra Frey Þorkelsson og Stiven Tobar Valencia.

Þetta verður fyrsta stórmót Íslands eftir að fyrirliðinn Aron Pálmarsson lagði skóna á hilluna í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×