Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. desember 2025 08:27 Tyler Robinson mætti fyrir dómara í gær. Getty/Rick Egan Tyler Robinson, 22 ára, sem hefur verið ákærður fyrir að myrða íhaldssama aðgerðasinnan Charlie Kirk í september síðastliðnum, mætti fyrir dómara í gær.
Til umfjöllunar var beiðni lögmanna Robinson um að upptöku- og myndavélar yrðu bannaðar í dómsalnum á meðan réttarhöldunum stendur. Ekkja Kirk og bandalag fjölmiðla þrýstu á að réttarhöldin yrðu opin og gagnsæ. Dómarinn tók afstöðu með síðarnefndu. Robinson á yfir höfði sér dauðarefsingu ef hann verður fundinn sekur en hann hefur ekki tekið afstöðu til ákærunnar enn sem komið er, það er að segja hvort hann lýsir sig sekan eða saklausan. Robinson hefur ekki tekið afstöðu til ákærunnar.Getty/Rick Egan Robinson var handtekinn eftir að hafa játað fyrir föður sínum að hafa myrt Kirk. Faðir hans hvatti hann til að gefa sig fram við lögreglu, sem hann og gerði. Faðir Robinson, móðir og bróðir voru í dómsalnum í gær. Málið gegn Robinson hefur alið af sér ótal samsæriskenningar, sem hafa farið sem eldur í sinu í netheimum. Fremst í flokki hefur verið áhrifavaldurinn Candace Owens, sem hefur meðal annars sakað ekkju Kirk og samtök hans Turning Point USA, um að hafa eitthvað óhreint í pokahorninu. Owens, sem hefur verið kærð af Emmanuel Macron Frakklandsforseta og eiginkonu hans fyrir rógburð, telur Robinson ekki hafa staðið einan að morðinu. Today on the show: -Erika Kirk GOES OFF on “conspiracy theorists” (read: me) Will this strategy work on the general public? -We learn about what Erika told Bari Weiss about those pesky Egyptian planes. And to be honest, it’s weird. Join us LIVE! https://t.co/uY3fQZ9O1i— Candace Owens (@RealCandaceO) December 10, 2025
Morðið á Charlie Kirk Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira