Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Freyja Þórisdóttir skrifar 27. október 2026 20:21 Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á kjörseðlinum sé í raun spurt hvort kjósendur telji hann bera ábyrgð á því að ekki hefði tekist að afstýra árás Hamas 7. október 2023. Getty Metfjöldi Ísraela gekk að kjörborðinu í dag en reiknað var með því að ríflega sjö milljónir manns greiddu atkvæði. Miðað við fyrstu útgönguspár mun hvorki fylking Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra né stjórnarandstaðan ná þeim 61 þingsætum sem þarf til að mynda meirihluta á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun katörsku fréttaveitunnar Al Jazeera en þar segir einnig að samkvæmt ísraelsku sjónvarpsstöðinni Channel 12 sé stjórnarandstöðunni spáð 52 þingsætum en fylkingu Netanyahus fimmtíu þingsætum. Flokkum araba sé samanlagt spáð 18 þingsætum. Metkjörsókn Talið er að um 70 þúsund Ísraelar, búsettir erlendis, hafi komið heim til að kjósa og um hálf milljón manna mun greiða atkvæði sitt í fyrsta sinn. Þá var kjörsókn komin upp í sem nam um 74 prósentum, sem er met, tveimur klukkstundum áður en kjörstaðir lokuðu, eftir því sem fram kemur í umfjöllun Al Jazeera. Helsti áskorandi og andstæðingur Netanjahú er Gadi Eisenkot, fyrrverandi yfirmaður ísraelska hersins. Nýr miðjuflokkur hans, Yashar, fær 22 sæti miðað við útgönguspárnar en Likud, flokkur Netanjahú, tveimur fleiri eða 24 sæti. Síðustu kannanir sem birtar voru fyrir kosningar voru mjög samstíga. Þær bentu allar til þess að Yashar-flokkur Eisenkot myndi naumlega hafa betur. Leikur á hnífsegg Skortur á skýrum sigurvegara er einnig í samræmi við kannanir síðustu vikna sem spáðu því að ótvíræð niðurstaða væri ólíkleg. Þessar fyrstu spár benda til þess að á næstu dögum og vikum muni flokkar og leiðtogar þeirra semja sín á milli í tilraun til að tjasla saman nægum stuðningi til að mynda ríkisstjórn, mögulega með stuðningi flokka undir forystu Araba, sem hafa almennt ekki átt aðild að stjórnarsamstarfi. Bæði Netanjahú og Eisenkot gætu lýst yfir sigri og biðlað til Isaacs Herzog forseta um að fá fyrsta tækifærið til stjórnarmyndunar, er fram kemur í umfjöllun The Times of Israel um málið. Það skilji jafnframt eftir þann möguleika að hvorki Netanjahú né andstæðingum hans takist að mynda stjórn. Í því tilviki gæti Ísrael þurft að kjósa aftur og Netanjahú sæti þá áfram sem starfandi forsætisráðherra. Það yrði endurtekning á árunum 2019 til 2022, þegar fimm kosningar voru haldnar í landinu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Ísrael Kosningar í Ísrael Tengdar fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Ísraelar ganga að kjörborðinu á morgun, þriðjudaginn 27. október, í fyrstu þingkosningunum frá árás Hamas 7. október 2023 og blóðugum átökunum sem fylgt hafa í kjölfarið. 26. október 2026 20:54 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Ísraelar ganga að kjörborðinu á morgun, þriðjudaginn 27. október, í fyrstu þingkosningunum frá árás Hamas 7. október 2023 og blóðugum átökunum sem fylgt hafa í kjölfarið. 26. október 2026 20:54