Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. desember 2025 20:50 Byggingastjórinn ehf. sér um fasteignaskoðun. Vísir/Egill Aðalsteinsson Neytendastofa hefur lagt dagsektir á Byggingastjórann ehf. fyrir að bjóða upp á verðskrá á heimasíðu sinni, Fasteignaskoðun, án þess að gefa upp virðisaukaskatt. Talið er að verðskráin villi fyrir neytendum.
Málið hófst í júní þegar Neytendastofa hafði samband við forsvarsmenn Byggingastjórans ehf., sem rekur vefsíðuna Fasteignaskoðun.is, og settu út á að á verðskrá vefsíðunnar væru öll verð án virðisaukaskatts. Ekkert svar barst frá forsvarsaðilum við bréfi Neytendastofu og ítrekunum sem sendar voru 23. júlí og 6. ágúst. Í ágúst fékk stofnunin svar þess efnis að verið væri að vinna að gerð nýrrar heimasíðu og þegar hún væri tilbúin yrði sú gamla tekin niður. Áætlað var að vinnunni yrði lokað í september eða október. „Á seljanda hvílir afdráttarlaus skylda til að veita upplýsingar um endanlegt söluverð og skal verðið innihalda virðisaukaskatt og önnur opinber gjöld. Birting verðskráar án virðisaukaskatts, líkt og gert er á heimasíðu Fasteignaskoðunar, samræmist því ekki þeim kröfum sem gerðar eru til seljanda,“ segir í úrskurði Neytendastofu sem var undirritaður þann 10. desember. Sé ekki búið að leiðrétta verðskránna innan tveggja vikna frá undirritun, 24. desember, þarf Byggingastjórinn ehf. að greiða þrjátíu þúsund krónur dag hvern þar til farið hefur verið að ákvörðun Neytendastofu.
Neytendur Fasteignamarkaður Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira