Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. desember 2025 15:42 Pétur og Berglind eru orðin ansi þreytt á þjófunum. Hjónin Pétur Gautur og Berglind Guðmundsdóttir hafa enn einu sinni orðið fyrir barðinu á þjófum. Í þetta sinn tóku þeir jólatré sem stóð fyrir utan vinnustofu Péturs á horni Snorrabrautar og Njálsgötu. Þjófnaðurinn mun líklega bíta þjófinn í rassinn því á trénu er að finna tvenns konar óværur: einitítu og asparglyttu.
Berglind Guðmundsdóttir greindi frá nýjasta þjófnaðinum á Facebook-síðunni „Hlúum að portinu“ fyrr í dag. „Þessu hýra jólatré var stolið í gær fyrir utan vinnustofu á horni Snorrabrautar og Njálsgötu á opnunartíma. Jólatrésfóturinn var tekin en serían slitin í sundur. Ég sjálf ræktaði þetta tré sem lenti þarna utandyra þar sem það er með óværu svokallaða einitítu og bjöllutegund sem kölluð er asparglytta,“ skrifar Berglind í færslunni. „Það verður því fjör á Fróni fyrir þann sem hefur þetta á stofugólfinu hjá sér um jólin og títan og glyttan fer á stað í hitanum. Svona er karmað, hver vill annars hafa stolið jólatré á stofugólfinu hjá sér um jólin?“ Aldrei tekin málverk Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hjónin verða fyrir barðinu á óprúttnum þjófum en einu sinni hefur verið brotist inn í sumarbústað þeirra og tvisvar áður verið brotist inn á vinnustofu Péturs. Síðast gerðist það um miðjan september og stálu þjófarnir þá Apple-tölvu, Seagull-gítar, Sony-hátalara, nótnastandi, hljóðnema og hundrað ára gamalli silfurskírnarskál. Pétur Gautur listmálari er landsmönnum mörgum vel kunnugur.vísir/ívar Í hvert skipti voru málverk Péturs þó látinn vera og sagði hann í kvöldfréttum Sýnar að það lægi við að hann tæki því persónulega. „Lyklaboxið var opið. Það var búið að spenna það upp eða einhver sem vissi númerið. Hér var allt út um allt. Búið að sparka hundamatnum um allt gólf og það hefur bara gerst því þeir voru að flýta sér og voru að hlaupa. Síðan fórum við bara að sjá að þetta vantar, þetta vantar og hvað gerðist hér??“ sagði Pétur um þjófnaðinn í kvöldfréttum. Tjónið nam þá allt að milljón króna en tilfinningalegu áhrifin væru líka mikil. Óþægilegt væri að vinna á stað sem væri reglulega brotist inn í. Það sem meira er þá ákvað Pétur eftir síðasta skipti að koma upp myndavélakerfi. „Nú er bara lykillinn í buxnavasanum. Nú er ekkert lyklabox. Nú fara myndavélakerfi hérna út um allt og í sumarbústaðnum líka. Það fer ekki mýfluga hérna inn nema við vitum af því,“ sagði Pétur í fréttinni sem sjá má hér að neðan:
Lögreglumál Reykjavík Jól Tengdar fréttir Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Þrisvar hefur verið brotist inn hjá landsþekktum myndlistarmanni sem segir að nú sé endanlega búið að spilla vinnurýminu fyrir honum. Í hvert skipti voru listaverk hans látin vera og segir hann liggja við að hann taki því persónulega. 15. september 2025 22:01 Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Fleiri fréttir Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Sjá meira
Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Þrisvar hefur verið brotist inn hjá landsþekktum myndlistarmanni sem segir að nú sé endanlega búið að spilla vinnurýminu fyrir honum. Í hvert skipti voru listaverk hans látin vera og segir hann liggja við að hann taki því persónulega. 15. september 2025 22:01