Sektað um hundruð þúsunda fyrir nikótínauglýsingar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. desember 2025 20:21 SH Import ehf. var sektað um fjögur hundruð þúsund krónur. Vísir/Lýður Valberg Neytendastofa hefur gert SH Import ehf., sem á verslunina Piknik, að greiða fjögur hundruð þúsund króna sekt fyrir að fjarlægja ekki nikótínauglýsingar innan tilskylds tíma. Fyrirtækið hefur áður verið sektað um tvö hundruð þúsund krónur fyrir nikótínauglýsingar.
Neytendastofa sektaði fyrirtækið um tvö hundruð þúsund krónur þann 19. júní 2024 fyrir að auglýsa nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Í úrskurðinum kom fram að fyrirtækið hefði fjórar vikur til að fjarlægja allt slíkt markaðsefni. Í lok maí árið 2025 hafði Neytendastofa aftur samband við fyrirtækið þar sem þau höfðu orðið vör við að enn væru uppi myndmerki sem auglýstu nikótínvörur, bæði utan á verslunum, á forsíðu vefverslunarinnar og á Instagram-síðum þeirra. Tæpum tveimur vikum síðar svöruðu forsvarsmennirnir og sögðu að allar slíkar auglýsingar hefðu verið fjarlægðar og allar verslanir endurmerktar. Neytendastofa óskaði eftir ljósmyndum til staðfestingar, en fengu ekki svar fyrr en nokkrum vikum síðar, þá búin að ítreka beiðnina. Í ljós kom að auglýsingarnar sem höfðu verið á verslunum Piknik og Bitans höfðu verið fjarlægðar en á vefsíðu félagsins var búið að setja hvítan bakgrunn yfir myndmerki fyrirtækisins. Bakgrunnurinn reyndist vera gagnsær og myndmerkið því enn sýnilegt. Þar sem að auglýsingar SH Import höfðu verið fjarlægðar mun síðar en þær fjórar vikur sem það hafði árið 2024 var þeim gert að greiða fjögur hundruð þúsund króna sekt.
Neytendur Nikótínpúðar Rafrettur Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira