Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. desember 2025 08:05 Hundruð tóku þátt í viðburði við Bondi-strönd í gær, þegar brimbrettakappar réru með höndunum út á sjó á brettum sínum og mynduðu hring til heiðurs þeim sem létust í árásinni. Getty/Audrey Richardson Stjórnvöld í Ástralíu hafa tilkynnt um umfangsmiklar breytingar á skotvopnalögum í kjölfar skotárásarinnar á Bondi-strönd á sunnudag, þar sem fimmtán voru myrtir.
Samkvæmt BBC er um að ræða viðamestu breytingar á löggjöfinni frá Port Arthur-árásinni árið 1996, þegar 35 voru myrtir af Martin Bryant. Hinn 24 ára Naveed Akram hefur verið ákærður fyrir morðin á Bondi-strönd. Faðir hans Sajid, sem einnig tók þátt í árásinni, var skotinn til bana. Tillögur ríkisstjórnarinnar fela meðal annars í sér takmarkanir á fjölda skotvopna sem einstaklingur má eiga en Sajid átti sex byssur og þar af voru fjórar notaðar í skotárásinni. Erlendir miðlar segja að daglegt líf sé að komast aftur í fastar skorður á Bondi-strönd eftir harmleikinn síðustu helgi.Getty/Cameron Spencer „Við vitum að annar hryðjuverkamannanna var með skotvopnaleyfi og átti sex byssur, þrátt fyrir að búa í miðju úthverfi Syndey. Það er engin ástæða fyrir mann í þeirri stöðu að eiga svona mörg skotvopn,“ sagði forsætisráðherrann Anthony Albanese í morgun. Þá verða fleiri byssur bannaðar og ríkisborgararéttur forsenda skotvopnaleyfis. Stjórnvöld hyggjast einnig ráðast í umfangsmikil endurkaup á skotvopnum, þar sem einstaklingum verður greitt fyrir að skila inn vopnum. Þar á meðal verða nýlega bönnuð og ólögleg skotvopn. Gert er ráð fyrir að það takist að taka hundruð þúsund skotvopna úr umferð með þessum hætti. Alls er talið að um fjórar milljónir skotvopna séu nú í umferð í Ástralíu.
Ástralía Skotvopn Hryðjuverkaárás á Bondi-strönd í Sydney Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira