Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Atli Ísleifsson skrifar 23. desember 2025 13:45 Alls mætti viðskiptavinurinn í fimm skipti til húðflúrarans og í klukkutíma í senn. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Húðflúrara hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini sínum 280 þúsund krónur eftir að hann fór frá hálfkláruðu verki og sagðist hættur störfum. Viðskiptavinurinn var búinn að greiða fyrir verkið en hafði einungis fengið dökkan bakgrunn flúraðan á allan handlegginn og útlínur fugls á hálsi en bæði voru verkin ófullgerð.
Þetta kemur fram í úrskurði kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Þar eru málsatvik rakin en viðskiptavinurinn leitaði til húðflúrarans til að láta flúra á bak sitt, háls og handlegg. Viðskiptavinurinn greiddi húðflúraranum alls 380 þúsund krónur í fjórum millifærslum á um eins árs tímabili – frá nóvember 2023 til október 2024. Við meðferð málsins sagði viðskiptavinurinn að fyrsta millifærslan – 100 þúsund krónur – hafi verið vegna húðflúrs á bakinu en þær tvær næstu – 80 þúsund og 100 þúsund – vegna húðflúra á hálsi og handlegg. Síðasta millifærslan, 100 þúsund krónur, hafi svo verið framkvæmd að ósk húðflúrarans þar sem hann sagðist þurfa að kaupa nýja spjaldtölvu til að geta lokið við húðflúrin. Mætti fimm sinnum Alls mætti viðskiptavinurinn í fimm skipti til húðflúrarans og í klukkutíma í senn. Á einhverjum tímapunkti varð svo ómögulegt að fá tíma og fékk viðskiptavinurinn þá þær upplýsingar að húðflúrarinn væri hættur störfum. „Að sögn [viðskiptavinarins] séu húðflúr á hálsi og handlegg hans hálfkláruð og hafi [húðflúrarinn] aldrei byrjað að húðflúra bak [viðskiptavinarins],“ segir í úrskurðinum. Þarna hafi viðskiptavinurinn óskað eftir fullri endurgreiðslu, auk 80 þúsund króna vegna myndavélar sem viðskiptavinurinn hafi selt húðflúraranum. Húðflúrarinn varð hins vegar ekki við þeim beiðnum þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir. Tvær ljósmyndir Við meðferð málsins brást húðflúrarinn ekkert við og skilaði hvorki inn andsvörum né gögnum. Viðskiptavinurinn lagði hins vegar fram tvær ljósmyndir sem nefndarmenn telja sýna að húðflúrarinn hafi horfið frá hálfloknu verki. „Á fyrri ljósmyndinni má sjá að [húðflúrarinn] hefur aðeins flúrað dökkan bakgrunn á allan handlegg [viðskiptavinarins] án þess að hefja flúrun hans að öðru leyti. Á síðari ljósmyndinni verður ráðið að [húðflúrarinn] hafi flúrað útlínur fugls á hálsi [viðskiptavinarins] sóknaraðila,“ segir í nefndinni. Bæði séu húðflúrin ófullgerð. Nefndin telur að af framlögðum gögnum verði talið að viðskiptavinurinn eigi rétt á endurgreiðslu á kaupverði þjónustunnar, 280 þúsund krónur. Nefndin vísaði hins vegar frá kröfu viðskiptavinarins um endurgreiðslu vegna myndavélarinnar.
Húðflúr Neytendur Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran Viðskipti innlent Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Viðskipti innlent Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Innkalla Íslandsnaut hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira