„Hann verður alltaf númer eitt“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. janúar 2026 13:30 Gian van Veen lítur mikið upp til Michael van Gerwen. Gian van Veen hefur spilað stórkostlega á HM í pílukasti og er kominn upp fyrir samlanda sinn, Michael van Gerwen, á heimslistanum.
Gian van Veen vann öruggan 5-1 sigur gegn Luke Humphries í gær og mætir Gary Anderson í undanúrslitunum í kvöld. Hann byrjaði HM í tíunda sæti heimslistans en er kominn upp í þriðja sætið. Með sigrinum í gær stökk Hollendingurinn upp fyrir gangandi goðsögnina van Gerwen. „Mér finnst sturlað að segja það upphátt, þriðja sætið á heimslistanum“ sagði van Veen og fór fögrum orðum um van Gerwen. „Ég veit hvað Michael hefur afrekað síðustu þrettán ár og fyrir mér verður hann alltaf númer eitt í Hollandi. Sama hvað listarnir segja. Á blaði er ég kannski kominn fram úr Michael en fyrir mér á ég langt í land, ég veit að ég er góður en ég er ekki í sama klassa og Michael. Hann hefur unnið 158 mót, ég hef unnið tvö. Svo lengi sem hann spilar verður hann besti Hollendingurinn“ sagði van Veen hógvær. Michael van Gerwen hefur átt erfitt ár, bæði í pílukastinu og persónulega lífinu. Hann byrjaði árið 2025 á því að tapa úrslitaleik HM gegn Luke Littler og tókst síðan ekki að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni, á sama tíma og hann gekk í gegnum erfiðan skilnað eftir framhjáhald æskuástarinnar. Hann datt síðan út í sextán manna úrslitum á HM skömmu fyrir áramót. „Við vitum öll hvað hann hefur gengið í gegnum á árinu, en að vera enn í fjórða sæti heimslistans segir mikið um hans gæði. Þegar hann er upp á sitt besta vinnur hann hvern sem er“ sagði van Veen.
Pílukast Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Fleiri fréttir Tileinkaði Úkraínu sigurinn Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Besta gengi Ítala á risamóti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Sótti Freyr of marga Íslendinga til Brann? Fær verðlaun sem bæði Messi og Ronaldo fengu á sínum tíma Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Einn sá besti færir sig um set Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Sjá meira