Annar eigandi skemmtistaðarins í Sviss í haldi Lovísa Arnardóttir skrifar 10. janúar 2026 08:49 Ættingjar og vinir minntust þeirra sem létust á minningarathöfn í sýningar- og ráðstefnumiðstöðinni Martigny Expo (CERM) í Martigny í Sviss í gær. Vísir/EPA Jacques Moretti, annar tveggja eigenda Le Constellation, bars í Crans-Montana í svissnesku Ölpunum, er nú í gæsluvarðhaldi. Hann, og eiginkona hans, eru grunuð um manndráp af gáleysi, líkamsmeiðingar af gáleysi og íkveikju af gáleysi vegna elds sem kviknaði á barnum á nýársnótt. Fjörutíu eru látin og fleiri en hundrað slösuð, flest táningar.
Svissnesk yfirvöld hafa staðfest að alls hafi 40 látist, flestir á tánings- og tvítugsaldri, sá yngsti 14 ára. Flest þeirra látnu eru frá Sviss, Frakklandi og Ítalíu. Að auki slösuðust 116, þar af 83 sem enn eru í meðferð á sjúkrahúsi vegna alvarlegra brunasára. Jacques og Jessica Moretti, eigendur barsins, eru til rannsóknar vegna manndráps af gáleysi. Jacques Moretti var handtekinn í gær og er í gæsluvarðhaldi. Svissneskir saksóknarar sögðu að Jacques Moretti, sem er franskur ríkisborgari, væri í hættu á að flýja land. Hann og eiginkona hans, Jessica, sem er einnig frönsk, eru grunuð um manndráp af gáleysi, líkamsmeiðingar af gáleysi og íkveikju af gáleysi. Í frétt Guardian segir að hjónin hafi keypt barinn árið 2015 og gert hann upp. Þau neiti allri sök og sögðu í yfirlýsingu í vikunni að þau væru „niðurbrotin og yfirbuguð af sorg“ en lofuðu „fullu samstarfi“ við rannsóknina. Kviknaði líklega út frá stjörnuljósum í kampavínsflösku Fram hefur komið að eldurinn kviknaði í troðfullum kjallara barsins eftir að stjörnuljósum sem fest voru við kampavínsflöskur var haldið of nálægt lofti sem talið er að hafi verið klætt með hljóðeinangrandi froðu. Rannsóknin beinist að endurbótum sem gerðar voru á barnum, slökkvikerfum og flóttaleiðum, auk fjölda fólks í byggingunni þegar eldurinn kviknaði. Fólk kom saman við dómkirkjuna í Lausanne til að minnast þeirra sem létust í brunanum. Vísir/EPA Þá greindi Nicolas Féraud, bæjarstjóri Crans-Montana, frá því fyrr í vikunni að engar öryggisskoðanir hefðu verið gerðar á staðnum síðan 2019. Hann gat ekki útskýrt hvers vegna árleg skoðun hefði ekki farið fram. Í frétt Guardian segir að lögmenn sem koma fram fyrir hönd fjölskyldna þeirra sem létust eða slösuðust í harmleiknum hafi sakað rannsakendur um að vinna ekki nógu hratt að því að tryggja mikilvæg sönnunargögn. Sem dæmi hafi Romain Jordan og Ronald Asmar, lögmenn hjá lögmannsstofunni Merkt í Genf, fullyrt að eigendur barsins virðist hafa gert Instagram- og Facebook-reikninga sína óvirka og í leiðinni „eytt myndum og myndböndum sem hefðu getað nýst rannsókninni“. Haft er eftir Jordan í frétt Guardian að allir í Sviss hafi orðið fyrir persónulegum áhrifum af þessum harmleik. „Fyrsta stig þessa harmleiks er að sjá ung líf enda á þennan hátt, eða slasast og bera ör að eilífu,“ sagði hann. „Síðan skilur maður fljótt að það gerðist kannski vegna mannlegra mistaka … og það versta er að yfirvöld voru kannski ekki að fylgjast með. Þetta leggst saman í óskiljanlega martröð, sem er erfitt að sætta sig við.“ Fólk kom víða saman um allt Sviss í gær og horfðu sumir á minningarathöfnina á stórum skjá úti. Vísir/EPA Fram kemur í frétt Guardian að frá því að eldsvoðinn átti sér stað hafi þúsundir bara, veitingastaða og næturklúbba verið skoðaðir í Crans-Montana og nærliggjandi bæjum, auk þess sem nýjar öryggisráðstafanir hafi verið kynntar í Vaud-kantónu, þar sem Lausanne er staðsett. Lausanne er í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Genf. Gosbrunnurinn í Genf, Le Jet d'Eau, var litaður litum Valais kantónunnar á meðan minningarathöfninni stóð. Vísir/EPA Guy Parmelin forseti Sviss sagðiatburðinn einn mesta harmleik í sögu þjóðarinnar og lýsti yfir fimm daga þjóðarsorg. Þá var fórnarlamba brunans einnig minnst í gær og haldin minningarathöfn í bæ nálægt Crans-Montana að viðstöddum helstu embættismönnum Evrópu, þar á meðal Emmanuel Macron, forseta Frakklands, og Sergio Mattarella, starfsbróður hans á Ítalíu. Frá hægri til vinstri á myndinni má sjá Sergio Mattarella, forseta Ítalíu, Emmanuel Macron, forseta Frakklands, Hinrik stórhertogi af Lúxemborg, Bart De Wever, forsætisráðherra Belgíu, og Robertu Metsola, forseti Evrópuþingsins, viðstödd opinbera minningarathöfn í sýningar- og ráðstefnumiðstöðinni Martigny Expo (CERM) í Martigny í Sviss í gær. Vísir/EPA
Sviss Ítalía Frakkland Eldsvoði á skemmtistað í Sviss á nýársnótt Tengdar fréttir Slapp út úr eldhafinu en fór aftur inn til að bjarga kærustu sinni Tahirys Dos Santos, nítján ára leikmaður franska fótboltaliðsins Metz, sem brenndist illa í brunanum á barnum í Sviss sýndi mikla hetjudáð þetta kvöld og fórnaði sér til að bjarga öðrum. 5. janúar 2026 06:31 Heiðraði fórnarlömb brunans í heimabænum: „Við skíðuðum fyrir þau“ Camille Rast stóð uppi sem sigurvegari í fyrstu alþjóðlegu skíðakeppninni sem haldin var eftir banvæna brunann sem varð í heimabæ hennar í Sviss á gamlárskvöld. 4. janúar 2026 09:39 Hafa borið kennsl á sextán til viðbótar Lögreglu hefur tekist að bera kennsl á lík sextán til viðbótar sem létust í eldsvoða á skemmtistað á skíðasvæðinu Crans-Montana á gamlárskvöld. Fjórtán ára svissnesk stúlka er meðal látinna. 4. janúar 2026 09:26 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Sjá meira
Slapp út úr eldhafinu en fór aftur inn til að bjarga kærustu sinni Tahirys Dos Santos, nítján ára leikmaður franska fótboltaliðsins Metz, sem brenndist illa í brunanum á barnum í Sviss sýndi mikla hetjudáð þetta kvöld og fórnaði sér til að bjarga öðrum. 5. janúar 2026 06:31
Heiðraði fórnarlömb brunans í heimabænum: „Við skíðuðum fyrir þau“ Camille Rast stóð uppi sem sigurvegari í fyrstu alþjóðlegu skíðakeppninni sem haldin var eftir banvæna brunann sem varð í heimabæ hennar í Sviss á gamlárskvöld. 4. janúar 2026 09:39
Hafa borið kennsl á sextán til viðbótar Lögreglu hefur tekist að bera kennsl á lík sextán til viðbótar sem létust í eldsvoða á skemmtistað á skíðasvæðinu Crans-Montana á gamlárskvöld. Fjórtán ára svissnesk stúlka er meðal látinna. 4. janúar 2026 09:26