Barn flutt á slysadeild með áverka eftir flugelda Lovísa Arnardóttir skrifar 11. janúar 2026 07:33 Barnið var flutt á slysadeild vegna áverka sinna. Vísir/Vilhelm Lögregla á Stöð 4 var kölluð til í vegna flugeldaslyss í gær. Fram kemur í dagbók lögreglunnar hafði þar barn slasað sig og verið sárþjáð þegar lögregla kom á vettvang. Áverkar voru á hönd barnsins sem fært var í sjúkrabifreið og á bráðamóttöku til frekari skoðunar.
Stöð 4 sinnir verkefnum í Grafarvogi, Árbæ og Mosfellsbæ en ekki kemur fram hvar atvikið átti sér stað. Í dagbók kemur einnig fram að tveir leigubílstjórar óskuðu eftir aðstoð lögreglu á Stöð 1, í miðbæ, austurbæ og vesturbæ, í gærkvöldi eða nótt vegna hvers annars. Í dagbók lögreglu segir að annar hafi sakað hinn um líkamsárás en hinn um að hafa ekið svo mikil hætta var af. Málið var afgreitt á vettvangi þar sem skýrslutaka fór fram. Í dagbók kemur fram að lögregla hafi í gærkvöldi og í nótt skráð 81 mál í sín kerfi. Á þeim tíma hafi lögreglan sinnt almennu eftirliti og fjölda aðstoðarbeiðna. Fram kemur í dagbók að þrír hafi verið handteknir vegna gruns um íkveikju í Breiðholti. Í dagbók er fjallað um fjölda annarra mála sem lögreglan sinnti, eins og um konu sem var handtekin eftir að hafa ekið á aðra bifreið. Hún yfirgaf vettvang og er grunuð um að hafa ekið undir áhrifum. Konan var vistuð í fangaklefa. Þá kemur fram að einn hafi óskað eftir aðstoð lögreglunnar eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás af hendi dyravarða. Samkvæmt lögreglu er málið til rannsóknar. Á stöð 3 var svo tilkynnt um þjófnað úr matvöruverslun og var málið afgreitt á vettvangi og óskað aðstoðar vegna hávaða í samkvæmi á stöð 3 og 4. Stöðvarnar sinna efri byggðum Reykjavíkur, Kópavogi og Mosfellsbæ.
Reykjavík Kópavogur Mosfellsbær Flugeldar Börn og uppeldi Umferð Lögreglumál Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Sjá meira