Veittu ökumanni eftirför sem endaði á ljósastaur Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 13. janúar 2026 16:00 Billinn endaði á ljósastaur við Ártúnsbrekku eftir að ökumaður virti stöðvunarmerki lögreglu að vettugi. Vísir Tilraun ökumanns til að komast undan lögreglu sem hafði veitt honum eftirför síðdegis í dag endaði ekki betur en svo að bíll hans hafnaði á ljósastaur við Ártúnsbrekku í Reykjavík. Uppákoman hefur valdið nokkrum umferðartöfum á svæðinu til viðbótar við annars nokkuð þunga síðdegisumferð samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar bíllinn lenti á ljósastaur og viðbragðsaðila að störfum á vettvangi en lögreglan var við eftirlit þegar hún hugðist stöðva ökumanninn sem virti beiðni þar um að vettugi. Klippa: Fjöldi lögreglubíla eltu ökuníðing Fréttamaður Sýnar náði jafnframt meðfylgjandi myndskeiði af eftirleiknum. „Þetta var ökumaður á fólksbifreið sem virti ekki stöðvunarmerki lögreglu. Honum var veitt eftirför og bifreiðin endaði þarna á ljósastaur. Hann var síðan handtekinn og færður á lögreglustöð,“ segir Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ekki virðist sem viðkomandi hafi verið mikið slasaður enda var ekki kallað eftir sjúkrabíl á vettvang, en bíllinn hafnaði á ljósastaur við aðreinina af Reykjanesbraut og upp í Ártúnsbrekku. Að öðru leyti kveðst Árni ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Fréttin hefur verið uppfærð með myndskeiði sem sýnir eftirför lögreglu.
Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar bíllinn lenti á ljósastaur og viðbragðsaðila að störfum á vettvangi en lögreglan var við eftirlit þegar hún hugðist stöðva ökumanninn sem virti beiðni þar um að vettugi. Klippa: Fjöldi lögreglubíla eltu ökuníðing Fréttamaður Sýnar náði jafnframt meðfylgjandi myndskeiði af eftirleiknum. „Þetta var ökumaður á fólksbifreið sem virti ekki stöðvunarmerki lögreglu. Honum var veitt eftirför og bifreiðin endaði þarna á ljósastaur. Hann var síðan handtekinn og færður á lögreglustöð,“ segir Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ekki virðist sem viðkomandi hafi verið mikið slasaður enda var ekki kallað eftir sjúkrabíl á vettvang, en bíllinn hafnaði á ljósastaur við aðreinina af Reykjanesbraut og upp í Ártúnsbrekku. Að öðru leyti kveðst Árni ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Fréttin hefur verið uppfærð með myndskeiði sem sýnir eftirför lögreglu. Náðirðu myndböndum eða myndum af eftirför lögreglu? Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér.
Náðirðu myndböndum eða myndum af eftirför lögreglu? Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér.
Reykjavík Umferðaröryggi Lögreglumál Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Sjá meira