Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Aron Guðmundsson skrifar 18. janúar 2026 20:31 Frá æfingaleik króatíska landsliðsins fyrir EM Vísir/Getty Fulltrúum Evrópska handknattleikssambandsins, þykir það miður að lag eftir króatísku hljómsveitina umdeildu, Thompson, hafi verið spilað í keppnishöllinni í Malmö fyrir fyrsta leik Króata á EM en söngvari hljómsveitarinnar er afar umdeildur svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Sænski miðilinn Aftonbladet segir frá þessu á vefmiðli sínum í kvöld og ber frétt miðilsins fyrirsögnina: „Skandall skekur EM í handbolta.“ Það var í kringum leik Króatíu, sem þjálfað er af Degi Sigurðssyni, og Georgíu í fyrstu umferð E-riðils á EM í handbolta sem lag eftir hljómsveitina Thompson tók að heyrast í keppnishöllinni í Malmö. Þegar að lag sveitarinnar var spilað mátti, samkvæmt Aftonbladet, sjá og heyra viðbrögð frá áhorfendum í stúkunni. Marko Perkovic, forsprakki og söngvari hljómsveitarinnar, er afar umdeildur á Balkanskaganum, sakaður um að vera fasisti og eru textar við sum lög hans sagðir styðja það. Þar megi meðal annars finna upphefð á verkum Ustasha hreyfingarinnar, fasískrar hreyfingar sem var þekkt fyrir þjóðernispólitík og ofbeldisfullar aðgerðir en hún var alþjóðlega tengd við nasista Þýskalands sem og fasista á Ítalíu á tímum seinni heimstyrjaldarinnar. Sökum þessa hefur Perkovic og hljómsveit hans verið meinað að spila tónlist sína í sumum Evrópulöndum og jafnan eru lög hans ekki spiluð á alþjóðlegum íþróttaviðburðum að sögn Aftonbladet. Miðilinn leitaði viðbragða hjá Evrópska handknattleikssambandinu sem sagði að lag hljómsveitarinnar hafi ekki verið á spilunarlistum sem voru sérstaklega samþykktir fyrir Evrópumótið í handbolta. Segir enn fremur í svari sambandsins að fulltrúar króatíska landsliðsins hafi krafist þess að lag með Thompson yrði spilað. „Á leikdag krafðist sendinefnd Króata ítrekað að umrætt lag yrði spila, þeirri beiðni var hafnað í hvert einasta skipti. Það að lagið hafi á endanum verið spilað þykir okkur miður og hefði aldrei átt að gerast. Umrætt lag endurspeglar alls ekki þau gildi sem þetta stórmót stendur fyrir.“ Nú sé allt kapp lagt á að svona lagað komi ekki fyrir aftur.
EM karla í handbolta 2026 Handbolti Króatía Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Fótbolti „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Íslenski boltinn Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti Segir raunhæft að Þjóðarhöllin verði risin árið 2030 Sport Sterkasti læknir landsins Sport Svona verður útsending Sýnar Sport í kringum stórleiki kvöldsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira