Kemst loksins á leik og styður Ísland til sigurs Valur Páll Eiríksson skrifar 20. janúar 2026 18:02 Létt var yfir Nik Chamberlain er hann spáði í spilin fyrir kvöldið. Hann hlakkar til að geta mætt á leik eftir að hafa misst af fyrstu tveimur. Vísir/Sigurður Már Nik Chamberlain, þjálfari kvennaliðs Kristianstad í fótbolta, hefur ekki látið stemninguna í bænum í kringum EM í handbolta fram hjá sér fara. Hann ætlar að styðja Ísland til sigurs í kvöld. „
Það hefur orðið smá breyting. Það er ekkert brjálað um að vera hérna venjulega. Það hefur verið gaman að hitta á íslenskt fólk hérna í bænum og sérstaklega á stuðningsmannasvæðinu (e. fan zone). Ég stefni þangað í kvöld og get vonandi hitt fleira fólk frá Íslandi,“ segir Nik í samtali við íþróttadeild sem leit við á æfingu fótboltaliðsins í dag. Klippa: Nik spenntur að komast á landsleikinn Nik tók við Kristianstad um áramótin en hafði fyrir það verið á Íslandi í um áratug. Hann stýrði Breiðabliki til Íslands- og bikarmeistaratitils á nýliðinni leiktíð og fékk kallið frá Svíþjóð. Líkt og Nik nefnir hefur hann látið sjá sig á Fan Zone en hefur þó ekki komist á leik. Hann ætlar að bæta úr því í kvöld og hlakkar til. „Ég fór á stuðningsmannasvæðið í fyrradag. Það var mjög gaman. Ég kemst loksins á leik í kvöld og get þá gírað mig almennilega inn í stemninguna – ég gæti jafnvel fengið andlitsmálningu. Þetta er stuð, hvert sem Íslendingarnir fara er stuðningurinn frábær og það er gaman að fylgjast með því,“ segir Nik. Nú ert þú mikill handboltasérfræðingur, hvernig spáirðu leiknum? „Já, allir þessir leikir sem ég hef séð í gegnum tíðina,“ segir Nik og hlær. „Ég get líklega bara nefnt tvo leikmenn í liðinu. En segjum að þetta fari 31-29 fyrir Ísland.“ Leikur Íslands og Ungverjalands hefst klukkan 19:30 og er lýst beint á Vísi hér.
Landslið karla í handbolta Sænski boltinn EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn Lést í miðjum leik Fótbolti Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Íslenski boltinn „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ Íslenski boltinn Ótrúlegur LeBron leiddi Lakers til sigurs Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Viktor Gísli aftur með yfir fimmtíu prósent markvörslu Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Sjá meira