Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 21. janúar 2026 18:51 Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarmaður hjá Félagsbústöðum segir óeðlilegt að taka ákvörðun um framlag til Félagsbústaða þegar ný skýrsla um reksturinn hafi ekki verið gerð opinber. Hann líkir ákvörðuninni við prófkjörsvíxil. Visir Meirihlutinn í borgarstjórn ákvað í gær að styrkja Félagsbústaði um 2,4 milljarða króna. Það er tvöfalt hærri upphæð en sú lágmarksupphæð sem starfshópur um fjárhagsstöðuna leggur til í nýrri skýrslu. Borgarfulltrúi og stjórnarmaður Félagsbústaða gagnrýnir að skýrslunni hafi verið haldið leyndri fyrir minnihlutanum. Málið lykti af prófkjörsbaráttu Samfylkingarinnar.
Meirihluti borgarstjórnar samþykkti á borgarstjórnarfundi í gær að borgin skuldbindi sig til að veita Félagsbústöðum fjárframlög næstu fimm ár upp á samtals um 2,4 milljarða króna. Þrjú hundruð milljónir séu vegna síðasta árs. Minnihlutinn í borginni gagnrýnir harðlega að við ákvörðun meirihlutans hafi ekki verið birt ný skýrsla um fjárhagsstöðu Félagsbústaða og tillögur til úrbóta. Heiða B. Hilmisdóttir greindi frá því í hádegisfréttum Bylgjunnar að það hafi ekki verið hægt að birta hana því hún sé í umsagnarferli. Kolsvört skýrsla Fréttastofa hefur skýrsluna sem ber heitið, Frá skuldsettum vexti til sjálfbærni, undir höndum sem sérfræðingar frá Reykjavíkurborg og framkvæmdastjóri Félagsbústaða eru skrifaðir fyrir. Þar er farið yfir þrönga fjárhagsstöðu félagsins. Veltufé standi naumlega undir afborgunum og viðhaldi. Ef ekki komi til raunhækkunar á leiguverði eða sérstaks eiginfjárframlags frá eiganda skapist hætta á greiðsluerfiðleikum. Úr skýrslu starfshóps borgarstjórnar um fjárhagstöðu Félagsbústaða sem minnihlutinn í borgarstjórn gagnrýnir að hafi ekki verið gerð opinber,Vísir Meirihlutinn tvöfaldaði lágmarksupphæðina Í skýrslu starfshópsins koma fram sjö tillögur um hvernig hægt sé að laga rekstrarskilyrðin. Þeim sé ætlað að stöðva þann skuldadrifna vöxt sem hafi einkennt rekstur Félagsbústaða. Meðal þess sem lagt er til er að borgin skuldbindi sig til að veita að lágmarki 250 milljónum króna í árlegt framlag til Félagsbústaða næstu fimm árin. Þá eru kynntar fjórar sviðsmyndir til að hagræða í rekstrinum. Meirihlutinn í borgarstjórn ákvað að tvöfalda upphæðina sem lögð er til í skýrslunni á borgarstjórnarfundi í gær. Ákváðu í samstarfssáttmála að tvöfalda kaupin Heiða B. Hilmisdóttir borgarstjóri segir að meirihlutinn hafi ákveðið að fara aðrar leiðir en þar eru lagðar til. „Í samstarfssáttmála meirihlutans kom fram að við vildum tvöfalda kaup á félagslegu húsnæði. Þannig að þetta er leið til þess. Nú er mér falið að skoða nýtingu fjármagnsins með Félagsbústöðum,“ segir Heiða í samtali við fréttastofu um málið. Aðspurð um hvort tillaga meirihlutans vegna Félagsbústaða sé önnur en komi fram í skýrslu starfshópsins svarar Heiða því játandi. „Já, það eru nokkrar sviðsmyndir sem eru lagðar fram um framtíðaruppbyggingu og tilhögun á rekstri í skýrslunni,“ segir Heiða. Úr skýrslu starfshópsins. Vísir „Tel að hér sé um prófkjörsvíxil að ræða“ Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarmaður Félagsbústaða segir að lengi hafa legið fyrir að félagið þurfi nauðsynlega að fá fjármagn í reksturinn en gerir alvarlegar athugasemdir við framgöngu meirihlutans í málinu og leyndina sem hvíli yfir skýrslu starfshópsins. „Við gagnrýnum þessa undarlegu málsmeðferð. Þetta er þriðja skýrslan sem hefur verið gerð um Félagsbústaði undanfarin ár en engin þeirra hefur verið gerð opinber. Málefnum Félagsbústaða hefur verið velt undan allt kjörtímabilið án aðgerða,“ segir Kjartan. Hann gerir athugasemd við að málið sé til afgreiðslu nú þegar nokkrir dagar eru í prófkjör Samfylkingarinnar í borginni. „Loksins núna þegar eru nokkrir dagar til prófkjörs Samfylkingarinnar samþykkir meirihlutinn tillögu um Félagsbústaði. Ekki er orðið við óskum um að afhenda skýrslur sem tengjast málinu. Ég tel að hér sé um prófkjörsvíxil að ræða. Með þessari ákvörðun er verið að skuldbinda borgarstjórn allt næsta kjörtímabil í málinu sem er óeðlilegt rétt fyrir kosningar,“ segir Kjartan. Aðspurður um að fréttastofa hafi skýrsluna þar sem komi fram tillaga um mun lægra fjárframlag til Félagsbústaða en meirihlutinn hafi svo ákveðið svarar Kjartan: „Auðvitað er mjög óeðlilegt að taka slíka ákvörðun þegar meirihluti borgarfulltrúa hefur ekki séð skýrsluna og tvær aðrar skýrslur sem hafa verið gerðar um Félagsbústaði á kjörtímabilinu. Aðeins borgarráð og Félagsbústaðir hafa fengið að sjá þær. Ég hefði talið lágmark að borgarfulltrúar fái að sjá allar þær skýrslur sem hafa verið gerðar um Félagsbústaði á kjörtímabilinu,“ segir Kjartan.
Reykjavík Sveitarstjórnarmál Samfylkingin Vinstri græn Vor til vinstri Flokkur fólksins Sjálfstæðisflokkurinn Félagsmál Rekstur hins opinbera Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira