Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2026 09:01 Ómar Ingi Magnússon, lengst til hægri, hugar hér að meiddum liðsfélaga sínum í gær ásamt þeim Janusi Daða Smárasyni og Ými Erni Gíslasyni. Vísir/Vilhelm Landsliðsfyrirliðinn Ómar Ingi Magnússon var vissulega markahæsti leikmaður íslenska liðsins í tapleiknum á móti Króatíu en hann skoraði bara þrjú mörk utan af velli, klikkaði á tveimur vítaskotum og fékk síðan sinn skammt af gagnrýni frá sérfræðingi Besta sætisins.
Eftir þrjá sigurleiki í röð byrjaði þetta ekki vel hjá strákunum okkar á móti Degi Sigurðssyni og lærisveinum hans í króatíska landsliðinu í fyrsta leik milliriðilsins. Ágúst Orri Arnarson fékk sérfræðingana Ásgeir Örn Hallgrímsson og Jóhann Gunnar Einarsson í hljóðverið til sín til að fara ítarlega yfir leikinn. Jóhann Gunnar vildi benda á Ómar Inga aðspurður um það sem hefði mátt betur fara í leiknum. „Í fyrstu þremur leikjunum hafa menn stigið upp. Það var þarna Haukur í Póllandsleiknum og svo var það Janus í Ítalíuleiknum sem kom með eitthvað extra inn í liðið. Svo var það Viktor í Ungverjaleiknum,“ sagði Jóhann Gunnar. Vantaði einhverja frábæra frammistöðu „Það vantaði einhverja frábæra frammistöðu, kannski fyrir utan Óðin [Þór Ríkharðsson] sem var náttúrulega frábær. Síðustu þrjú mörkin hans komu samt þegar við erum bara að laga markatöluna en ég tek ekkert af honum. Hann var frábær en þetta hefði mátt kannski dreifast betur í miðjum leik, svona þegar allt er undir,“ sagði Jóhann. „Þetta er búið að vera mjög gott mót hingað til en þetta var bara ekki góður leikur í dag,“ sagði Jóhann og hann horfir til Ómars Inga Magnússonar. Sjö mörk í fjórum leikjum úr opnum leik „Ómar Ingi er búinn að skora sjö mörk í opnum leik í fjórum leikjum. Ég held þið hafið verið fjögur mörk fyrir þennan leik og hann skoraði þrjú mörk í opnum leik í þessum,“ sagði Jóhann og eitt af þessum þremur mörkum kom í frákasti eftir að Ómar lét verja frá sér víti. Jóhann vill meina að fyrrum fyrirliðar og lykilleikmenn hefðu ekki komist upp með svona frammistöðu án þess að fá að heyra það frá gagnrýnendum. „Hefði þetta verið Aron Pálmarsson, þegar hann var fyrirliði og upp á sitt besta, eða þá Óli Stefáns, þá væru menn heldur betur aðeins að éta þá í sig ef þeir hefðu bara skorað sjö mörk í fyrstu fjórum leikjunum í opnum leik,“ sagði Jóhann. Við þurfum bara meira frá honum „Við þurfum bara meira frá honum og það er eitthvað sem er ekki að virka. Ég veit ekki hvort það sé leikskipulagið eða bara hvort hann sé eitthvað þreyttur eftir langa törn í Þýskalandi. Hann er einhvern veginn bara fastur í bakverðinum og kemur lítið inn á miðjuna. Við erum með lítið af klippingum fyrir hann,“ sagði Jóhann. „Hann kemur síðan með sturlaðar fintur sem eru frábærar, skorar eða fiskar víti,“ sagði Jóhann. „Einu sinni skaut hann stundum fyrir utan,“ skaut Ásgeir Örn inn í. Hvar eru undirhandarskotin? „Hann var í undirhandarskotum, bara flottum skotum,“ sagði Jóhann. „Hann gerði þetta bara ítrekað,“ sagði Ásgeir. „Við náum honum ekkert inn í hættulegar stöður fyrir utan eða hann er ekki að koma sér í þær. Ég veit ekki hvað það er, en það er svona eina sem maður getur kannski sett út á sem er augljóst,“ sagði Jóhann. Gísli [Þorgeir Kristjánsson] er bara búinn að vera frábær þótt hann skori ekki mark í leiknum í dag. Hann fiskaði sex víti og átta stoðsendingar og var bara stanslaust að,“ sagði Jóhann. „Bara eins góður og hægt er,“ skaut Ásgeir Örn inn í. Maður er smá svekktur Jóhann vildi sjá meira af Viggó sem kom með stöðuskot og fiksaði ruðning en var svo settur strax á bekkinn fyrir Ómar Inga. „Maður er smá svekktur út af því að maður bindur svo miklar vonir við Ómar. Hann er að spila frábærlega með sínu félagsliði en nær ekki að færa það yfir í landsliðið í síðustu leikjum. Það er svona það augljósasta ef þú spyrð mig um hvað vanti upp á,“ sagði Jóhann. Það má hlusta á allan þáttinn hér fyrir neðan en það er farið yfir leikinn í gær frá öllum hliðum auk þess að velta framhaldinu fyrir sér.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Besta sætið Tengdar fréttir Skýrsla Vals: Ekki aftur Fyrir ári síðan sá ég eina tap Íslands á síðasta stórmóti. Það kom gegn Króötum í Zagreb og dugði til að kasta strákunum úr leik. Nú er að vona að tap fyrir þeim bölvuðum geri það ekki að verkum í ár. 23. janúar 2026 19:30 Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Össur Skarphéðinsson, fyrrum alþingismaður, formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, var allt annað en sáttur með Loga Geirsson eftir tapleik Íslands á móti Króatíu á EM í handbolta í kvöld. 23. janúar 2026 18:57 EM í dag: Ísland fer alltaf Krýsuvíkurleiðina Það var ekkert sérstaklega létt yfir mönnum í EM í dag eftir tapið sára gegn Króatíu í Malmö í kvöld. 23. janúar 2026 18:27 Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði sínum fyrsta leik á Evrópumótinu þegar það laut í lægra haldi fyrir Króatíu, 29-30, í milliriðli II í Malmö. Slök vörn í fyrri hálfleik og slæm vítanýting varð Íslandi að falli í dag. 23. janúar 2026 16:58 Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Sjá meira
Skýrsla Vals: Ekki aftur Fyrir ári síðan sá ég eina tap Íslands á síðasta stórmóti. Það kom gegn Króötum í Zagreb og dugði til að kasta strákunum úr leik. Nú er að vona að tap fyrir þeim bölvuðum geri það ekki að verkum í ár. 23. janúar 2026 19:30
Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Össur Skarphéðinsson, fyrrum alþingismaður, formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, var allt annað en sáttur með Loga Geirsson eftir tapleik Íslands á móti Króatíu á EM í handbolta í kvöld. 23. janúar 2026 18:57
EM í dag: Ísland fer alltaf Krýsuvíkurleiðina Það var ekkert sérstaklega létt yfir mönnum í EM í dag eftir tapið sára gegn Króatíu í Malmö í kvöld. 23. janúar 2026 18:27
Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði sínum fyrsta leik á Evrópumótinu þegar það laut í lægra haldi fyrir Króatíu, 29-30, í milliriðli II í Malmö. Slök vörn í fyrri hálfleik og slæm vítanýting varð Íslandi að falli í dag. 23. janúar 2026 16:58