Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. janúar 2026 09:39 Nico var að leika sér með vinum sínum þegar hákarl réðist á hann. EPA Tólf ára drengur er látinn eftir að hafa verið bitinn af hákarli í sjónum við Sidney í Ástralíu. Fjórir urðu fyrir hákarlaárás á stuttum tíma í vikunni.
Drengurinn hét Nico Antic og var að leika sér að hoppa út í sjóinn með vinum sínum þann 18. janúar þegar hákarl, af tegundinni nautháfur, réðst á Antic. Vinir hans stukku í vatnið á eftir honum til að hjálpa. Antic hlaut alvarlega áverka á fæti og var fluttur á sjúkrahús. Eftir að hafa gengist undir skurðaðgerð var hann settur í dá. Antic lést af sárum sínum í gær. „Nico var glaður, vinalegur og íþróttamannslegur ungur strákur með einstaklega góðhjartað og gjafmilt eðli. Hann var alltaf fullur af lífi og þannig munum við minnast hans,“ segir í tilkynningu frá fjölskyldu hans samkvæmt BBC. Sett var af stað fjáröflun fyrir fjölskylduna og hafa safnast tæpar þrjátíu milljónir íslenskra króna. Fjórar árásir á tveimur dögum Greint var frá því í vikunni að fjórir urðu fyrir hákarlaárás á 48 klukkustundum. Antic var sá fyrsti af fjórum sem varð fyrir hákarlaárás. 39 ára brimbrettakappi hlaut sár á bringuna eftir að hákarl beit í brettið hans. Annar brimbrettakappi fékk einnig sár og nokkrum klukkustundum þar á eftir hlaut 27 ára maður alvarlega áverka. Yfirvöld telja að allar árásirnar hafi verið af völdum nautháfa, sem finnast bæði í saltvatni og ferskvatni. Mikið hefur rignt á svæðinu svo vatnið varð gruggugra og erfiðara er að sjá hárkalana. Einnig skolast fæða niður með ám og út í sjó.
Ástralía Dýr Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira