Hættum að tala niður til barna og ungmenna Ómar Bragi Stefánsson skrifar 28. janúar 2026 12:18 Mikið afskaplega er ég orðinn þreyttur á umræðunni og stórum fyrirsögnum um hvað börn og ungmenni eru vonlaus, og þá sérstaklega drengir. Kunna ekkert, geta ekkert og verða ekkert. Það er ömurlegt að horfa á og heyra í fullorðnu fólki tala svona til þeirra, jafnvel áhrifafólki sem er í ábyrgðarstöðum í samfélaginu sem við eigum að líta upp til. Þessi umræða er ekki til þess fallin að byggja upp eða styðja við þá sem á þurfa að halda. Þessi umræða hefur verið og er til skammar hjá öllum þeim sem svona hafa talað. Það er svo einfalt að þykjast vita allt og hafa svör við öllu. Dæma aðra og reyna að upphefja sjálfan sig. Skella fram fullyrðingum sem jafnvel innihalda ekkert. Ég hef alla mína tíð unnið með börnum og ungmennum. Þvílík forréttindi segi ég. Við eigum gríðarlega flotta einstaklinga sem eru frábærar fyrirmyndir. Við getum horft til íþróttanna, tónlistarinnar, leiklistarinnar og fjölmargra annarra listgreina. Við getum horft til matreiðslunnar og allskonar verklegra þátta. Við eigum einnig mikið að langskólagengnu ungu fólki sem tekið er eftir bæði hér heima og erlendis. Allsstaðar eigum við og sjáum ungt fólk sem er að standa sig afburða vel á öllum sviðum. Tölum um þetta frábæra fólk. En eflaust er hægt að gera betur í uppeldi barna okkar og ungmenna. Kannski ættum við, foreldrar, að líta í eigin barm og skoða þann tíma sem við höfum verið með og erum með börnum og ungmennum. Erum við kannski svo upptekin að við erum ekki með þau í fyrsta sæti. Hættum að benda á kennara sem einhverja blóraböggla. Kennarar eiga betra skilið. Hættum að tala niður til barna og ungmenna og þykjast vera með lausnir á öllu sem þeim viðkemur. Börn okkar og ungmenni eiga betra skilið. Höfundur er verkefnastjóri og framkvæmdastjóri móta UMFÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir Skoðun Þegar hávaðinn ræður ferðinni Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Engin fyrirtæki engin þjónusta Guðný María Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Við erum í sama liðinu skrifar Skoðun Þegar hávaðinn ræður ferðinni Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Gefum loforð í sumargjöf Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Sjá meira
Mikið afskaplega er ég orðinn þreyttur á umræðunni og stórum fyrirsögnum um hvað börn og ungmenni eru vonlaus, og þá sérstaklega drengir. Kunna ekkert, geta ekkert og verða ekkert. Það er ömurlegt að horfa á og heyra í fullorðnu fólki tala svona til þeirra, jafnvel áhrifafólki sem er í ábyrgðarstöðum í samfélaginu sem við eigum að líta upp til. Þessi umræða er ekki til þess fallin að byggja upp eða styðja við þá sem á þurfa að halda. Þessi umræða hefur verið og er til skammar hjá öllum þeim sem svona hafa talað. Það er svo einfalt að þykjast vita allt og hafa svör við öllu. Dæma aðra og reyna að upphefja sjálfan sig. Skella fram fullyrðingum sem jafnvel innihalda ekkert. Ég hef alla mína tíð unnið með börnum og ungmennum. Þvílík forréttindi segi ég. Við eigum gríðarlega flotta einstaklinga sem eru frábærar fyrirmyndir. Við getum horft til íþróttanna, tónlistarinnar, leiklistarinnar og fjölmargra annarra listgreina. Við getum horft til matreiðslunnar og allskonar verklegra þátta. Við eigum einnig mikið að langskólagengnu ungu fólki sem tekið er eftir bæði hér heima og erlendis. Allsstaðar eigum við og sjáum ungt fólk sem er að standa sig afburða vel á öllum sviðum. Tölum um þetta frábæra fólk. En eflaust er hægt að gera betur í uppeldi barna okkar og ungmenna. Kannski ættum við, foreldrar, að líta í eigin barm og skoða þann tíma sem við höfum verið með og erum með börnum og ungmennum. Erum við kannski svo upptekin að við erum ekki með þau í fyrsta sæti. Hættum að benda á kennara sem einhverja blóraböggla. Kennarar eiga betra skilið. Hættum að tala niður til barna og ungmenna og þykjast vera með lausnir á öllu sem þeim viðkemur. Börn okkar og ungmenni eiga betra skilið. Höfundur er verkefnastjóri og framkvæmdastjóri móta UMFÍ.
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar