Flottir fulltrúar lands og þjóðar á sögulegri stundu Aron Guðmundsson skrifar 29. janúar 2026 15:52 Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands og Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu, samankomnir í Herning í Danmörku þar sem að undanúrslitin á Evrópumóti karla í handbolta fara fram á morgun. Vísir/Vilhelm Ísland á þrjá þjálfara í undanúrslitum Evrópumóts karla í handbolta og þeir hittust í Herning í dag, degi fyrir undanúrslitaleikina mikilvægu.
Snorri Steinn Guðjónsson er þjálfari íslenska landsliðsins sem mætir því danska í seinni undanúrslitaleik morgundagsins í Herning í Danmörku. Alfreð Gíslason er landsliðsþjálfari Þýskalands sem mætir landsliði Króatíu í fyrri undanúrslitaleik morgundagsins en þjálfari Króata er Dagur Sigurðsson. Aldrei áður hafa þrír íslenskir þjálfarar verið samtímis í undanúrslitum á stórmóti karla í handbolta og eftir því sem næst verður komist hefur það aldrei gerst áður að þrír af fjórum þjálfurum liða í undanúrslitum hafi verið af sama þjóðerni. Frábærir fulltrúar lands og þjóðar en fyrir blaðamannafund í Herning í dag hittust þjálfararnir þrír og við það tilefni tók Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, þessar myndir af köppunum. Það er þegar ljóst að íslenskir þjálfarar vinna að minnsta kosti tvenn verðlaun á þessu Evrópumóti og Dagur á nú möguleika á að gera aðra þjóð að Evrópumeisturum því þýska landsliðið varð Evrópumeistari undir hans stjórn árið 2016. Það fór vel á með þjálfurunum í Herning í dag.Vísir/Vilhelm Allir þrír berjast um að koma sínu liði í úrslitaleik EMVísir/Vilhelm
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira