Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. janúar 2026 18:46 Einn kastaði þvagi á lögreglustöðina við Hverfisgötu. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm einstaklinga sem grunaðir eru um þjófnað í fjölda verslana. Í dagbók lögreglu kemur fram að óskað var aðstoðar lögreglu vegna þjófnaðar úr matvöruverslun. Er lögreglumenn komu á vettvang voru þar fimm að verki. Tveir þeirra reyndu að komast undan án árangurs. „Við nánari skoðun kom í ljós að einstaklingarnir eru grunaðir um þjófnað í fleiri verslunum með skipulögðum hætti og voru þau öll handtekin og vistuð í fangaklefa í þágu málsins,“ segir í dagbókinni. Yfir hundrað mál eru skráð í kerfinu frá fimm í nótt til fimm síðdegis. Sex eru vistaðir í fangageymslu lögreglu. Kastaði þvagi á lögreglustöð Lögreglan sektaði karlmann fyrir brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg en maðurinn ákvað að kasta þvagi á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Öryggismyndavélar sem eru staðsettar við lögreglustöðna náðu athæfinu á upptöku. Veistu meira um málin? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur skilaboð á ritstjorn@visir.is Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna karlmanns sem gekk berserksgang á hóteli. Hann var handtekinn grunaður um eignaspjöll og vörslu fíkniefna. Einnig barst lögreglu tilkynning um karlmann í annarlegu ástandi að skalla ljósastaur. Maðurinn er grunaður um vopnalagabrot en var fluttur á bráðamóttöku til frekari skoðunar sökum ástands. Reyndi að framvísa röngu ökuskírteini Lögreglan í Hafnarfirði hafði afskipti af ökumanni sem er grunaður um að hafa ekið á 134 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá er hann einnig ekki með ökuréttindi en reyndi að framvísa ökuskírteini annars manns. Í Kópavogi var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna viðskiptavinar verslunar sem var ógnandi og að valda eignaspjöllum. Lögreglumál Reykjavík Hafnarfjörður Kópavogur Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira
Í dagbók lögreglu kemur fram að óskað var aðstoðar lögreglu vegna þjófnaðar úr matvöruverslun. Er lögreglumenn komu á vettvang voru þar fimm að verki. Tveir þeirra reyndu að komast undan án árangurs. „Við nánari skoðun kom í ljós að einstaklingarnir eru grunaðir um þjófnað í fleiri verslunum með skipulögðum hætti og voru þau öll handtekin og vistuð í fangaklefa í þágu málsins,“ segir í dagbókinni. Yfir hundrað mál eru skráð í kerfinu frá fimm í nótt til fimm síðdegis. Sex eru vistaðir í fangageymslu lögreglu. Kastaði þvagi á lögreglustöð Lögreglan sektaði karlmann fyrir brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg en maðurinn ákvað að kasta þvagi á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Öryggismyndavélar sem eru staðsettar við lögreglustöðna náðu athæfinu á upptöku. Veistu meira um málin? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur skilaboð á ritstjorn@visir.is Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna karlmanns sem gekk berserksgang á hóteli. Hann var handtekinn grunaður um eignaspjöll og vörslu fíkniefna. Einnig barst lögreglu tilkynning um karlmann í annarlegu ástandi að skalla ljósastaur. Maðurinn er grunaður um vopnalagabrot en var fluttur á bráðamóttöku til frekari skoðunar sökum ástands. Reyndi að framvísa röngu ökuskírteini Lögreglan í Hafnarfirði hafði afskipti af ökumanni sem er grunaður um að hafa ekið á 134 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá er hann einnig ekki með ökuréttindi en reyndi að framvísa ökuskírteini annars manns. Í Kópavogi var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna viðskiptavinar verslunar sem var ógnandi og að valda eignaspjöllum.
Veistu meira um málin? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur skilaboð á ritstjorn@visir.is
Lögreglumál Reykjavík Hafnarfjörður Kópavogur Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira