Danir með tromp á hendi: „Auðvitað hrikalega mikilvægt“ Sindri Sverrisson skrifar 30. janúar 2026 13:17 Gísli Kristjánsson er stoðsendingahæstur á EM og algjör prímusmótor í sóknarleik Íslands. Getty/Sanjin Strukic Danir telja sig hafa ansi sterkt tromp á hendi gegn ásunum í íslensku sókninni, fyrir undanúrslitaleik þjóðanna á EM í handbolta í kvöld.
Danir hafa nefnilega í sínum röðum línumanninn Magnus Saugstrup sem tekið hefur virkan þátt í hinni gríðarlegu velgengni danska landsliðsins á síðustu sjö árum. Hinn 29 ára gamli Saugstrup nýtur þeirra forréttinda að spila í sínu félagsliði með þeim Gísla Þorgeiri Kristjánssyni og Ómari Inga Magnússyni, sem og Elvari Erni Jónssyni sem hætta þurfti á EM vegna meiðsla, og þeir sjá um að mata hann á sendingum í Magdeburg. Liðið hefur farið á kostum í þýsku deildinni í vetur og ekki tapað leik. TV 2 í Danmörku bendir á að Saugstrup viti allt sem þurfti að vita um það hvernig Gísli og Ómar spili. Þannig séu Danir með ás í erminni til að verjast Gísla, sem er stoðsendingahæstur allra á EM, og Ómari sem er einn markahæsti maður mótsins. Magnus Saugstrup og Ómar Ingi Magnússon hafa spilað saman í Magdeburg síðustu ár. Hér eru þeir saman til varnar í leik gegn Flensburg.Getty/Hendrik Schmidt Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Dana, fór ekki heldur í neinar grafgötur með það að leitað yrði til Saugstrup í undirbúningnum fyrir leikinn við Ísland. „Það verður auðvitað mjög mikilvægt. Á því leikur enginn vafi. Þar höfum við eitthvað sem við getum nýtt okkur varðandi þekkingu Saugstrup,“ sagði Jacobsen. Leita að réttu jafnvægi gegn Gísla og Ómari Hvort það dugar að vita hvernig Gísli og Ómar vilja spila verður svo að koma í ljós og eins má segja að þeir viti allt sem þarf að vita um Saugstrup. Línumaðurinn segir að það verði að minnsta kosti erfitt að eiga við þessa tvo bestu sóknarmenn Íslands. „Gísli mun spila af öllum sínum krafti í „einn á einn“ leiknum og stýra sókninni. Ómar mun spila skynsamlega og nýta sér yfirtöluna sem skapast. Við þurfum að finna hve langt fram á að stíga og rétta stuðninginn. Við þurfum að finna góða fjarlægð og sjá hvort við getum leyft einhver skot og fengið hraða út úr því. En það verður erfitt,“ sagði Saugstrup við TV 2.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira