Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Kjartan Kjartansson skrifar 3. febrúar 2026 12:04 Yfirvöld í Frakklandi vilja ná tali við Elon Musk vegna barnaníðs, helfararafneitunar og slagíðu á samfélagsmiðli hans X. Vísir/EPA Franskir saksóknarar gerðu húsleit á skrifstofum samfélagsmiðilsins X í París í dag í tengslum við rannsókn á dreifingu barnaníðs og falsaðra kynferðislegra mynda á miðlinum. Þeir hafa einnig óskað eftir að taka skýrslu af Elon Musk, eiganda X, og forstjóra fyrirtækisins.
Rannsóknin beinist ekki aðeins að hlutdeild X, allsherjarforritsins, í dreifingu á kynferðislegu myndefni af börnum og konum gegn vilja þeirra sem voru framleiddar með gervigreindarspjallmenninu Grok heldur einnig að afneitun á glæpum gegn mannkyninu og slagsíðu í algrími forritsins. „Á þessu stigi byggist framvinda rannsóknarinnar á uppbyggilegri nálgun sem miðað að því að tryggja að endingu að miðillinn X uppfylli frönsk lög þar sem hann hefur starfsemi í umdæmi þeirra,“ segir í yfirlýsingu saksóknara í París. Evrópska lögreglustofnunin Europol var frönsku saksóknurunum innan handar í aðgerðunum, að því er kemur fram í frétt AP-fréttastofunnar. Þá segjast saksóknararnir hafa óskað eftir að taka skýrslu af Musk sjálfum og Lindu Yaccarino, forstjóra X, í apríl. Fleiri starfsmenn X hafa verið kvaddir til skýrslutöku þá. Framleiddi kynferðislegar myndir af börnum, konum og líkum Yfirvöld í fjölda ríkja hafa kynferðislegar gervigreindarmyndir sem framleiddar voru með Grok og birtust á X til rannsóknar. Fyrirtækið sætti harðri gagnrýni fyrir að koma ekki í veg fyrir að notendur gætu látið gervigreindina eiga við myndir af raunverulegu fólki og gera þær kynferðislegar. Á meðal mynda sem sættu slíkri meðferð og birtust á X var mynd af líki konu sem bandarískir innflytjendaeftirlitsmenn skutu til bana í Minneapolis í síðasta mánuði og mynd af líki unglingsstúlku sem lést í eldsvoða á krá í svissneskum skíðabæ. X brást við gagnrýninni með því að segjast ætla að takmarka hvaða notendur gætu notað myndvinnslu Grok í sumum löndum. Fyrirtækið hefur ekki brugðist við aðgerðum franskra yfirvalda í dag. Reuters-fréttastofan segir að Grok framleiði enn kynferðislegar myndir af fólki, jafnvel þótt spjallmennið fái upplýsingar um það sé gegn vilja viðkomandi, að myndirnar verði notaðar til þess að auðmýkja það opinberlega og að þær séu af fórnarlömbum kynferðisofbeldis. Önnur leiðandi gervigreindarmállíkön eins og ChatGPT hafni sambærilegum beiðnum notenda sinna og vari gjarnan við birtingu mynda af fólki gegn vilja þess. Sagði gasklefana til sótthreinsunar, ekki helfarar Franska rannsóknin hófst upphaflega á ásökunum þarlendra þingmanna um kerfisbundna slagsíðu í algrími X sem stýrir því hvaða efni er haldið að notendum. Síðar bættust kynferðislegu gervigreindarmyndirnar við rannsóknina og sömuleiðis færslur þar sem helförinni var afneitað. Grok skrifaði ranglega í færslu á frönsku sem fór víða að gasklefar í útrýmingarbúðum nasista hefðu ekki verið notaðir til helfarar gegn gyðingum heldur til þess að sótthreinsa fanga gegn dílasótt. Grok hefur ítrekað skrifað svör til notenda sem hafa verið full af gyðingahatri. Spjallmennið lofaði meðal annars Adolf Hitler og vísaði til sín sjálfs sem „VélHitlers“ (e. MechaHitler). Þá leyfði það notendum sínum að setja baðföt með hakakrossum á kynferðislegar myndir af konum. Undir stjórn Musk hefur X orðið að einum vinsælasta vettvangi hvítra þjóðernissinna og öfgahægrimanna. Hann er sjálfur er helsti boðberi slíkrar hugmyndafræði í heiminum. Hann sakaði nýlega spænsk stjórnvöld um að hyggja á „þjóðarmorð“ á hvítu fólki með því að gefa hundruðum þúsund innflytjenda sem dvelja ólöglega á Spáni tímabundin dvalar- og atvinnuleyfi.
X (Twitter) Frakkland Erlend sakamál Kynferðisofbeldi Klám Samfélagsmiðlar Gervigreind Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira