Strákarnir okkar spila næst æfingaleiki við Svíþjóð Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. febrúar 2026 15:35 Íslenska karlalandsliðið í handbolta þarf ekki að fara í undankeppni HM og mun einungis spila æfingaleiki fram að næsta stórmóti. Vísir/Vilhelm Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu spila tvo æfingaleiki við Svíþjóð um miðjan mars.
Æfingaleikirnir tveir verða spilaðir í vikunni 15. - 21. mars og munu fara fram hér á landi. Þeir verða þá fyrstu æfingaleikirnir sem strákarnir okkar spila á Íslandi síðan 2018 þegar landslið Barein, undir stjórn Arons Kristjánssonar kom í heimsókn. Ísland og Svíþjóð tryggðu sér bæði sæti á HM á næsta ári með góðum árangri á Evrópumótinu sem var að ljúka. Svíar höfnuðu í sjötta sæti, eftir tap gegn Íslandi og jafntefli við Ungverjaland í milliriðlinum, en strákarnir okkar enduðu í fjórða sæti eftir tap gegn Króatíu í leiknum um bronsið. „Nú eru Svíarnir að koma til landsins og við spilum tvo æfingaleiki. Það verður mjög gaman að fá alvöru lið og geta boðið upp á frábæra landsleiki. Við munum bjóða þjóðinni að styðja okkur þar og gera mikið úr þeim leikjum“ sagði Jón Halldórsson, formaður HSÍ, í viðtali við Vísi. Undirbúningur fyrir næsta stórmót, HM í Þýskalandi, er nú þegar hafinn og formaðurinn segir betur frá því í Sportpakka Sýnar í kvöld.
Landslið karla í handbolta HM karla í handbolta 2027 Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira