Körfubolti

„Við þekkjum um­hverfið alla­vega betur“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Þorleifur Ólafsson stýrir liði Grindavíkur í Smáranum í kvöld. 
Þorleifur Ólafsson stýrir liði Grindavíkur í Smáranum í kvöld.  vísir

Grindavík mætir Tindastóli í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í körfubolta í kvöld. Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, býst við erfiðum leik gegn liði með nýjan leikmann en vonar að toppliðið finni taktinn á sínum gamla heimavelli í kvöld.

„Þetta leggst mjög vel í mig. Undirbúningurinn hefur verið frábær og flestar eru klárar, þannig að ég held að þetta muni bara ganga vel hjá okkur“ sagði Þorleifur.

Isabella Ósk Sigurðardóttir er að glíma við smávægileg meiðsli en aðrir leikmenn liðsins eru heilir heilsu, að sögn Þorleifs.

Óvíst er hvort miðherijnn Isabella Ósk verði með Grindvíkingum í kvöld. Vísir / Pawel Cieslikiewicz

Grindavík hefur fagnað góðu gengi í Bónus deildinni á þessu tímabili og situr í efsta sæti deildarinnar, og þó bikarinn sé allt önnur keppni mun það eflaust hjálpa liðinu.

„Þetta eru alveg aðskildar keppnir en við höfum verið að bæta okkar leik í deildinni og spiluðum líka nýlega við Tindastól. Lentum í smá brasi þar en náðum að klára þann leik og við munum alveg nýta okkur það, það er klárlega eitthvað sem hjálpar okkur í kvöld“ sagði Þorleifur.

Abby Beeman hefur verið frábær fyrir Grindavík og varð nýlega sú fyrsta til að gefa tuttugu stoðsendingar í einum leik. vísir / anton

Undanúrslitin og úrslitaleikurinn fer fram í Smáranum, sem var heimavöllur Grindavíkur síðustu tvö tímabil þegar liðið gat ekki spilað í heimabænum.

„Skiptir kannski ekki öllu máli hvar maður spilar en okkur leið alltaf vel í Smáranum og vonandi mun það hjálpa. Við þekkjum umhverfið allavega betur en annars staðar.“

Tindastóll tók á móti Grindavík í þarsíðustu umferð Bónus deildarinnar og þar sluppu Grindvíkingar með þriggja stiga sigur eftir háspennuleik.

Hvað lærðuð þið af þeim leik?

„Hversu öflugt Tindastólsliðið er í raun og veru. Þær eru með hörkulið og eru að breyta um leikmann, þannig að við verðum að vera á tánum og klárar í að byrja mjög vel, það verður mikilvægt fyrir okkur“ sagði Þorleifur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×